Fréttablaðið - 09.03.2023, Page 9
Þann hagnað má
nánast allan rekja til
stóriðjunnar. Þetta eru
öflug fyrirtæki sem eru
styrkar stoðir í sam-
félögunum.
Ég held hins vegar að
þessar sterku atvinnu-
greinar, ferðaþjónustan
og orkuvinnslan, styðji
hvor aðra.
Við Íslendingar þurfum að
tvöfalda orkuvinnslu okkar í
tengslum við orkuskiptin og
heimurinn þarf að áttfalda
vinnslu endurnýjanlegrar
orku á svæðum sem ekki búa
yfir sömu náttúruauðlindum
og finnast hér á landi, segir
Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar.
olafur@frettabladid.is
Landsvirkjun hefur lækkað skuldir
um 70 prósent frá 2010 ásamt því að
reisa fjórar virkjanir. Hörður Arnar-
son, forstjóri Landsvirkjunar, segir
fyrirtækið vera á ákveðnum kafla-
skilum og geta nú farið að skila
meiru til þjóðarinnar í gegnum arð-
og skattgreiðslur.
Hörður var gestur í Markaðnum
á Hringbraut í gærkvöldi. Hann
sagði að lagt yrði til við aðalfund
fyrirtækisins að 20 milljarðar verði
greiddir í arð til ríkisins. Greiðslur
til eigandans, ríkisins, á þessu ári
muni því nema alls um 50 milljörð-
um þar sem Landsvirkjun greiði um
30 milljarða í skatta. Þessi heildar-
fjárhæð er nálægt því að vera fimm
prósent af heildartekjum ríkisins á
þessu ári.
Hörður segir skattgreiðslur
Landsvirkjunar á þessu ári vera
óvenju háar vegna sölu Landsnets á
síðasta ári. „Við erum stolt af því að
skila þessu til þjóðarinnar.“
Skuldahlutfall Landsvirkjunar
hefur lækkað mikið frá árinu 2010.
„Þegar við lögðum af stað 2010
var fyrirtækið mjög skuldsett,
skuldahlutfallið var um 12 sinnum
EBITDA, og það var bara mjög erfitt
að fjármagna fyrirtækið. Við stefnd-
um að því að koma þessu undir þrjá
en gerðum gott betur, fórum niður
í 1,85 sinnum EBITDA um síðustu
áramót sem er mjög sambærilegt
við það sem gerist hjá mjög sterkum
orkufyrirtækjum í Skandinavíu,“
segir Hörður.
Bæði spara og virkja
Ekki veitir af sterkri fjárhagsstöðu
þar sem fram undan eru mikil verk-
efni, meðal annars tengd orkuskipt-
unum.
„Þjóðin er í dag að nota um millj-
ón tonn af olíu á hverju ári sem við
flytjum inn. Þessi orka er framleidd
með mjög óumhverfisvænum hætti
annars staðar, veldur mikilli losun
á gróðurhúsalofttegundum. Stjórn-
völd hafa gert skuldbindingar um
að hætta að nota jarðefnaeldsneyti,
auk þess sem það er pólitískt mark-
mið. Til að mæta því þarf umtals-
vert magn af orku. Mikilvægt er
að spara orku og margt er hægt að
gera,“ segir Hörður.
„Við þurfum að breyta neyslu-
venjum okkar líka til að draga úr
orkunotkun, en það breytir ekki
verkefninu, sem er að það þarf um-
talsvert magn af endurnýjanlegri
orku. Út frá þróun tækni má velta
fyrir sér hversu mikið við þurfum
en það breytir því ekki að við
verðum að leggja af stað út frá þeim
möguleikum sem við höfum, út frá
þeirri þörf sem samfélagið hefur og
við þurfum að fá þverpólitíska sátt
um það eins og við sjáum í flestum
nágrannalöndum okkar.“
Um þau sjónarmið að ekki sé þörf
á frekari virkjunum vegna þess að
næg orka sé til í landinu, einungis
þurfi að loka stóriðju hér á landi,
hefur Hörður þetta að segja:
„Ég er ósammála þessu. Í fyrsta
lagi má benda á að Landsvirkjun var
með hagnað af undirliggjandi starf-
semi upp á 45 milljarða á síðasta ári.
Þann hagnað má nánast allan rekja
til stóriðjunnar. Þetta eru öf lug
fyrirtæki sem eru styrkar stoðir í
samfélögunum.“
Hörður bætir því við að þessi
fyrirtæki séu með langtímasamn-
inga sem beri að virða. „Ég held
líka, ef við horfum út frá samfélags-
legri ábyrgð, að það að flytja fram-
leiðslu annað til að losa orku fyrir
orkuskiptin, ef allar þjóðir hugs-
uðu svona, leysum við ekki lofts-
lagsvána.
