Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 13

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 13
þeir alla leið upp í ármynnið og voru hinir spökustu. Eins og að framan getur býður Hauka- dalsá upp á marga möguleika og skemmtilega. Ég vil geta þess, að það eru tveir aðilar, sem hafa ána á leigu. Stangaveiðifélag Akraness að sunnan, en Guðbrandur Jörundsson að norðanverðu. Hann er einnig landeigandi þar. Mega menn ekki veiða nema liver af sínum bakka og er það ókostur. Ég get ekki stillt mig um að rifja upp endurminningar frá einni veiðiferð í Haukadalsá. Það var sumarið 1948. Við áttuni kost á því tveir veiðifélagar, að fá 10 daga veiðileyfi þar á bezta tíma, 18.— 28. júlí, og ákváðum við að eyða þar sum- arleyfinu. Veiðileyfið kostaði þá (50 krón- ur á dag fyrir stöngina. Það var síðasta daginn, sem við vorum í ánni, að við vöknuðum nokkuð seint um morguninn. Það hafði verið treg veiði daginn áður. Áin hafði líka verið í vexti og þá tekur laxinn oft ver en í minnkandi vatni. Þegar við vorum tilbúnir að halda af stað til veiða, var klukkan að verða 10. Við vorum óákveðnir hvert halda skvldi og ræddum um það stundarkorn, þar til ég segi \ ið félaga minn, að ég fari niður að Berghyl, og ætli mér að verða búinn að landa 10 punda hrygnu klukkan hálf ellefu, og með það skildum við, og ég hélt niður með á. Þegar ég kem niður að Berghyl geng ég varlega fram á bergið og skyggnist um. Jú, þarna eru nokkrir laxar og hefir þeim sýnilega fjölgað frá því daginn áður, og lágu 3 nokkuð neð- arlega. Ég beiti í skyndi, vind töluvert af línunni upp í hönk og kasta. Það tekst vel og heituna ber niður að löxunum þremur. Einn tekur sig út úr, þýtur upp í vatnsskorpuna og grípur beituna og stingur sér um leið til botns. Ég gef eftir og gef honum góðan tíma, tek svo í og virtist hann vel fastur á. Ég þreytti liann um stund þarna ofan af berginu. Svo fór ég áð færa mig niður eftir bakkanum þar til ég komst niður að ánni og gat landað. Þetta var falleg hrygna, nýgengin. Ég brá henni á viktina og reyndisti liún 10 pund, svo leit ég á klukkuna og vant- aði hana þá fimm mínútur í hálf ellefu. Ég hafði staðið nákvæmlega við orð mín, sem ég hafði látið falla í glensi við félaga minn. Ég fór upp á bergið aftur og renndi með sömu aðferð og setti í annan lax, en hann var ekki nema 5 pund. Þegar ég var nýbúinn að landa honum kom félagi minn og hafði ekki orðið var. Svo renndi liann þarna og veiddi tvo laxa 9 og 10 punda, livorn á eftir öðrum. Þá var klukk- an að ganga eitt, svo við fórum heim í tjaldstáð til að fá okkur að borða, því við höfðum ákveðið að fara niður að ósi til að veiða bleikju og auðvitað að renna fyrir lax í leiðinni. Við komum ekki úr þeirri lerð fyrr en klukkan sjö um kvöld- ið, með nokkrar bleikjur og einn lax. Við vorum orðnir þreyttir og svangir, borð- uðum því vel og hvíldum okkur og fór- um svo að reikna saman hvað við værum búnir að veiða marga laxa yfir tímann, og varð útkoman 69 laxar. Var það ágæt veiði, tæpir 7 laxar á dag á tvær stengur. Við ræddum uin það, að nú væri gaman að fá einn í viðbót, svo að betur stæði á tölunni. „Það er þitt að veiða hann,“ segir félagi minn, „því ég er búinn að draga 38 laxa, en þú ekki nema 31, svo Veiðimaðurinn 9

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.