Gerðir kirkjuþings - 2021, Side 56

Gerðir kirkjuþings - 2021, Side 56
56 57 8. gr. Hvar kosningarréttar og kjörgengis skuli notið. Prestur eða djákni sem uppfyllir skilyrði 3. gr. um kosningarrétt, nýtur réttarins og kjörgengis í því kjördæmi sem prófastsdæmi hans tilheyrir, sbr. 2. gr. Prestur eða djákni hjá íslenskum söfnuði þjóðkirkjunnar erlendis sem er í föstu og launuðu starfi sem slíkur og uppfyllir skilyrði 3. gr. um kosningarrétt nýtur réttarins og kjörgengis í Reykjavíkurkjördæmi. Þjónandi prestur eða djákni sem lýtur tilsjónar biskups Íslands og er í föstu og launuðu starfi á vegum stofnunar og/eða félagasamtaka hér á landi og uppfyllir skilyrði 3. gr. um kosningarrétt nýtur kosningarréttar og kjörgengis í því kjördæmi sem prófastsdæmi hans tilheyrir. Leikmaður sem uppfyllir skilyrði b-liðar 7. gr. er kjörgengur innan þess kjördæmis sem lögheimili hans er skráð í þjóðskrá, sbr. 2. mgr. 7. gr. Leikmaður sem uppfyllir skilyrði 4. gr. um kosningarrétt, nýtur réttarins innan þess kjördæmis sem sókn hans tilheyrir, sbr. 2. gr. 9. gr. Rafræn kjörskrá. Kjörskrá skal vera rafræn og annast kjörstjórn gerð hennar á grundvelli gagna frá Þjóðskrá Íslands og vinnsluheimilda þaðan ef við á. Kjörskrá skal vera aðskilin frá kosningarhluta kosningakerfisins og þar skulu koma fram upplýsingar um kjördæmi, nafn kjósanda, lögheimili, kennitölu og kyn. Á kjörskrá skal taka þá sem uppfylla skilyrði 3. og 4. gr., sbr. 6. gr. Kjörskrá skal hafa verið gerð þremur vikum áður en kosning hefst. Þegar kjörskrá hefur verið samin skal kjörstjórn auglýsa það á vefsvæði þjóðkirkjunnar og á öðrum fréttamiðlum. Í auglýsingunni skal tekið fram að þeir sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá skuli senda þær kjörstjórn. Eftir auglýsingu um gerð kjörskrár getur kjósandi kannað á þar til gerðu vefsetri hvort nafn hans er skráð á kjörskrá. Við aðgang að vefsetrinu er notuð almenn innskráningarþjónusta sem kjörstjórn ákveður, s.s. rafræn skilríki eða Íslykill Þjóðskrár Íslands. Kjörskrá skal enn fremur leggja fram á pappír kjósendum til sýnis á biskupsstofu og skrifstofum prófasta. 10. gr. Leiðréttingar á kjörskrá. Athugasemdir vegna kjörskrár skulu berast kjörstjórn eigi síðar en þremur sólarhringum áður en kosning hefst. Kjörstjórn skal þegar taka til meðferðar athugasemdir sem henni berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar á henni. Kjörstjórn skal í síðasta lagi gera leiðréttingar á kjörskrá, tveimur sólarhringum áður en kosning hefst. Ef kjörstjórn verður þess áskynja að villa hafi átt sér stað við kjörskrárgerðina skal slíkt leiðrétt. Óheimilt er að breyta kjörskrá ef skilyrði skv. 6. gr. hafa ekki verið uppfyllt fyrir þann tíma sem þar greinir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.