Við höfum góð tækifæri til orku-
vinnslu. Það er mikil sátt um orku-
vinnsluna á Íslandi og stóriðjan er
hluti af framtíðinni. Stóriðjan mun
hins vegar loka einhvern tímann,“
segir Hörður, „það er alveg ljóst.
Sagan segir okkur að allar verk-
smiðjur sem eru byggðar munu
loka á endanum. En það er ákvörð-
un eigendanna sem þarf að vera út
frá almennum rekstrarskilyrðum í
landinu. Við getum ekki, samkvæmt
lögum, sett einhverjar íþyngjandi
reglur um að selja einhverju einu
fyrirtæki ekki orku. Slíkt stenst
ekki alþjóðalög, enda er það mjög
óskynsamlegt viðskiptalega, sam-
félagslega og umhverfislega.“
Hörður segir að þótt talað sé
um stóriðjuna sem hér starfar
sem alþjóðleg fyrirtæki séu þetta
einfaldlega íslensk fyrirtæki sem
starfa hér á landi þó að þau séu í eigu
erlendra aðila. „Þarna finnst mér
pólitíkin þurfa að marka stefnuna.
Ég hef ekki hitt neinn stjórnmála-
mann sem sér þetta sem hluta af
lausninni.“
Sátt um starfsemina
Niðurstöður nýlegrar skoðana-
könnunar, sem Landsvirkjun fól
Gallup að gera um afstöðu fólks til
fyrirtækisins, orkuvinnslu og virkj-
ana, voru kynntar á ársfundinum í
fyrradag.
Hörður segir Landsvirkjun hafa
lagt mikla áherslu á það í sinni
vegferð að auka sátt um starfsemi
fyrirtækisins með mjög öf lugri
upplýsingagjöf og með því að
hlusta á samfélagið og taka tillit til
sjónarmiða í nærsamfélögum. „Við
finnum mjög sterkan meðbyr með
fyrirtækinu og það endurspeglast í
þessum könnunum, bæði það sem
gert var á landsvísu og ekki síður
þegar við horfum til nærsamfélag-
anna þar sem mælist gríðarlega
sterkur stuðningur við virkjan-
irnar. Almennt er um 80 prósenta
stuðningur og á bilinu 2–5 prósent
neikvæð og nálægt 15 prósentum
sem hafa ekki skoðun. Við erum
mjög stolt af þessum niðurstöðum
en teljum okkur líka hafa lagt inn
fyrir þeim.“
Nú hefur komið í ljós að erlendir
ferðamenn hafa mikinn áhuga á
vinnslu grænnar orku hér á Íslandi
og eru mjög jákvæðir gagnvart
henni.
„Við höfum alltaf fundið mikinn
áhuga ferðamanna á orkunni okkar
og orkukerfinu okkar og aðdáun á
því hvernig við Íslendingar höfum
þróað okkar orkukerfi, húshitun
og raforkuframleiðsluna. Það eru
aðilar sem hafa haldið því fram að
við þurfum að velja milli frekari
orkuvinnslu og hvort við fáum
ferðamenn,“ segir Hörður.
„Þessi sjónarmið hafa aldrei verið
studd með gögnum. Mér vitanlega
hafa ferðamenn aldrei verið spurðir
að þessu þannig að við ákváðum að
spyrja og fengum Gallup til að gera
það. Niðurstöðurnar voru mjög
afgerandi því að 99 prósent ferða-
manna eru mjög jákvæð gagn-
vart orkuvinnslunni og hún hefur
jákvæð áhrif á þeirra upplifun af
náttúrunni.“
Landsvirkjun er með gestastofur
fyrir ferðamenn á tveimur stöðum,
á Ljósafossi og við Kröflu. Hörður
segir þær vinsælar en upplifunin
felist ekki síður í því að koma og
keyra um svæðin og sjá mann-
virkin. „Flest okkar stærstu mann-
virki eru á hálendinu og eru hluti af
landslaginu þar, til dæmis stór uppi-
stöðulón.“
Hörður segir að vanda verði mjög
til verka og passa vel upp á hvaða
land er tekið undir orkuvinnslu.
„Ég vil alls ekki gera lítið úr því. Ég
held hins vegar að þessar sterku
atvinnugreinar, ferðaþjónustan og
orkuvinnslan, styðji hvor aðra.“
Nýlega gagnrýndi sveitarstjóri
Skeiða- og Gnúpverjahrepps það að
vegna reglna um úthlutun úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga geti fjárhags-
leg niðurstaða af virkjunum orðið
neikvæð fyrir sveitarfélög þar sem
virkjað er.
