Fréttablaðið - 18.03.2023, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 18.03.2023, Blaðsíða 26
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Inga er stjórnendaþjálfi í fyrir- tæki sínu Via Optima þar sem hún vinnur með stjórnendum sem koma til hennar í stjórnenda- markþjálfun ásamt því að vera með námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir. Hún er fædd og uppalin á Akureyri en hefur nú búið lengur í Kópavogi en fyrir norðan. „Ég hef mikla ástríðu fyrir því að vinna með fólki í krefjandi störfum því ég reyndi það sjálf á eigin skinni þegar ég starfaði lengi í fjármálageiranum,“ segir Inga sem er iðin við að stunda golf í frí- stundum. „Ég hef lengi glímt við hárlos og prófað ótal hárkúra með mis- góðum árangri, en þegar ég rakst á viðtal við Ragnhildi Sigurðar- dóttur golfkennara, þar sem hún mælti heils hugar með bætiefninu Smoother Skin frá Eylíf, vissi ég að Ragga myndi aldrei gefa sín með- mæli nema hún væri ánægð með vöruna. Ég hugsaði með mér að ef Ragga finnur svona mikinn mun á hári sínu ætla ég að prófa líka,“ segir Inga sem nú hefur tekið inn Smoohter Skin & Hair í að verða þrjá mánuði. „Ég er núna að klára þriðja skammtinn og fann fljótlega mun, en þegar hárgreiðslukonan fór að tala um gróskuna í hárinu á mér, hugsaði ég með mér: „Getur verið að þetta virki svona vel?“ Eftir klippinguna ákvað ég að láta Ólöfu Rún hjá Eylíf vita hversu ótrúlega ánægð ég er með Smoother Skin & Hair og hvað það virkar vel. Það er eitthvað í þessu bætiefni sem svínvirkar því ég er með ný hár úti um allt á höfðinu. Hárlosið er úr sögunni, fullt af nýjum hárum og hárið er allt annað,“ segir Inga, svo sannarlega ánægð með árangur- inn. Er alsæl með árangurinn Inga hefur prófað mjög mörg hárvítamín á markaðnum. „Þar af hefur sumt verið gott en Smoother Skin & Hair er best. Bætiefnamarkaðurinn er frum- skógur og þegar maður stendur fyrir framan hillur verslana með gríðarlegu úrvali vítamína er erfitt að vita hvað virkar í raun. Stundum heldur maður að það dýrasta sé best og reynir að rýna í innihaldsefnin en í Smoohter Skin & Hair fann ég loksins bætiefni sem raunverulega virkar. Þetta er frábær bætiefnablanda fyrir hárið og einhver samsetning í því sem virkar mjög vel. Í því er kollagen, sink, bíótín, magnesíum og kopar, sem allt eru vítamín og steinefni sem eru góð fyrir hárið, en hjá Eylíf eru þau hárrétt blönduð og árangur- inn lætur ekki á sér standa,“ segir Inga sem finnur líka mun á húð sinni eftir að hún fór að taka inn Smoother Skin & Hair. „Í frosthörkunum í vetur hef ég verið með minna exem en ég fæ vanalega á veturna. Það er gaman að upplifa þennan árangur og mér fannst skemmtilegt þegar hárgreiðslu- konan spurði hvort ég sæi hversu mikið væri af nýjum hárum, en til þess þurfti ég hennar gleraugu því ég sé ekki ofan í hársvörðinn. Hún átti ekki einasta orð yfir árangr- inum. Mér fannst það mjög sterkt og þá varð ég endanlega sannfærð. Smoother Skin & Hair er raunveru- lega að gera sitt gagn,“ segir Inga. Hún mælir með Smoother Skin & Hair fyrir alla sem eru að velta fyrir sér hvaða hárvítamín séu góð. „Ég gef Smoother Skin & Hair mín bestu meðmæli. Það er virki- lega gaman að finna hvað hárið nýtur góðs af því og ég er barnslega glöð yfir því að þetta virki í raun svona fáránlega vel. Ég er alsæl.