Fréttablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 9. mars 2023
Búðin sem hefur brotið blað
í tískusögu landsins í tólf ár
Tískuverslunin Curvy fagnar tólf ára afmæli og býður í afmælisveislu um helgina. Versl-
unin sérhæfir sig í því að bjóða upp á falleg og vönduð tískuföt í fjölbreyttum stærðum. 2
Starfsfólk verslunarinnar leggur mikla ástríðu og metnað í að þjónusta og hjálpa viðskiptavinum. Á myndinni frá vinstri eru: Inga, Elísabet, Birta og Ingunn.
Fréttablaðið/Eyþór Árnason
thordisg@frettabladid.is
Áberandi „eyeliner“ er eitt af
tískutrendum ársins, samkvæmt
tískubiblíunni Vogue. Kattaraugu
eru enn og aftur í tísku, þegar
augnblýantur er sveigður upp til
hliðanna við enda efra augnloks,
en nú má gera gott betur og draga
þykkan augnblýant út frá neðri
augnkróknum líka þar sem hann
sameinast línunni á augnlokinu.
Þessi aðferð kallast „siren eyes“ og
hefur verið einkar vinsæl á TikTok
þar sem hún er sýnd af mörgum
flinkum í förðun. Útkoman getur í
senn orðið rómantísk í anda gotn
eskra tískustrauma eða svolítið
lifuð og sjúskuð í anda „grunge“
tískunnar. Í dag eru nýjustu augn
blýantarnir orðnir viðráðanlegri
en áður, það er auðveldara að beita
þeim og lúkkið helst lengur eftir
alla fyrirhöfnina.
Andlitsskart er flott við
bót í förðun, hvort sem fólk vill
setja glitrandi steina í kringum
augnumgjörðina, stöku freknur
eða glitrandi munstur á andlitið.
Augabrúnir eru látlausari og
grennri en verið hefur og á tísku
pöllunum hefur færst í aukana
að fyrirsætur séu með aflitaðar
augabrúnir sem gerir þær næstum
gegnsæjar. Sumir áhrifavaldar hafa
gengið skrefinu lengra og rakað
augabrúnirnar af, sem er enn eitt
afbrigðið af tísku vors og sumars
og leggur enn meiri áherslu á fal
lega málaða augnumgjörð. n
Speglar sálar
Skrautsteinum prýtt andlit gefur glit
og glampa í augu. Fréttablaðið/GEtty
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is