Fréttablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 18
6 kynningarblað A L LT 9. mars 2023 FIMMTUDAGUR
Fína kryddið, Victoria
Beckham, sýndi glæsta
hönnun sína í annað sinn
á tískuvikunni í París sem
lauk á þriðjudag. Þar gengu
heimsfrægar ofurfyrirsætur,
eins og Irina Shayk og Adut
Akech, tískupallana og
sýndu fjölbreytta tískulínu
Victoriu fyrir haust og vetur
komanda.
thordisg@frettabladid.is
Að sýningu lokinni sagðist Vict
oria hafa orðið fyrir innblæstri frá
kvikmyndinni Grey Gardens. Var
kynningarefni fyrir haust og vetr
arlínuna unnið með bandarísku
leikkonunni Drew Barrymore sem
lék aðalhlutverkið í kvikmyndinni
árið 2009 en myndin er byggð á
samnefndri heimildarmynd eftir
bræðurna og leikstjórana Albert
og David Maysles frá árinu 1975. Sú
mynd fjallaði um heldri mæðgur
sem báðar hétu Edith Bouvier
Beale og voru náfrænkur forseta
frúarinnar Jackie Kennedy Onassis
en bjuggu einangraðar og í sárri
fátækt í niðurníddu höfðingja
setrinu Grey Gardens.
„Ég elska ríkulega litapallett
una í myndinni og hversu sér
vitur, heimspekilegur og tímalaus
stíllinn er,“ útskýrði Victoria á
Instagram.
Með fjölskylduna á bekknum
Smekkvísi Victoriu Beckham er
óumdeild. Fagurfræðin á bak
við hönnun hennar er þægilegur
glæsileiki sem hún sýndi og sann
aði með haust og vetrarlínunni í
París. Þar voru til staðar fastir liðir
sem einkenna stíl hennar, svo sem
rúllukragar, aðsniðnar skyrtur og
buxur sem liggja þétt að líkam
anum, en líka óvænt tvist eins og
eggjandi leður, gallaefni og lúxus
strútsfjaðrir á pilsum og drögtum.
Fataefni spiluðu líka stórt hlut
verk, eins og silkikjólar sem blöktu
með stórum og áberandi ermum.
Victoria virtist einnig undir áhrif
um 9. áratugarins, sýndi blazer
jakka og kjóla í yfirstærðum og
sumt var með herðapúðum.
Á fremsta bekk sátu stjörnu
blaðamenn tískuheimsins, Anna
Wintour, ritstjóri bandaríska
Vogue, og Edward Enninful,
ritstjóri breska Vogue. Einn
ig hennar ástkæri David
Beckham og þrjú barna
þeirra, þau Cruz og Harper
og Brooklyn með eigin
konunni Nicolu Peltz,
en Romeo var sá eini úr
fjölskyldunni sem ekki
var viðstaddur.
Victoria, sem
öðlaðist heims
frægð fyrir að vera
ein af stúlknasveit
inni Kryddpíunum
(e. Spice Girls),
stofnaði tísku
hús í eigin nafni
árið 2008 og selur nú
hönnun sína í 250 verslunum í
52 löndum. Árið 2019 bættist við
snyrtivörulínan Victoria Beckham
Beauty. n
Strútsfjaðrir,
silki og eitís hjá
Victoriu Beckham
Blá, skósíð buxnadragt með að-
sniðnum jakka og fölbláum fjöðrum.
Plíseraður, marglita
toppur á litríkum síð-
kjól sem skreyttur er
strútsfjöðrum.
Glæsilegur silkikvöldkjóll með
síðum ermum og opinn að framan.
Ferskjubleikur
síðkjóll með
slóða, púff-
ermum, slaufu
og perlum.
Ermar sem ná fram yfir hendurnar
verða áberandi hjá Victoriu í haust.
Victoria er þekkt fyrir ást
sína á rúllukrögum. Bux-
urnar eru með krókódíla-
mynstri og stígvélin í stíl.
Skósíður síðkjóll með strúts-
fjaðramynstri og síðum ermum.
Kóngablá rúllu-
kragapeysa við
hvítt, svart og
gultgrænt pils
sem er skreytt
með svörtum
strútsfjöðrum.
Eiturgrænn og eitursvalur einnar
ermar kjóll og netasokkarbuxur við.
Svört kápa við hvítan rúllukraga og
hvítar buxur með svörtum líningum.
Æðislegur svartur og ermalaus síð-
kjóll með opinni klauf fyrir veturinn.
Töff, grá rúllukragaprjónapeysa við
skósítt gallapils með fleginni klauf.
Eldrautt mínípils við
eldrauða prjónaða peysu
sem flaksar að aftan eins
og hluti af pilsi eða kápu.
Victoria Beck-
ham er annáluð
fyrir fágaðan
glæsileik eins
og sjá má frá ný-
liðinni tískuviku
í París.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY