Fréttablaðið - 18.03.2023, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.03.2023, Blaðsíða 24
Ekkert væl. Það má gráta og jafnvel öskra, en ekki væla. Magga Margrét talar við systur sína úr sólinni í miðbæ Reykja- víkur. Fréttablaðið/ Ernir Eftir að Ragga flutti norður tala þær systur saman í síma daglega en hér talar Ragga frá vetrarríkinu í Svarfaðardal. Mynd/david ZEhla Systurnar Margrét og Ragn- hildur Weisshappel eru samstíga í lífinu og listinni en í næstu viku birtast þær í fyrsta sinn á sjónvarps- skjáum landsmanna, í þátt- unum Opnun II á RÚV. Það eru rétt rúm tvö ár á milli systranna sem alltaf hafa verið samrýmdar. Það er jafnvel samhljóm- ur á milli nafnanna en þær eru ávallt kallaðar Magga og Ragga. „Við höfum verið mjög sam- stíga. Erum saman í barnauppeldi, saman í rólegheitum, vorum saman í ruglinu.“ Aðspurð hvað hún eigi við með ruglinu hlær Ragga og svarar: „Nei, ekkert rugl, bara temmilega mikið djamm á árum áður.“ „Ég fattaði fyrir nokkrum árum að ég er ekki lengur partískvísa þegar ég þurfti að endurnýja kredit- kortið mitt sjálf,“ segir Magga. „En ekki af því það týndist eða datt í Tjörnina eða eitthvað. Það ein- faldlega rann út af náttúrulegum orsökum.“ Talaði ekki fyrr en fjögurra ára Ragga, sem er eldri, segist hafa tekið að sér að tala fyrir litlu systur sína þegar þær voru litlar. „Það tók hana svakalegan tíma að byrja að tala. Mér skilst að hún hafi verið rannsökuð af læknum. Fólk hafði áhyggjur,“ segir hún alvarleg en Magga kemur sjálfri sér til varnar. „Ég held ég hafi nú bara verið fjögurra ára.“ „Ókei, en svo byrjaði hún að tala og þá var hún altalandi full- komið mál, og nú gerir hún ekk- ert annað en að laga málfræði og stafsetningarvillur hjá fólki, mjög vinsæl. Magga gerir allt 150 pró- sent, sleppir því bara annars,“ segir Ragga og Magga bætir við: „Ég held við leggjum okkur báðar alltaf jafn mikið fram við allt sem við gerum, en ég hefði aldrei getað þagað svona lengi án Röggu.“ Samstíga listasystur bjóða í opnun „Þetta viðtal gæti verið sálfræði- tími. Við erum að fara djúpt,“ segir Ragga og hlær. Magga segir Röggu hafa leyft henni að leika með stóru stelpunum á yngri árum. „Mér var oft troðið i barnavagn og gefin ýmis heimagerð lyf.“ „Oftast var það nú bara sítrónu- safi og sykur eða eitthvað. Minnir mig,“ segir Ragga. Rjómakaffi sameinaði þær Það var svo í f jölskylduferð til London þegar systurnar voru þret- tán og fimmtán ára að þær smullu endanlega saman yfir sameiginlegri ást sinni á rjómakaffi. Upp frá því hafa þær verið nánast óaðskiljan- legar, þar til Ragga f lutti norður fyrir tveimur árum en hún býr í Svarfaðardal ásamt fjölskyldu sinni og líkar vel. „Ég hef aldrei verið betri. Alger lúxus. Umferðarteppa er orðin að fjarlægri minningu. Svo er ég mjög hrifin af Dalvíkingum og Svarf- dælingum, og Norðlendingum i heildina.