Gerðir kirkjuþings - 2021, Síða 41
41
Rekstrarkostnaður vegna kirkjuþings og kirkjuráðs er áætlaður tæpar 100 milljónir kr.
Áætlaður húsnæðiskostnaður þjóðkirkjunnar í Katrínartúni 4 er áætlaður tæp 75
milljónir kr.
Rekstrarkostnaður Tónskóla þjóðkirkjunnar lækkar á milli ára og er áætlaður 21,3
milljónir kr.
Verkefnatengdir kostnaðarliðir eru unnir í samræmi við verkefnaáætlun en aðrir liðir
hækka vegna verðlagsbreytinga.
Kirkjuþing afgreiddi skýrslu um fjármál Þjóðkirkjunnar-Biskupsstofu með eftirfarandi
þingsályktun:
Kirkjuþing 2021-2022 samþykkir fjárhagsáætlun kirkjunnar fyrir árið 2022.
Nefndarálit fjárhagsnefndar um skýrslu um fjármál Þjóðkirkjunnar-Biskupsstofu.
Fjárhagsnefnd hefur farið yfir tillögu að fjárhagsáætlun þjóðkirkjunnar fyrir árið 2022 og
hefur nefndin lagt til margvíslegar breytingar- og hagræðingartillögur sem birtast í þeirri
áætlun sem hér er lögð fram.
Sú fjárhagsáætlun sem lögð var fram á októberþingi kirkjuþings gerði ráð fyrir
rekstrarhalla upp á 465 milljónir. Ekki tókst að ná fram jöfnuði gjalda og tekna í
meðförum nefndarinnar, en með margvíslegum og oft sársaukafullum niðurskurði tókst
að ná rekstrahallanum niður í 175 milljónir. Fjárhagsnefnd bendir á að afar brýnt er að ná
jafnvægi í fjármálum Þjóðkirkjunnar og telur óhjákvæmilegt að því markmiði verði náð
á næstu tveimur árum. Er því beint til allra aðila sem koma að starfi kirkjunnar að gæta
ýtrasta aðhalds í fjármálum og leita allra leiða til hagræðingar. Einnig þarf að ljúka vinnu
við að endurskipuleggja rekstrarsvið kirkjunnar þannig að allt verklag og verkferlar verði
sem skýrast og þjóni þörfum kirkjunnar sem best.
Fjárhagsnefnd bendir á, að til þess að fjármagna þann hallarekstur sem fyrirsjánlegur er
á næsta ári þarf að eiga sér stað áframhaldandi hagræðing á fasteignasviðinu og jafnframt
einhver sala eigna. Nefndin bendir einnig á að mjög brýnt er, að þegar í stað verði farið
í þá vinnu að móta heildstæða eignastefnu þjóðkirkjunnar þannig að öll sala eigna og
hugsanlegar fjárfestingar verði samkvæmt skýrri eignastefnu. Í þessari vinnu ber þá líka
að skoða sérstaklega þá margvíslegu möguleika, sem fyrir hendi kunna að vera, til að auka
tekjur af eignum kirkjunnar, t.d. með samstarfi við aðra aðila.
Þá bendir fjárhagsnefnd einnig á, að nauðsynlegt er að endurskoða allt starfsmannahald
kirkjunnar og leita aukinnar hagræðingar í þeim efnum enda nema launagreiðslur u.þ.b.
77% af heildartekjum kirkjunnar. Vegna fyrirliggjandi fjárhagsstöðu er ljóst, að á árinu
2022 verður að leita allar leiða til að fækka stöðugildum starfsmanna Þjóðkirkjunnar. Er
því brýnt að þeirri skoðun á þjónustuþörf í grunnþjónustu kirkjunnar sem lögð er til í 22.
máli þessa þings verði unnin eins hratt og framast er unnt, þannig að sú heildarstefna sem
þar verður mörkuð nýtist sem best við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Fjárhagsnefnd bendir einnig á, að nýsamþykkt skipulag á yfirstjórn kirkjunnar, sem
innleitt verður um næstu áramót, mun væntanlega leiða til einhverra þeirra breytinga