Gerðir kirkjuþings - 2021, Blaðsíða 20
20 21
Jafnframt verði fundnar leiðir til að hrinda kolefnisjöfnuninni í framkvæmd, annað
hvort með þátttöku starfsfólks í skógrækt þar sem það á við eða samningi við fyrirtæki
sem taka líkt að sér (endurheimt votlendis sérstaklega). Stefnt er að því að verkefninu
„að kolefnisjafna yfirstjórn kirkjunnar“ verði hrint í framkvæmd sem hér segir: 2020
biskupsstofa, biskupsembætti. 2021 kirkjuráð, kirkjuþing. 2022 prófastsdæmi. Einnig
verði söfnuðum og starfsemi þjóðkirkjunnar gert kleift að kolefnisjafna starf sitt á þessum
jörðum líkt og nú þegar hefur verið lagt upp með í Skálholti.
Vegna frestunar kirkjuþings 2019 til september 2020, í ljósi heimsfaraldursins var
framkvæmd þingsályktunarinnar frestað en kirkjuráð samþykkti að fela umhverfishópi
kirkjunnar að vinna málið áfram í samráði við Umhverfisstofnun. Á 320. fundi kirkjuráðs,
3. desember 2020, var samþykkt beiðni umhverfishóps um tilfærslu fjármuna svo hægt
væri að fara í kolefnismælingu fyrir biskupsstofu og tvo söfnuði út árið 2021.
27. mál og 29. mál. Þingsályktun um undirbúning að stefnumótun fyrir þjóðkirkjuna.
Allsherjarnefnd, fjárhagsnefnd og löggjafarnefnd fjölluðu um 27. mál og 29. mál og
lögðu til að þau yrðu sameinuð í eitt mál og afgreidd þannig. Um var að ræða tillögu til
þings ályktunar um frekari stefnumótun þjóðkirkjunnar og tillögu til þingsályktunar um
gerð sviðsmynda fyrir þjóðkirkjuna. Kirkjuþing 2019 samþykkir að fela kirkjuráði að hefja
vinnu að undirbúningi að stefnumótun fyrir þjóðkirkjuna og ráða utanað komandi ráð-
gjafa/ ráðgjafafyrirtæki til að meta núverandi stöðu þjóðkirkjunnar varðandi skipulag,
rekstur og stjórnsýslu. Taka skal tilliti til þeirra breytinga sem kirkjan hefur gengið í
gegnum á síðastliðnum mánuðum og árum. Ásamt mati á núverandi stöðu skili ráð gjafi nn/
ráðgjafafyrirtækið af sér tillögum um með hvaða hætti þjóðkirkjan á að nálgast fram tíðarsýn
og heildar stefnumótun. Hafa skal að leiðarljósi þarfir og skyldur íslensku þjóð kirkjunnar,
sem er evangelísk-lútersk kirkja. Gerð verði verk- og kostnaðaráætlun um verkið.
Kirkjuráð samþykkti að fela dr. Bjarna Snæbirni Jónssyni að taka að sér undirbúning að
stefnumótun fyrir þjóðkirkjuna.
33. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um kosningu biskups Íslands og
vígslubiskupa nr. 333/2017, með síðari breytingum.
Tillagan laut að kosningarétti vígðra starfsmanna á biskupsstofu í föstu starfi en að
vígðir kennarar í föstu starfi við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands hafa
ekki lengur kosningarétt.
Auglýsing um breytinguna hefur verið birt í Stjórnartíðindum og starfsreglurnar verið
uppfærðar á vef kirkjunnar, kirkjan.is.
- Ályktanir og starfsreglur kirkjuþings 2020-2021.
1. mál. Skýrsla kirkjuráðs til kirkjuþings um störf sín.
Kirkjuþing þakkar framtíðarnefnd þeirri, sem kirkjuráð skipaði, þá vinnu sem henni
var falið að inna af hendi vegna viðbótarsamnings milli þjóðkirkjunnar og íslenska ríkisins.
Kirkjuþing þakkar stjórn Skálholts og öðrum sem koma að starfsemi og uppbyggingu
í Skálholti.