Gerðir kirkjuþings - 2021, Side 13

Gerðir kirkjuþings - 2021, Side 13
13 er frjáls, frjór og skapandi vilji hvers atkvæðabærs einstaklings. Til þess að lýðræðið virki þarf leikborðið að vera einfalt og skýrt. Hið sama á við um aðrar samþykktir kirkjuþings. Starfsreglur og aðrar ákvarðanir sem teknar eru hjá kirkjuþingi sem hefur æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar þurfa að virka í raun veruleikanum. Það er talað um að einfalda regluverkið í kirkjunni en oft á tíðum er það ekki nógu lausnamiðað og skýrt þegar til á að taka. Það er brýnt að þau sem vinna eftir reglunum og með ákvarðanirnar geti það. Það er klókt að ræða við þau sem starfa á þeim grundvelli sem kirkjuþing ákveður. Það er meðal annarra starfsfólkið á biskupsstofu, fólkið í sóknarnefndunum og nefndunum mörgu sem starfa á vegum þjóðkirkjunnar. Heimurinn og jörðin Lítil veira hefur stjórnað lífi mannkyns undanfarin nærri tvö ár. Á vef Landspítalans má lesa eftirfarandi: „Alvarlegrar lungnasýkingar varð vart í borginni Wuhan í Kína í lok desember 2019. Síðar var staðfest að um óþekkt afbrigði kórónuveirunnar væri að ræða og sjúkdómurinn fékk heitið COVID-19. Veiran hefur sýkt fólk víða og leitt til margra dauðsfalla um allan heim. Heilbrigðisyfirvöld flestra ríkja standa fyrir víðtækum aðgerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar og lækna og hjúkra sjúkum, þar á meðal á Íslandi undir forystu almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, Embættis landlæknis og sóttvarnalæknis.“ Eins og aðrir stóðum við frammi fyrir mikilli áskorun í þjóðkirkjunni um það hvernig bregðast skyldi við þessum vágesti. Starfsfólk biskupsstofu hefur verið í nánu samstarfi við Landlæknisembættið varðandi viðbrögð okkar. Leitast var við að senda upplýsingar til presta, sóknarnefnda og fleira kirkjufólks eins fljótt og hægt var þegar nýjar reglugerðir tóku gildi. Samtals urðu bréfin 30. Þar sem kirkjustarf fer mikið fram í samfélagi fólks var vandi á höndum þegar samkomutakmarkanir voru miklar. Prestar, djáknar og starfsfólk sóknanna gerðu það sem hægt var í stöðunni, streymdu guðsþjónustum, sunnudagaskóla og öðru því efni sem hægt er að koma á framfæri á þann hátt. Þúsundir símtala voru tekin við fólk sem vitað var að yrði þakklát fyrir samtalið. Ég vil nota tækifærið og þakka fólkinu í kirkjunni, í söfnuðunum, prestaköllunum og prófastsdæmunum fyrir að standa vaktina í þessum óvenjulegu aðstæðum sem minntu okkur svo rækilega á að við erum öll á sama báti hvar sem við fæðumst hér á jörð og hvar sem við búum. Annað sameiginlegt málefni allra jarðarbúa eru umhverfis- og loftslagsmálin. Næsta föstudag verður málþing í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins hér í Reykjavík sem ber yfirskriftina „Öll á sama báti – Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðar.“ Fyrir málþinginu standa Stofnun Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnun Háskóla Íslands, í samvinnu við samráðsvettvanginn Faith for Nature, trú fyrir jörðina Þetta er ekki eini atburðurinn þar sem fólk kemur saman til að ræða þann mikla vanda sem mannkyn stendur frammi fyrir. Í fyrra var haldin í Skálholti netráðstefna sem leiðtogar um 15 trúarbragða sóttu. Þar var fjallað um á hvaða hugmyndagrunni mætti sameinast um að kalla eftir stofnun Heimsbandalags um trú fyrir jörðina í tengslum við Umhverfisstofnun Sameinuðu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.