Gerðir kirkjuþings - 2021, Side 126

Gerðir kirkjuþings - 2021, Side 126
126 127 34. mál 2021-2022 Flutt af vígslubiskupi á Hólum. Þingsályktun um um stefnu þjóðkirkjunnar í málefnum innflytjenda og fólks á flótta. Kirkjuþings 2021-2022 samþykkir eftirfarandi stefnu þjóðkirkjunnar í málefnum innflytjenda og fólks á flótta: Inngangur Í kjölfar umræðu um 15. mál kirkjuþings 2019, tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu þjóðkirkjunnar í málefnum fólks á flótta og innflytjenda samþykkti þingið að skipa þriggja manna starfshóp til að móta stefnu og verklagsreglur kirkjunnar í þessum málum. Var biskupi Íslands falið að skipa starfshópinn. Starfshópurinn var skipaður formlega 29. nóvember 2019, en í honum eru sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir, dr. Kjartan Jónsson og sr. Toshiki Toma. Varamenn eru sr. Eva Björk Valdimarsdóttir, sr. Hjalti Jón Sverrisson og sr. Magnús Björn Björnsson. Hópurinn skilaði tillögum til kirkjuþings í september 2020 um þann hluta er varðaði málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd. En í þessu skjali eru tillögur nefndarinnar um allan málaflokkinn þ.e. innflytjendur og fólks á flótta (kvótaflóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd) eins og upphafleg tillaga kirkjuþings 2019 kvað á um. Kirkja Jesú Krists hefur verið fjölbreytileg allt frá tilurð hennar á hvítasunnudag er Heilagur andi kom yfir lærisveina Jesú svo að þeir gátu talað mörg mismunandi tungumál og boðað fagnaðarerindið fólki frá mörgum þjóðum (Post. 2). Páll postuli undirstrikaði það er hann sagði: „Hér er hvorki Gyðingur né annarrar þjóðar maður, þræll né frjáls maður, karl né kona. Þið eruð öll eitt í Kristi Jesú“ (Gal. 3:28). Maðurinn er skapaður í Guðs mynd og sérhver manneskja er óendanlega mikils virði. Kristin trú tengir okkur við Guð sem vill og getur snúið óttanum við annað fólk í kærleika. Kærleikur Guðs gerir okkur kleift að elska náungann og er mikilvægasta aflið í kristindóminum. Þess vegna ber þjóðkirkjunni að þjóna hælisleitendum í kærleika. „Kirkja sem leggur aðeins áherslu á það sem fer fram innan veggja hennar verður fljótt ljót; kirkjan er aðeins kirkja þegar hún er til fyrir aðra“ (Dietrich Bonhoeffer). Kirkjan er því ekki kirkja Krists nema hún þjóni sínum minnstu bræðrum og systrum óháð trú og kirkjuaðild. Þetta er dýrmætur grundvöllur kirkju Krists. Við þurfum að varðveita hann og styrkja. Efla þarf þátttöku fólks með erlendan bakgrunn í helgihaldi og safnaðarstarfi. Það er áskorun til kirkjunnar að hafa frumkvæði að því að ná til fólks af erlendum uppruna og gera starf á meðal þess að eðlilegum hluta safnaðarstarfs svo að það endurspegli fjölbreytileika íslensks þjóðfélags. Þessi stefna tekur bæði til málefna innflytjenda og flóttafólks. Innflytjandi er samkvæmt skilgreiningu Hagstofunnar ,,einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar og ömmur. Flóttamaður er „hver sá sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að verða ofsóttur vegna kynþáttar,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.