Gerðir kirkjuþings - 2021, Page 128
128 129
Aðgengileiki. Til að gera þjóðkirkjuna aðgengilegri fyrir innflytjendur þurfa fulltrúar
hennar að nálgast þá. Ekki er nóg að bjóða þeim til hennar í almennum auglýsingum á
íslensku.
Þátttaka innflytjenda í safnaðarstarfi. Söfnuðir kirkjunnar þurfa að skapa vettvang
svo að innflytjendur geti tekið þátt í helgihaldi, lagt sitt af mörkum í safnaðarstarfi og átt
samfélag við Íslendinga.
Þátttaka Íslendinga. Þátttaka sjálfboðaliða af íslenskum uppruna er mjög mikilvæg.
Fjölbreytileiki. Fagna ber fjölbreytileika þjóðfélagsins sem þarf að endurspeglast í starfi
þjóðkirkjunnar, helgihaldi, sálmavali og notkun annarra tungumála.
Sálgæsla og ráðgjafaþjónusta. Margir innflytjendur eru félagslega einangraðir og vita
ekki af sálgæsluþjónustu kirkjunnar og annarri aðstoð sem hún veitir. Þeir þurfa að fá
vitneskju um þetta tilboð.
Stuðningur við söfnuði. Söfnuðir sem bjóða upp á starf fyrir innflytjendur þurfa að fá
fræðslu fyrir starfsfólk sitt og sjálfboðaliða. Ljóst er að mikil þörf er á fjölgun starfsfólks
á þessu sviði, prestum, djáknum eða öðrum sem hafa sérþekkingu á þessum málaflokki.
Gagnkvæm aðlögun Íslendinga og innflytjenda. Mikilvægt er að hjálpa innflytjendum
að aðlagast íslensku samfélagi en Íslendingar þurfa líka að læra að umgangast þá, bæði í
safnaðarlífi og almennt í þjóðfélaginu.
Stuðningur við starf fyrir innflytjendur. Nú þegar eru nokkrir söfnuðir með starf fyrir
fólk af erlendum uppruna. Dæmi um það eru foreldramorgnar í Hallgrímskirkju, íslensku-
kennsla í Ástjarnarkirkju og starf Alþjóðlega safnaðarins í Breiðholtskirkju sem veitir
inn flytjendum og flóttafólki víðtæka þjónustu, einstaklingsbundna ráðgjöf og sál gæslu-
þjónustu auk helgihalds. Slíkt starf þarf þjóðkirkjan að efla og styðja í fleiri söfnuðum.
II. KAFLI
Þjóðkirkjan og málefni flóttafólks
1. Tilgangur
Þjóðkirkjan þarf að auka þjónustu við fólk á flótta í söfnuðum landsins. Mikilvægt er að
þau geti fundið sig heima í kirkjum landsins. Margar af mikilvægustu sögum Biblíunnar
fjalla um fólk á flótta og fólk sem flytur á milli landa, þar sjáum við hve viðkvæm staða
þeirra er og hvaða stöðu þau hafa í augum Guðs. Þess vegna ber þjóðkirkjunni að þjóna
hælisleitendum og fólki sem flytur í kærleika.
2. Hlutverk þjóðkirkjunnar í málefnum flóttafólks
• Þjóðkirkjan er sjálfstæður aðili í málefnum flóttafólks á Íslandi.
• Þjóðkirkjan er opin fyrir öllu flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd.
• Þjóðkirkjan er athvarf flóttamanna og vinnur að því að réttindi þeirra séu virt og
hugað sé að velferð þeirra. Það á einnig við um þá sem fengið hafa vernd í öðru landi
en treysta sér ekki til að dvelja þar vegna óbærilegra lífskjara og sækja því um hæli
hérlendis í von um betri framtíð.
• Þjóðkirkjan styður sérstaklega börn á flótta og þá sem eru á flótta vegna kristinnar
trúar sinnar.