Fréttablaðið - 18.03.2023, Blaðsíða 30
Sótt er um laus störf á heimasíðu Vegagerðarinnar,
www.vegagerdin.is
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdarstofnun landsins
með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.
Starfshlutfall er 100%, Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Silja Þorkelsdóttir, forstöðumaður hönnunardeildar
(margret.s.thorkelsdottir@vegagerdin.is), s. 522-1830
Sérfræðingur við
hönnunarstjórn Borgarlínu
Laust er til umsóknar starf sérfræðings á
hönnunardeild Vegagerðarinnar í Garðabæ.
Vegagerðin vinnur að þróun,
skipulagi, hönnun og framkvæmd
samgöngumannvirkja fyrir fjölbreytta
ferðamáta. Framundan eru umfangsmikil
og spennandi verkefni við undirbúning
Borgarlínu sem tilheyrir Samgöngusáttmála.
Vegagerðin leitar að öflugum einstaklingi
sem mun sinna hönnunarstjórn Borgarlínu
ásamt teymi verkefnastofu Borgarlínu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meðal verkefna er hönnunarstjórn með
teymi alþjóðlegra ráðgjafa, þátttaka í
gerð verðfyrirspurnar- og útboðsgagna,
kostnaðaráætlana, rýni hönnunar og
fjölbreyttum umbótaverkefnum á sviði
hönnunar.
Hæfniskröfur
→ Háskólanám í verk- eða tæknifræði M.Sc.
próf æskilegt
→ Reynsla af hönnun fjölbreyttra ferðamáta
→ Reynsla af gerð verklýsinga og
kostnaðaráætlana æskileg
→ Hæfni í mannlegum samskiptum, geta til að
vinna sjálfstætt og í teymisvinnu
→ Hæfni til að fylgja málum eftir og til að
finna bestu lausnir hverju sinni
→ Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur
metnaður
→ Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og
töluðu máli
→ Góð öryggisvitund
Sérfræðingur við hönnunarstjórn
og jarðtæknilega hönnun
Laust er til umsóknar starf hönnunarstjóra á
hönnunardeild Vegagerðarinnar. Starfsstöð
er í Garðabæ eða á Akureyri.
Vegagerðin vinnur að þróun,
skipulagi, hönnun og framkvæmd
samgöngumannvirkja fyrir fjölbreytta
ferðamáta. Fram undan eru fjölbreytt og
spennandi verkefni á landinu öllu. Sóst er
eftir einstaklingi með þekkingu og reynslu
af hönnun samgöngumannvirkja með
jarðtæknilega áherslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér hönnunar- og
verkefnastjórn auk sérfræðiráðgjafar í
jarðtæknilegri hönnun.
Um mjög fjölbreytt og krefjandi starf er að
ræða. Helstu verkefni eru:
→ Almenn verkefnis- og hönnunarstjórn
→ Kaup á ráðgjöf og rannsóknum á sviði
jarðtækni
→ Úrvinnsla jarðtæknirannsókna
→ Jarðtæknileg ráðgjöf og rýni vegna
hönnunar vega og grundunar mannvirkja
→ Þátttaka í leiðbeiningagerð í samstarfi við
aðrar deildir
Hæfniskröfur
→ Verk- eða tæknifræðingur með M.Sc. próf
→ Sérhæfing eða reynsla á sviði jarðtækni
æskileg
→ Hæfni í mannlegum samskiptum, vinna
sjálfstætt og í teymisvinnu
→ Hæfni til að fylgja málum eftir og til að
finna bestu lausnir hverju sinni
→ Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og
faglegur metnaður
→ Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
→ Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og
töluðu máli, kunnátta í norðurlandamáli
æskileg
→ Góð öryggisvitund
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Tvær stöður á hönnunardeild
Vegagerðarinnar
Þarftu að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í meira en
50 ár
2 atvinna FRÉTTABLAÐIÐ 18. mARs 2023
LaUGaRDaGUR