“ nHár og húð Ingu njóta góðs af bætiefninu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Trésmiðurinn Ragnar Alfreðsson hafði í grunn- inn ekki trú á bætiefnum en ákvað að gefa Stronger Liver séns með frábærum árangri. „Blóðið í mér hefur verið að hlaða upp járni og fylgjast þarf náið með gildunum því ef þau verða of há þarf að fara í aftöppun. Ég fer því í blóðprufur á þriggja mánaða fresti en eftir að ég fór að taka inn Stronger Liver frá Eylíf hafa lifrar- gildin, sem voru áður ekki upp á tíu, snarbreyst til hins betra. Það er einfaldlega allt í topplagi eftir að ég fór að taka inn þetta magn- aða bætiefni sem hefur breytt ótrúlega miklu fyrir mig,“ segir Ragnar, alsæll með árangurinn. Hann hefur tekið inn Stronger Liver samviskulega upp á dag hvern í hálft annað ár. „Ég mæli 100 prósent með Stronger Liver því ég þekki það af eigin raun. Ég er yfirleitt ekki ginnkeyptur fyrir töflum eða bætiefnum en fékk ábendingu um Stronger Liver frá Eylíf. Í fyrstu var ég hikandi og hafði enga trú á áhrifum þess en eftir að ég fór að lesa mér til um bætiefnið ákvað ég að prófa. Ég var nýkominn úr blóðprufu þar sem lifrar- gildin voru alltof há og fannst ég ekki hafa neinu að tapa að gefa þessu séns. Eftir þriggja mánaða skammt varð ég svo nánast orð- laus yfir því hvað gildin höfðu breyst mikið þegar ég fór næst í blóðprufu. Stronger Liver var greinilega að svínvirka,“ segir Ragnar, og læknirinn hans var líka hissa á betri lifrar- gildum. „Ég sagði lækninum að ég væri að taka inn Stronger Liver og hann sagði það greinilega virka mjög vel, sem eru sannar- lega góð meðmæli. Vita- skuld má maður ekki vera með fordóma fyrir fram og dæma það sem maður veit ekki um. Það heillaði mig líka að bætiefnið er unnið úr náttúrulegum og íslenskum hráefnum,“ segir Ragnar sem mælir eindregið með Stronger Liver. „Nýrnastarfsemin var líka í pínu ólagi hjá mér en þetta virðist haldast í hendur því nýrna- gildin hafa líka lagast eftir að ég fór að taka inn Stronger Liver. Ég er mjög ánægður og mun halda áfram að taka inn þetta einstaka bætiefni inn fyrir heilsu mína. Ég mæli því hiklaust með Stronger Liver fyrir alla sem glíma við ójafn- vægi í járnbúskapnum því allt hefur það lagast í mínu tilviki og ég hef þurft að fara miklu sjaldnar í aftöppun en áður. Ég hef líka hvatt félaga mína sem eru með of há lifrargildi að taka inn Stonger Liver og senn kemur í ljós hvort gildin hafi ekki lækkað hjá þeim líka.“ n Lifrin í toppstandi með Stronger Liver Ragnar Alfreðsson segir Stronger Liver hafa breytt ótrúlega miklu fyrir heilsu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Bætiefnalínan frá Eylíf samanstendur af fimm bætiefnum sem unnin eru úr gæðahráefnum úr íslenskri náttúru. Það er eitthvað í þessu bætiefni sem svínvirkar því ég er með ný hár úti um allt á höfðinu. Hárlosið er úr sögunni, fullt af nýjum hárum og hárið er allt annað. Ég varð nánast orðlaus yfir því hvað lifrargildin höfðu breyst mikið þegar ég fór næst í blóðprufu. Nýrnastarfsemin var líka í pínu ólagi hjá mér en nýrna- gildin hafa einnig lagast eftir að ég fór að taka inn Stronger Liver. 2 kynningarblað A L LT 18. mars 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.