Fréttablaðið - 18.03.2023, Blaðsíða 26
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Inga er stjórnendaþjálfi í fyrir-
tæki sínu Via Optima þar sem hún
vinnur með stjórnendum sem
koma til hennar í stjórnenda-
markþjálfun ásamt því að vera
með námskeið fyrir fyrirtæki og
stofnanir. Hún er fædd og uppalin
á Akureyri en hefur nú búið lengur
í Kópavogi en fyrir norðan.
„Ég hef mikla ástríðu fyrir því
að vinna með fólki í krefjandi
störfum því ég reyndi það sjálf á
eigin skinni þegar ég starfaði lengi
í fjármálageiranum,“ segir Inga
sem er iðin við að stunda golf í frí-
stundum.
„Ég hef lengi glímt við hárlos og
prófað ótal hárkúra með mis-
góðum árangri, en þegar ég rakst
á viðtal við Ragnhildi Sigurðar-
dóttur golfkennara, þar sem hún
mælti heils hugar með bætiefninu
Smoother Skin frá Eylíf, vissi ég að
Ragga myndi aldrei gefa sín með-
mæli nema hún væri ánægð með
vöruna. Ég hugsaði með mér að ef
Ragga finnur svona mikinn mun
á hári sínu ætla ég að prófa líka,“
segir Inga sem nú hefur tekið inn
Smoohter Skin & Hair í að verða
þrjá mánuði.
„Ég er núna að klára þriðja
skammtinn og fann fljótlega mun,
en þegar hárgreiðslukonan fór að
tala um gróskuna í hárinu á mér,
hugsaði ég með mér: „Getur verið
að þetta virki svona vel?“ Eftir
klippinguna ákvað ég að láta Ólöfu
Rún hjá Eylíf vita hversu ótrúlega
ánægð ég er með Smoother Skin
& Hair og hvað það virkar vel. Það
er eitthvað í þessu bætiefni sem
svínvirkar því ég er með ný hár úti
um allt á höfðinu. Hárlosið er úr
sögunni, fullt af nýjum hárum og
hárið er allt annað,“ segir Inga, svo
sannarlega ánægð með árangur-
inn.
Er alsæl með árangurinn
Inga hefur prófað mjög mörg
hárvítamín á markaðnum.
„Þar af hefur sumt verið gott
en Smoother Skin & Hair er best.
Bætiefnamarkaðurinn er frum-
skógur og þegar maður stendur
fyrir framan hillur verslana með
gríðarlegu úrvali vítamína er
erfitt að vita hvað virkar í raun.
Stundum heldur maður að það
dýrasta sé best og reynir að rýna í
innihaldsefnin en í Smoohter Skin
& Hair fann ég loksins bætiefni
sem raunverulega virkar. Þetta er
frábær bætiefnablanda
fyrir hárið og einhver
samsetning í því sem
virkar mjög vel. Í því er
kollagen, sink, bíótín,
magnesíum og kopar,
sem allt eru vítamín
og steinefni sem eru
góð fyrir hárið, en hjá
Eylíf eru þau hárrétt
blönduð og árangur-
inn lætur ekki á sér
standa,“ segir Inga
sem finnur líka mun
á húð sinni eftir að
hún fór að taka inn
Smoother Skin &
Hair.
„Í frosthörkunum í
vetur hef ég verið með
minna exem en ég fæ vanalega á
veturna. Það er gaman að upplifa
þennan árangur og mér fannst
skemmtilegt þegar hárgreiðslu-
konan spurði hvort ég sæi hversu
mikið væri af nýjum hárum, en til
þess þurfti ég hennar gleraugu því
ég sé ekki ofan í hársvörðinn. Hún
átti ekki einasta orð yfir árangr-
inum. Mér fannst það mjög sterkt
og þá varð ég endanlega sannfærð.
Smoother Skin & Hair er raunveru-
lega að gera sitt gagn,“ segir Inga.
Hún mælir með Smoother Skin
& Hair fyrir alla sem eru að velta
fyrir sér hvaða hárvítamín séu góð.