“ Magga býr í Vesturbænum með dóttur sinni, plumar sig vel þar enda elskar hún að vera úti með trefil að dreypa á matchalatte. Nú þegar systurnar búa sín í hvorum lands- hlutanum tala þær saman í síma hálfan daginn að eigin sögn enda vinna þær mikið að sameiginlegum verkefnum. Listin kom með móðurmjólkinni Ragnhildur starfar sem myndlistar- maður auk þess að skrifa greinar í Heimildina undir formerkjum Hill- billy-systra ásamt Möggu. „Mér finnst mjög gaman að skrifa. Grunar að ég sé líka tónlistarmaður ef ég þyrði því eða gæfi mér tíma til að athuga það,“ segir hún í léttum tón. Margrét er g raf ísk ur hönn- uður og Pilates- og jógakennari en þær eiga ekki langt að sækja listhneigð- ina, móðir þeirra er Ragnhildur Stef- ánsdóttir mynd- l i st a r maðu r og myndhöggvari og faðir þeirra Friðrik Örn Weisshappel er smiður. Systurnar fóru á myndlistar- sýningar, danssýn- ingar og óperur frá fæðingu, fengu allt saman með móðurmjólkinni. „Ég gerði aldrei greinarmun á lista- sýningu eða að fara og kaupa ryk- sugu með foreldrum okkar, mér fannst bæði gaman,“ segir Ragga. „Í uppeldinu fóru þau ekki hefð- bundnar leiðir, ef það er til eitthvað sem heitir hefðbundið uppeldi. Til dæmis þá var okkur aldrei bannað neitt. Þau hvöttu okkur alltaf til að horfa á hlutina með gagn- rýnum hug, í stað þess að banna okkur,“ segir Magga og Ragga bætir við: „Okkur hefur alltaf verið leyft að gera okkar mis- tök – og við höfum gert nóg af þeim. Eftir á að hyggja hefði ég viljað að einhver talaði mig til, en ég veit líka að það hefði ekkert virkað,“ segir Ragga. „Allt var rætt og er það enn þá, og það eru alltaf lausnir á öllu, það er það helsta sem ég tek úr uppeldinu. Allt er mögulegt.“ M a g g a : „ Þ a u dæmdu okkur líka aldrei, og gera ekki. Svo við gátum alltaf sagt þeim allt. Við Ragga setjum mik- inn fókus á þetta í uppeldinu á okkar börnum, að hemja okkur ef við ætlum að rúlla aug- unum eða eitthvað.“ Ala börnin upp í sameiningu Systurnar eiga samtals þrjú börn og tala alltaf um „okkar börn“, enda segjast þær vita að móðursystir og mamma eru bæði jafn ótrúlega mikilvæg hlutverk í lífi barna. Ragga: „Annað mikilvægt sem ég tók úr uppeldinu, sem hefur reynst mér vel og ber áfram til barnanna okkar þriggja, er að vera aldrei í fórnarlambshlutverki. Ég man svo eftir þegar mamma var að predika þetta á snemm-unglingsárum okkar Möggu, og ég skildi það ekki alveg en það hefur sannarlega smogið inn í fínustu háræðar lífs míns, og er það svo frelsandi að líta aldrei á sig sem fórnarlamb eins né neins. Ekkert í lífinu er skylda.“ Magga: „Sammála. Ekkert væl. Það má gráta og jafnvel öskra, en ekki væla.“ Síamstvíburinn Hús og Hillbilly En að vefritinu Hús og Hillbilly sem systurnar settu í loftið árið 2016. Þar birta þær viðtöl við listamenn sem þær hugsuðu sem viðbót í arkív- flóruna um samtímalist. „Hillbilly byrjaði þannig að við fórum á vinnustofur listamanna og tókum tímalaust viðtal og góðar myndir,“ segja þær en nú skrifa þær reglulega í Heimildina, eins sér Ragga um gallerí Á, í svarfdælska fréttamiðlinum Norðurslóð. Nafnið Hús og Hillbilly er eins og einhverja kann að gruna byggt á tímaritinu Hús og híbýli. „Við sátum oft á Te og kaffi og lásum myndlistar-, tísku- og hönnunar- blöð á árum áður og David, franskur maður Röggu, kallaði blöðin eins og þau lögðu sig Hús og Hillbilly,“ rifjar Magga upp og hlær. „ H i l l b i l l y e r við saman. Loft- ið á milli okkar. Stundum köllum við hana síamství- b u r a n n ok k a r. Við tölum alltaf um hana í þriðju persónu, og hún tekur viðtölin fyrir okkur. Þar til nú, í Opnun II í sjón- varpinu, þá