Fréttablaðið - 09.03.2023, Síða 6
Síðustu lögin í Eurovision-
riðli okkar voru kynnt í
gærkvöldi. Flestir Eurovision-
spekingar eru sammála um að
fyrri riðillinn sé mun sterkari
en sá sem Diljá keppir í. For-
maður FÁSES segir Diljá eiga
að fljúga inn á úrslitakvöldið
og að landsmenn geti farið að
skipuleggja gott partí.
benediktboas@frettabladid.is
Eurovision „Ég held að það sé
nánast öruggt að við förum í úrslitin
og upp úr þessum riðli,“ segir Ísak
Pálmason, formaður Félags áhuga-
fólks um Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva (FÁSES).
Síðustu lögin í síðari riðli Euro-
vision, þar sem Diljá keppir, voru
kynnt í gærkvöld. Armenía og
Georgía kynntu þá sín lög og er Ísak
sammála Eurovision-spekingum
um að fyrri riðillinn sé mun sterk-
ari. Þar keppa meðal annars Finnar,
Svíar og Norðmenn, sem öllum er
spáð góðu gengi.
„Ég myndi alveg segja að við
værum með eitt af sterkari lögunum
í okkar riðli. Það er enginn augljós
sigurvegari en það kæmi mér lítið
á óvart ef Diljá yrði í topp þremur í
undankeppninni,“ segir Ísak fullur
bjartsýni.
Ísak segir að lagið Power hafi
fengið góða dóma úti í hinum stóra
Eurovision-heimi. Sérstaklega í Bret-
landi. „Þar hafa verið góð viðbrögð
og sagt meðal annars að lagið henti
vel inn í tónlistarsenuna þar í landi
og því er spáð að það verði tekið vel
undir í höllinni með henni.“
Hann bendir á að Íslendingar hafi
orð á sér fyrir að velja góða flytjend-
ur. „Við stöndum okkur vel undir
pressu og flytjendur eru mjög góðir
í að taka þátt í Eurovision-leiknum
sem fylgir. Það er vel haldið utan um
þá enda er bilað álag að vera ofur-
stjarna í tvær vikur,“ segir hann.
Eins og veðbankar standa núna
er Svíum spáð sigri þrátt fyrir að
vera ekki búnir að velja lag. Ísak
bendir á að það sé samt ekkert gott
að vera spáð sigri svona snemma og
tekur dæmi frá 2014 þegar Conc-
hita Wurst kom, sá og sigraði þvert
á spár og 2017 var keppnin nánast
formsatriði fyrir Ítali en Portúgal-
inn Salvador Sobral söng sig inn í
hjörtu Evrópubúa. „Núna er staðan
þannig að allt getur gerst.
Það er erfitt að toppa of snemma
því það er svo margt sem getur gerst.
Það kæmi mér ekkert á óvart ef sig-
urinn yrði finnskur í vor. Ég held að
það sé gott fyrir Eurovision-aðdá-
endur að bóka Finnland á næsta ári
missi fólk af Liverpool,“ segir Ísak en
Finnar senda lagið Cha cha cha. n
Það kæmi mér lítið á
óvart ef Diljá yrði í
topp þremur í undan-
keppninni.
Ísak Pálmason,
formaður FÁSES
gar@frettabladid.is
Tyrkland Stjórnarandstaðan í Tyrk-
landi sem oftast er sundruð hefur
sameinast um einn frambjóðanda í
forsetakosningum í maí.
Kemal Kilicdaroglu, sem er 74 ára
og leiðir stærsta veraldlega stjórn-
málaflokk Tyrklands, verður leiðtogi
Þjóðarbandalagsins sem sex helstu
stjórnarandstöðuflokkarnir hafa
myndað. Þjóðarbandalagið heitir
því að vinda ofan af stefnu Erdogan
Tyrklandsforseta í mannréttinda-
málum, efnahagsmálum og utan-
ríkismálum.
Skoðanakannanir gefa til kynna
jafnar kosningar þann 14. maí sem
einkennast munu af tveggja ára-
tuga einræði í valdatíð Erdogan.
Forsetinn stendur nú andspænis
sinni stærstu áskorun hingað til
í skugga óðaverðbólgu, meintrar
óstjórnar í efnahagsmálum og
reiði almennings vegna viðbragða
stjórnvalda við stóru jarðskjálft-
unum sem kostuðu yfir 45 þúsund
mannslíf í Tyrklandi. n
Hyggjast vinda ofan
af stefnu Erdogan
Fylkingin gegn Erdogan
Nýtt bandalag stjórnarandstæðinga Erdogan Tyrklandsforseta heitir því að
vinda ofan af stefnumálum hans í kosningum sem margir telja að muni verða
þær afdrifaríkustu í 100 ára sögu lýðveldisins.