Hörður segir Landsvirkjun hafa
átt í góðu samstarfi við Skeiða- og
Gnúpverjahrepp og f leiri sveitar-
félög í þessum efnum. „Við höfum
verið í greiningarvinnu með þeim
á þessum áhrifum. Svona heilt yfir
eru áhrif okkar mjög jákvæð á sveit-
arfélögin og við erum mjög stolt af
þeim gjöldum sem við greiðum
til þeirra. Við erum oft og iðulega
stærstu greiðendur opinberra gjalda
í þessum sveitarfélögum, auk þess
að vinna náið með þeim að inn-
viðauppbyggingu eins og vegagerð
og annað sem fer alveg saman. En
ég deili alveg sjónarmiðum sveitar-
stjórans. Það þarf að endurskoða
áhrif jöfnunarsjóðsins og ég veit að
innviðaráðherra er að gera það.“
Hörður segir jafnframt að Lands-
virkjun hvetji til þess að ákveðin
pólitísk stefnumörkun verði gerð.
„Nú höfum við verið að stækka kök-
una, stækka þann arð sem verður
eftir í samfélaginu. Þetta hefur allt
gerst í gegnum endursamninga við
stórnotendurna, við álfyrirtækin
og önnur stórfyrirtæki. Við höfum
tekið þann slag á síðustu tólf árum.
Þetta endurspeglast svo í sterkum
fjárhag Landsvirkjunar sem aftur
birtist í arðgreiðslum og skatt-
greiðslum til ríkisins. Við teljum
rétt að spyrja hver sé sanngjörn
skipting köku sem hefur stækkað. Er
ekki skynsamlegt að nærsamfélög
framkvæmdanna njóti meiri ávinn-
ings í ljósi þessarar breyttu stöðu?
Mín persónulega skoðun er að þau
eigi að gera það,“ segir Hörður.
Hann segir pólitíska stefnumörk-
un verða að eiga sér stað í þessum
efnum. „Lög um tekjustofna sveitar-
félaga eru mjög ströng. Við megum
ekki greiða sveitarfélögum þótt við
viljum. Fyrir því þarf að vera lög-
bundið leyfi. En þetta er pólitísk
stefnumörkun. Þetta er líka byggða-
stefna. Ef við ætlum að fara í þessa
vegferð með orkuskiptunum þá
þurfum við stuðning nærsamfélaga.
Við höfum tækifæri til að gera þetta
vel og ég deili þeim sjónarmiðum
sveitarstjórans, í ljósi þess að stærri
kaka er til skiptanna núna, að það
sé skoðað.“
Tvöföldun vinnslu í orkuskiptin
Hörður segir alla heimsbyggðina
þurfa að gera átak í tengslum við
orkuskiptin. Alþjóðaorkumála-
stofnunin telji að það þurfi að átt-
falda endurnýjanlega orkuvinnslu
í heiminum.
Spurður um það hve mikið við
Íslendingar þurfum að auka orku-
vinnslu okkar vegna orkuskiptanna
segir Hörður þetta í raun vera tví-
skipt. Annars vegar sé það sem við
berum ábyrgð á, landsskuldbind-
ingar sem tengjast samfélagslosun.
Þar sé um að ræða innan lands-
akstur, fiskiskipin og innanlands-
flug. Hins vegar séu millilandasigl-
ingar og -flug sem ekki sé á ábyrgð
Íslendinga, heldur í svokölluðu ETS-
kerfi. Hvor hluti fyrir sig sé um það
bil átta teravattsstundir.
„Heildarorkuvinnslan hjá okkur
í dag er um það bil 20 teravatts-
stundir þannig að þetta tvennt
slagar upp í þá orkuframleiðslu
sem við erum með í dag. Það geta
orðið tækninýjungar sem draga úr
orkuþörf en að mínu mati ættum
við að miða við í langtímastefnu-
mótun að tvöfalda orkuvinnsluna.
Það þarf hins vegar ekki að gerast á
næstu tíu árum einfaldlega vegna
þess að tæknin í orkuskiptunum er
ekki til staðar. Mikil þróun þarf að
eiga sér stað, sérstaklega í f luginu
sem er um helmingur af þessum 16
teravattsstundum. Kostnaður við að
gera rafeldsneyti er mjög hár og er
kominn skammt á veg.
Síðan getum við alltaf endur-
skoðað. Langtímasýnin um hvað
við þurfum er út frá bestu upp-
lýsingum í dag. Það mun örugg-
lega verða endurskoðað, vonandi
til lækkunar ef við finnum leiðir til
þess að nota minni orku. En í dag
ættum við að horfa til tvöföldunar.
Á sama tíma þarf heimurinn að átt-
falda sína orkuvinnslu á svæðum
sem hafa ekki sömu náttúruauð-
lindir og við.“ n
Vill sanngjarnari skiptingu stærri köku
Nær allir erlendir ferðamenn eru jákvæðir gagnvart orkuvinnslunni hér á landi og líta á orkumannvirki sem hluta
þeirrar náttúru sem þeir sækjast eftir. Orkuvinnslan styður við ferðaþjónustu. MYND/LANDSVIRKJUN
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að miðað við núverandi að-
stæður þurfi að tvöfalda orkuvinnslu hér á landi í tengslum við orkuskiptin.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Fréttablaðið markaðurinn 99. mars 2023
FimmTuDaGur