erum það við Ragga og Magga sem tökum viðtölin. En við gleymum ekki öllu því sem Hillbilly hefur kennt okkur,“ segir Ragga. Vinna að halda andlitinu kyrru Að taka viðtöl var þannig engin nýlunda fyrir systrunum þegar Gaukur Úlfarsson bað þær um að hafa umsjón með sjónvarpsþætt- inum Opnun II en þær viðurkenna að myndavélarnar hafi vissulega verið ný áskorun. „Sko, ég var í fullri vinnu við að halda andlitinu á mér eðlilegu. Ég er stöðugt að gera einhverja svipi. Ég þyrfti að láta líta á þetta. Ég horfi markvisst framan í annað fólk til að athuga hvort aðrir séu svona, en fólk er upp til hópa eðli- legt og kjurrt í framan. Ég hins vegar þarf að gera mitt allra besta til að halda andlitinu kjurru. Svo virðist ég vera haldin þrá- hyggju fyrir að fikta í andlitinu á mér eða hárinu,“ segir Ragga og systir hennar bætir við: „Það var mjög fyndið þ e g a r R a g g a spurði einn töku- ma n n i n n hvor t hún ætti að gera eitthvað öðruvísi og hann svaraði: „Kannski fikta aðeins minna í nefinu á þér.“ Ragga: „Sjarmerandi sjónvarps- efni.“ Völdu tólf listamenn Þær eru sammála um að ferlið hafi verið áhugavert og skemmtilegt en það hafi þó reynt á taugakerfið. „Tímasetningar og sjónvarps- bransinn eru víst oft að vega salt. Við Magga erum þó þaulvanar að púsla alls konar bútum saman í lífinu, eins og aðrar ofvirkar hús- mæður. En það var gott að finna að allir sýna ferlinu skilning enda fag- menn í öllum hornum. Sigurður Atli og Olga Lilja, sem reka Y gallerí, voru með okkur alla leið,“ segir Ragga en að loknum síðasta þætti verður opnuð þar samsýning þeirra lista- manna sem teknir voru tali í þátt- unum. „Opnun II fer í línulega dagskrá 23. mars. Línuleg dagskrá er eina haldreipið sem við höfum í nútíma- samfélagi,“ segir hún ákveðin. Systurnar völdu tólf listamenn sem teknir eru tali í þáttunum og segja þær þá alla eiga stað í hjört- um þeirra. Þann 6. maí verður svo opnuð sýning á verkum þeirra í Y gallerí sem er staðsett í gömlu Olís- bensínstöðinni undir Hamraborg í Kópavogi. „Mér líður eins og við séum að velja fallegar perlur og steina á ströndinni, þegar við skoðum verk listamannanna og veljum, í sam- tali við þá, gaumgæfilega verk inn á samsýninguna,“ segir Ragga en þeir listamenn sem teknir eru tali eru: Kristján Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Pétur Magnússon, Páll Haukur Björnsson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Hildigunnur Birgisdótt- ir, Ragna Róberts, Rakel McMahon, Birgir Snæbjörn Birgisson, Melanie Ubaldo, Erla Þórarinsdóttir og Sig- urður Guðjónsson. „Þetta er unaðsleg blanda lista- manna, og þar af leiðandi lista- verka á sýningunni; náttúra, drama, gleði og dass af töfr- um. Allt það besta í frekar litlu rými,“ segir Ragga. „Við erum mjög þakk- látar fyrir að fá að gera þennan þátt og stoltar af Hillbilly sem vex og dafnar og fer í gegnum m e t a m o r f ó s i s reglulega,” segir M a g g a a ð lokum. n Ég gerði aldrei grein- armun á listasýningu eða að fara og kaupa ryksugu með for- eldrum okkar, mér fannst bæði gaman. Ragga Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is 24 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 18. mARS 2023 lAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.