„Ég gef Smoother Skin & Hair
mín bestu meðmæli. Það er virki-
lega gaman að finna hvað hárið
nýtur góðs af því og ég er barnslega
glöð yfir því að þetta virki í raun
svona fáránlega vel. Ég er alsæl.“ nHár og húð Ingu njóta góðs af bætiefninu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Trésmiðurinn Ragnar
Alfreðsson hafði í grunn-
inn ekki trú á bætiefnum en
ákvað að gefa Stronger Liver
séns með frábærum árangri.
„Blóðið í mér hefur verið að hlaða
upp járni og fylgjast þarf náið
með gildunum því ef þau verða of
há þarf að fara í aftöppun. Ég fer
því í blóðprufur á þriggja mánaða
fresti en eftir að ég fór að taka inn
Stronger Liver frá Eylíf hafa lifrar-
gildin, sem voru áður ekki upp á
tíu, snarbreyst til hins betra. Það
er einfaldlega allt í topplagi eftir
að ég fór að taka inn þetta magn-
aða bætiefni sem hefur breytt
ótrúlega miklu fyrir mig,“ segir
Ragnar, alsæll með árangurinn.
Hann hefur tekið inn Stronger
Liver samviskulega upp á dag
hvern í hálft annað ár.
„Ég mæli 100 prósent með
Stronger Liver því ég þekki það
af eigin raun. Ég er yfirleitt ekki
ginnkeyptur fyrir töflum eða
bætiefnum en fékk ábendingu um
Stronger Liver frá Eylíf. Í fyrstu
var ég hikandi og hafði enga trú á
áhrifum þess en eftir að ég fór að
lesa mér til um bætiefnið ákvað
ég að prófa. Ég var nýkominn
úr blóðprufu þar sem lifrar-
gildin voru alltof há og fannst ég
ekki hafa neinu að tapa að gefa
þessu séns. Eftir þriggja mánaða
skammt varð ég svo nánast orð-
laus yfir því hvað gildin höfðu
breyst mikið þegar ég fór næst
í blóðprufu. Stronger Liver var
greinilega að svínvirka,“ segir
Ragnar, og læknirinn hans var
líka hissa á betri lifrar-
gildum.
„Ég sagði lækninum
að ég væri að taka inn
Stronger Liver og hann
sagði það greinilega virka
mjög vel, sem eru sannar-
lega góð meðmæli. Vita-
skuld má maður ekki vera
með fordóma fyrir fram
og dæma það sem maður
veit ekki um. Það heillaði
mig líka að bætiefnið er
unnið úr náttúrulegum
og íslenskum hráefnum,“
segir Ragnar sem mælir
eindregið með Stronger
Liver.
„Nýrnastarfsemin var
líka í pínu ólagi hjá mér en þetta
virðist haldast í hendur því nýrna-
gildin hafa líka lagast eftir að ég
fór að taka inn Stronger Liver. Ég
er mjög ánægður og mun halda
áfram að taka inn þetta einstaka
bætiefni inn fyrir heilsu mína. Ég
mæli því hiklaust með Stronger
Liver fyrir alla sem glíma við ójafn-
vægi í járnbúskapnum því allt
hefur það lagast í mínu tilviki og
ég hef þurft að fara miklu sjaldnar
í aftöppun en áður. Ég hef líka
hvatt félaga mína sem eru með of
há lifrargildi að taka inn Stonger
Liver og senn kemur í ljós hvort
gildin hafi ekki lækkað hjá þeim
líka.“ n
Lifrin í toppstandi með Stronger Liver
Ragnar Alfreðsson segir Stronger Liver hafa breytt ótrúlega miklu fyrir heilsu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bætiefnalínan frá Eylíf samanstendur af fimm bætiefnum sem unnin eru úr gæðahráefnum úr íslenskri náttúru.
Það er eitthvað í
þessu bætiefni sem
svínvirkar því ég er með
ný hár úti um allt á
höfðinu. Hárlosið er úr
sögunni, fullt af nýjum
hárum og hárið er allt
annað.
Ég varð nánast
orðlaus yfir því
hvað lifrargildin höfðu
breyst mikið þegar ég fór
næst í blóðprufu.
Nýrnastarfsemin
var líka í pínu
ólagi hjá mér en nýrna-
gildin hafa einnig lagast
eftir að ég fór að taka inn
Stronger Liver.
2 kynningarblað A L LT 18. mars 2023 LAUGARDAGUR