Gerðir kirkjuþings - 2021, Page 56
56 57
8. gr.
Hvar kosningarréttar og kjörgengis skuli notið.
Prestur eða djákni sem uppfyllir skilyrði 3. gr. um kosningarrétt, nýtur réttarins og
kjörgengis í því kjördæmi sem prófastsdæmi hans tilheyrir, sbr. 2. gr.
Prestur eða djákni hjá íslenskum söfnuði þjóðkirkjunnar erlendis sem er í föstu og
launuðu starfi sem slíkur og uppfyllir skilyrði 3. gr. um kosningarrétt nýtur réttarins og
kjörgengis í Reykjavíkurkjördæmi.
Þjónandi prestur eða djákni sem lýtur tilsjónar biskups Íslands og er í föstu og launuðu
starfi á vegum stofnunar og/eða félagasamtaka hér á landi og uppfyllir skilyrði 3. gr. um
kosningarrétt nýtur kosningarréttar og kjörgengis í því kjördæmi sem prófastsdæmi hans
tilheyrir.
Leikmaður sem uppfyllir skilyrði b-liðar 7. gr. er kjörgengur innan þess kjördæmis sem
lögheimili hans er skráð í þjóðskrá, sbr. 2. mgr. 7. gr. Leikmaður sem uppfyllir skilyrði 4. gr.
um kosningarrétt, nýtur réttarins innan þess kjördæmis sem sókn hans tilheyrir, sbr. 2. gr.
9. gr.
Rafræn kjörskrá.
Kjörskrá skal vera rafræn og annast kjörstjórn gerð hennar á grundvelli gagna
frá Þjóðskrá Íslands og vinnsluheimilda þaðan ef við á. Kjörskrá skal vera aðskilin frá
kosningarhluta kosningakerfisins og þar skulu koma fram upplýsingar um kjördæmi,
nafn kjósanda, lögheimili, kennitölu og kyn.
Á kjörskrá skal taka þá sem uppfylla skilyrði 3. og 4. gr., sbr. 6. gr. Kjörskrá skal hafa
verið gerð þremur vikum áður en kosning hefst.
Þegar kjörskrá hefur verið samin skal kjörstjórn auglýsa það á vefsvæði þjóðkirkjunnar
og á öðrum fréttamiðlum. Í auglýsingunni skal tekið fram að þeir sem vilja koma að
athugasemdum við kjörskrá skuli senda þær kjörstjórn.
Eftir auglýsingu um gerð kjörskrár getur kjósandi kannað á þar til gerðu vefsetri
hvort nafn hans er skráð á kjörskrá. Við aðgang að vefsetrinu er notuð almenn
innskráningarþjónusta sem kjörstjórn ákveður, s.s. rafræn skilríki eða Íslykill Þjóðskrár
Íslands.
Kjörskrá skal enn fremur leggja fram á pappír kjósendum til sýnis á biskupsstofu og
skrifstofum prófasta.
10. gr.
Leiðréttingar á kjörskrá.
Athugasemdir vegna kjörskrár skulu berast kjörstjórn eigi síðar en þremur sólarhringum
áður en kosning hefst. Kjörstjórn skal þegar taka til meðferðar athugasemdir sem henni
berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar á henni. Kjörstjórn skal í síðasta lagi
gera leiðréttingar á kjörskrá, tveimur sólarhringum áður en kosning hefst. Ef kjörstjórn
verður þess áskynja að villa hafi átt sér stað við kjörskrárgerðina skal slíkt leiðrétt. Óheimilt
er að breyta kjörskrá ef skilyrði skv. 6. gr. hafa ekki verið uppfyllt fyrir þann tíma sem þar
greinir.