Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Qupperneq 59
KVIMYNDIR
Um 1950 voru gerðar þrjár íslenskar
kvikmyndir um laxaklak og veiðiskap.
Þetta voru myndir Osvaldar Knudsen um
veiðiskap og veiðivötn, mynd Kjartans O.
Bjamasonar, sem hann gerði fyrir SVFR
um sama efni, og „Laxaklak“ mynd sem
Magnús Jóhannsson gerði um klakið í
Elliðaánum, en Fræðslumyndasafn ríkis-
ins var með hana til útlána um langt skeið
fyrir skóla og aðra.
Þá er vert að nefna fræðslumynd um
klak og fiskeldi, sem sýnd var í fræðslu-
þætti Sigurðar H. Richter í Sjónvarpinu.
Þá sýndi Stöð 2 upptöku með Rafni Hafn-
fjörð um veiðiskap, m.a. frá Hlíðarvatni,
en Rafn er þekktasti höfúndur listrænna
ljósmynda af veiðiskap og veiðiám í blöð-
um, tímaritum, kortum og almanökum.
Einnig var sýnd kvikmynd á Stöð 2 um
laxveiði í Selá í Vopnafirði.
Af myndböndum er að nefna útgáfú á
vegum Bergvík hf., sem látið hefur gera
myndbönd um Miðfjarðará, Laxá í Döl-
um, Laxá í Kjós, Vatnsdalsá og Elliðaár.
Auk þess hefur verið gert myndband um
Norðurá og Grímsá og Tunguá.
GAGNASÖFNUN
Að síðustu er ekki úr vegi að geta um
fyrirtækið Miðlun hf., sem stendur fyrir
gagnasöfnun. Það veitir þjónustu þeim,
sem vilja halda til haga blaðaúrklippum
m.a. efni um veiðimál sem birtist í tímarit-
um og blöðum. Sum dagblöðin eru með
sérstaka þætti, kennda við málefnið á síð-
um sínum, eins konar veiðihom, og hafa í
starfi kunnáttumenn sem sinna þessu sér-
staklega.
Hér að ffaman er tíundað það helsta
hvar opinber umijöllun um veiðimál hefur
farið fram og birt nöfn bóka og tímarita og
nefnt annað, þar sem fjallað er um veiði-
mál. Ritum frá fýrri öldum, þar sem fjall-
að er um veiðimál, er sleppt að þessu
sinni. En þar er af nógu að taka. Hætta er
við að eitthvað hafi orðið útundan í upp-
talningu þessari. Er þá beðið velvirðingar
á því. Slíkar upplýsingar eru vel þegnar.