Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Síða 44

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Síða 44
JÓN SVEINSSON; Tveir á í einu. Kæri ritstjóri! Þar sem þú í blaðinu okkar Veiði- manninum, nr. 45, segist hafa heyrt sagt í’rá veiðimanni, sent hati veitt tvo laxa í einu, og óskar eftir að fá að heyra þá sögu, og ég hef tekið þetta til mín að nokkru leyti, þá skal ég gera tilraun til að segja frá atvikum. Eg var að veiðum í Laxá í Aðaldal dagana 19. til 27. júní. Veiðifélagarnir voru allir úr Reykjavík, gamlir og góðir félagar. Veiðigyðjan var svo hliðholl okkur, að kunnugir sögðu pokann, sem 5 voru í. Nú urðu þeir enn meira undrandi og þegar ég kom með þriðja pokann, þá urðu þeir steinhissa. „Nú, ég verð bara að sækja jeppann“, sagði bíleigandinn, og liann var þotinn. Eftir örskamma stund var liann kominn aftur og ókuin við veiðinni heim. Konan var lasin, en henni snarbatnaði, þegar hún sá veiðina. Nú voru allir í ljómandi skapi og ég \arð að segja alla ferðasöguna nákvæm- lega, sérstaklega um veiðina og viðbrögð fiskanna og allt í þvx sambandi. Ég sagði við strákana: „Þið eruð eins og Tómas, trúið ekki fyrr en þið þreifið á“. „Já, við áttum erfitt með að trúa, en í þetta skipti var allt satt sem þú sagðir“. Að endingu óska ég öllum veiðimönn- um góðrar vertíðar á komandi sumri. Sv. H. slíka veiði ekki hafa þekkst svo snemma sumars síðustu tvo áratugi, og fluttu Reykjavíkurblöðin rosa veiðifréttir af sumum úr liópi okkar. Ekki var þó dag- legur viðburður, að menn væru með tvo á í einu! Fuglalífið og náttúran var í blóma, veðrið gott, laxinn vænn og fáar innitafir; hver dagur leið með gleði og fuglasöng, og fannst víst flestum vikan sú sízt of löng. Daginn, sem ég festi í löx- unum tveim, vorum við félagarnir og þjáningabræður, ég og Helgi Eyjólfsson, að veiðum neðan við Æðarfossa, en þar var þá mest veiðivonin, eins og jafnan svona snemma sumars. Eftir að hafa reynt í Bjargarstrengnum og kastað á Breiðuna, fórum við á bátnum yfir ána, og gekk það vel, nerna hvað báturinn rakst á stein, sem okkur láðist að krækja fyrir, og misstum við bara eina ár við það tækifæri. Varaárin dugði okkur það sem eftir var yfir ána án þess að nokkuð sögulegt gerðist; þó brá mér í brún, þegar við tókum land og Helgi vildi bjarga bátnum á þurrt, en sökk þá í sandbleytu, sem þarna var. Ekki kom þetta samt að sök, því Helgi var vel búinn að neðan, og tókst okkur með sameiginlegu átaki að losa liann úr þessum leiðu faðmlögum. Heilsuðum við upp á Kistukvíslina og fórum því næst á bátnurn yfir í hólm- ann. Nokkru síðar lá leið mín að Mið- fossinum svokallaða. Ekki finnst mér það 40 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.