Kemal Kilicdaroglu, 74 ára,
formaður stærsta veraldlega
stjórnarandstöðuokksins,
Lýðveldisokks fólksins.
Valinn af sex okka
Þjóðarbandalaginu til að
bjóða sig fram á móti
Recep Tayyip Erodogan,
69 ára, í forsetakosningum í maí.
MEGINLOFORÐ ÞJÓÐARBANDALAGSINS
Heimild: Reuters, Bloomberg Myndir: Getty © GRAPHIC NEWS
Snúa a£ur til þingræðis og
endurvekja stöðu forsætisráðherra.
Forsetaembættið verði eingöngu
táknrænt og eitt sjö ára kjörtímabil.
Réttur þjóðþingsins til að draga
Tyrkland út úr alþjóðasamningum
verði bundinn í stjórnarskrá.
Ljúka ferli að fullri aðild að
Evrópusambandinu.
Treysta sambandið við Bandaríkin
og ea gagnkvæmt traust.
Endurvekja F-35
orrustuþotuverkefnið.
Halda sambandi við Rússland
á grunni jafnræðis.
Endurreisa sjálfstæði dómstóla
sem nú eru taldir lúta stjórn
Erdogan.
Tryggja að dómstólar innleiði úrskurði
bæði stjórnlagadómstólsins og Mann-
réttindadómstóls Evrópu hratt og vel.
Styrkja tjáningarfrelsi og tryggja að
gæsluvarðhald í aðdraganda
réttarhalda verði eins stutt og unnt er.
Lækka verðbólgu, sem var 55% í febrúar,
niður í eins stafs tölu á næstu tveimur
árum. Endurvekja stöðugleika tyrknesku
lírunnar sem hefur tapað 80% af
verðgildi sínu á síðustu ªmm árum.
Endurvekja sjálfstæði seðlabankans.
Draga úr valdi ráðuneyta, svo sem
til að tilnefna ríkisstjóra.
UTANRÍKISSTEFNA LAGALEGAR UMBÆTUR
STJÓRNMÁLAKERFI EFNAHAGSMÁL
Hægt að fara að plana partí
því að Diljá er örugg áfram
bth@frettabladid.is
MývaTnssvEiT Talið er að hellirinn
undir Jarðböðunum við Mývatn
liggi í 8.000 ára gömlu hrauni.
„Það er í raun fordæmalaust í
þessum aðstæðum að hellisop opn-
ist og finnist við byggingarfram-
kvæmdir,“ segir Daníel Már Jónsson,
sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun.
Engir verkferlar eru til um hvern-
ig skuli bregðast við þegar hellir
finnst á framkvæmdasvæði. Því er
úr vöndu að ráða en Daníel mun á
morgun leggja leið sína niður í hell-
inn, sem starfsmenn Jarðbaðanna
hafa kallað Jarðbaðshelli. Hellirinn
verður kortlagður og verndargildi
hans metið.
Ef hraunstrá eða annað viðkvæmt
finnst kann að vera að umferð um
hann verði ekki leyfð almenningi.
Á hinn bóginn vinnur með
vonum almennings um að fá notið
náttúruvættisins hve langur, hár og
víður hann er, að sögn Daníels.
Ómögulegt er á þessu stigi að
segja til um heildarlengd hellisins.
Forskoðun starfsmanna Jarðbað-
anna bendir til að hann gæti verið
allt að 200 metra langar.
Hellirinn liggur undir öll mann-
virki Jarðbaðanna. Hrein tilviljun
varð til þess við jarðvegsfram-
kvæmdir verktaka vegna nýbygg-
inga að starfsmaður sá hellisopið
opnast skammt frá útiklefum bað-
anna við rask á jarðvegi.
„Þetta er einstakur fundur, ég
held að aldrei áður hafi hraunhellir
fundist við svona aðstæður,“ segir
Daníel. n
Fordæmalaus fundur fornhellis
Fundur hraunhellisins er jafnvel enn
merkari en fyrst var talið.
Mynd/Aðsend
Síðari riðill Eurovision
Land Flytjandi
Armenía Brunette
Belgía Gustaph
Kýpur Andrew Lambrou
Danmörk Reiley
Eistland Alika
Grikkland Victor Vernicos
Ísland Diljá
Rúmenía Theodor Andrei
Albanía Albina & Familja
Kelmendi
Ástralía Voyager
Austurríki Teya and Salena
Georgía Iru Khechanovi
Litáen Monika Linkytė
Pólland Blanka
San Marínó Piqued Jacks
Slóvenía Joker Out
Diljá mun stíga á stokk í Liverpool 11. maí og á að fljúga inn í úrslitin. Úrslitakvöldið fer svo fram laugardaginn 13. maí.
Mynd/MuMMi Lú
6 Fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 9. mARs 2023
FiMMtUDAGUr