Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Page 21

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Page 21
ur með ánni til áð reyna að stöðva laxinn, því mér sýndist hann ætla beint til sjáv- ar, en það var stíf þingmannaleið. Sá ég honum bregða fyrir öðiu hvoru, þar sem liann öslaði niður ána, en allt í einu stanzaði hann og' lagðist milli steina. Þegar ég leit við sá ég að Halldór var að landa laxi nokkru ofar. Ég hafði þá verið að elta vitlausan fisk, og ég var víst ekki sérlega gáfulegur á svipinn, þegar Halldór spurði, hvort ég væri að smala fyrir Miðfirðinga. En sá hlær bezt sem síðast hlær. Þegar ég var búinn að kasta mæðinni fór ég að renna fyrir laxinn, þó ég teldi það vonlítið, en viti menn, hann var ekki fyrr búinn að sjá beituna en liann gleypti liana ofan í kok og eftir stutta stund lá hann á bakkanum spik- feitur og silfurgljáandi. Þetta voru 10 pd. fiskar, báðir lúsugir. Og þeir hafa víst verið svangir eftir ferðina norðan úr íshafi á vit æskustöðvanna, þar sem þeir mættu örlögum sínum af hendi liinna viðsjálu veiðintanna. Við héldum til baka niður með ánni og renndunt á nokkrum stöðum, en urðum ekki varir, enda vor- um við ánægðir nreð þetta. Ekki hafði Guðni fengið fisk í Vesturánni og var hann öngulsár þetta kvöld. Það varð þó ekki til að spilla matarlystinni, enda eru víst fáir jafn gráðugir og veiðimenn, sent koma þreyttir heiin að kveldi. Eftir að hafa skipuiagt herför næsta dags, var lagzt til svefns. Og mig var að dreyma laxa á stærð við háhyrning, og tófur á stærð við veturgamalt tryppi. Næsta morgun var ákveðið að ég færi með Guðna í Austurá, en Halldór átti að fiska á heimavígstöðvunum. Var honum m. a. falið að vei'ða mátulega stóran lax í rnatinn, og þá gátum við verið vissir um að þurfa ekki að svelta þann daginn. Við Guðni lögðum nú af stað, en vor- um ekki komnir langt áleiðis, þegar hann tók viðbragð svo hart að bíllinn var nærri kominn út í skurð. Þegar ég spurði hverju þetta sætti kom það í ljós, að liann hafði gleymt laxapokanum heima í veiðihúsi. Var það heljar mikið ílát með burðarólum og alls konar tilfæringum. Var ekki við annað komandi en sækja pokann, þó ég teldi það óþarfa, þar sem hann hefði alla putta heila til að bera nreð, ef hann fengi þá bröndu, og auk þess ólánsmerki að dragast með stóran poka í veiðiferðum. Lcksins komumst við þó alla leið upp að Kambsfossi, sem er efsti veiðistaður í Austurá. Varð Guðni þar eftir og ætlaði að ganga niður nreð ánni að Laxapolli, sem er nálægt miðju gljúfrinu. En þar átti ég að skilja bílinn eftir og veiða niður nreð ánni, að ármótum Núpsár.Var ég kominn þangað kl. 11 með 14 pd. lax, sem ég fékk í hyl, senr Kerling lieitir, og lrafði ég hvergi séð fisk nema þar. Ég flatmagaði nú þarna á bakkanunr, lrvíldi nrín lúnu bein og beið eftir Guðna. Þegar klukkan var að verða 12, kom hann þeysandi á gandreiðinni og þegar ég sá sælusvipinn á andliti hans, þurfti ég ekki að spyrja hvort lrann lrefði veitt. Var lrann kominn þarna með fulla skjóðuna miklu, 6 stórlaxa 11 til 14 pd. að þyngd. (Hefði ég ekki viljað bera þá langt í berum lúkunum). Taldi Guðni að það lrefði verið hin mesta þrekraun að bera veiðina í bílinn og var r sjöunda lrinrni, éða vel það, yfir afreki sínu. En ég lrafði við orð að Halldór nrætti fara að Veiðimaðurinn 17

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.