Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 47

Veiðimaðurinn - 01.03.1959, Side 47
huga þær nánar. Svo er annað, sem allir vita, að litlítil fluga reynist bezt á drunga- Jegum degi og Ijjört fluga á sólbjörtum degi. Einnig er gul eða gyllt fluga góð í gruggu'ðu vatni. Og samkvæmt öllu því, sem sagt hefur verið hér á undan, myndi flugnauppskriftin liljóða þannig: 1. Thunder and Lightning: Afbragðs fluga á drungalegum degi og í skoluðu vatni. Einnig Black Doctor og Jock Scott (8/0—2/0). " 2. Silver fíoctor, Crosfield og aðrar silfurleggjaðar flugur eru viðurkenndar beztar á sólbjörtum degi. (5/0—2^0—2). 3. Á björtum degi, þegar vatnið er að lireinsast eftir mikið regn þykja Torrish, fíusty Miller og Mar Lodge góðar flug- ur. (5/0—2/0—2). Auk þess er Blue Charrn ágæt vorfltiga og jafnbezta bláa flugan sent maður notar bæði í lrjörtu og skýjuðu. SnilJingarnir viðurkenna, að þegar liiti vatnsins fer mikið niður fyrir 10 stig breytist háttarlag laxins mikið. Ef vatnið er lieitara en þetta, og þá jafnframt gert ráð fyrir að loftliiti sé meiri en vatnsins, þá lítur laxinn sjaldan við stórri flugu, sem sekkur djúpt, en rís eftir lítilli, létt- klæddri flugu, sem sekkur lítið. Margar flugur ltafa verið tilnefndar sem hinar einu réttu, en þar lield ég að veiðimað- urinn geti leyft sér öllu frjálsara val. Þó eru Blue Cliarm og Logie þær sem reynzt liafa jafn bezt. Flestum kemur saman um að stærðin sé miklu meira áríðandi Jield- ur en tegundin. Wood hélt alltaf mikið upp á March Brown og líkist liún all- mikið rækju. Hann fiskaði á þessa flugu þar til allar fjaðrir voru farnar, og jafn- vel eftir það. Hann sagði alltaf að það væri stærðin sem máli skipti. Með þessar flugur allar í fluguboxinu getur hver veiðimaðQr verið ánægður. Það myndi ég einnig vera — það er að segja, þangað til ég frétti að Jón Jónsson hefði veitt lax á einhverja flugu, sem áður var óþekkt. Þýtt og endursagt af SAI.AR. Verðlaunabikar Stangaveiðifélags Borgarness. A ÁRSHÁTÍÐ félagsins 1957 gaf Al- bert Erlingsson, kaupmaður í Reykjavík, mjög myndarlegan verðlaunabikar til árlegrar keppni innan Stangaveiðifélags Borgarness, og skal veita hann fyrir stærstan fluguveiddan lax. Fer verðlauna- VlIÐIMAÐURI.NN 43

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.