Fréttablaðið - 18.03.2023, Qupperneq 57
Sýningar Ólafar Nordal
eru tilhlökkunarefni,
því oftast veit áhorf-
andinn ekki hverju
hann á von á fyrr en á
hólminn er komið.
KVIKMYNDAGETRAUN
í samstarfi við Bíó Paradís:
Sex miðar í bíó, popp og gos.
Farið inn á kvikmyndir.is og
svarið nokkrum laufléttum
spurningum í boði þáttarstjórnenda
Bíóbæjarins.
Myndlist
Ólöf Nordal
Fygli
Ásmundarsalur
25.2.–26.3. 2023
Aðalsteinn Ingólfsson
Sýningar Ólafar Nordal eru til
hlökkunarefni, því oftast veit
áhorfandinn ekki hverju hann á
von á fyrr en á hólminn er komið.
Hún „vinnur með menningararf
inn“ eins og það er kallað, en sú
vinna getur leitt hana um víðan
völl, yfir í þjóðsögur, mannfræði
og menningar fræði – og ein
stöku sinnum út í ógöngur, eins
og stundum gerist þegar mikið
er undir. Yfirstandandi sýning
hennar í Ásmundarsal er hins vegar
óvenju hófsöm, markviss og skýrt
upp byggð, nánast innsetning sem
samanstendur af þremur „foglum“,
furðuverum úr bronsi. Þeim er
komið fyrir á háum stöllum þann
ig að þeir yfirskyggja áhorfendur.
Allt um kring hljómar svo margs
konar kvak, kjank og garg, hljóð
effektar úr fuglaríkinu eftir Hjalta,
son listakonunnar, sem er starfandi
tónskáld. Bronssteypa er nokkur
nýlunda í myndlist Ólafar en þrátt
fyrir að efnisheimur nútímalista
manna sé nú nánast ótakmarkaður,
er mörgum þeirra enn hlýtt til
gamla góða bronsins og nota hvert
tækifæri til að hagnýta sér það.
Eftir áferð steypunnar að dæma
virðist listakonan hafa látið stækka
og steypa eftir þremur leirskissum
sínum.
Þar sem óttinn býr
„Foglar“ Ólafar eru samsett fyrir
bæri, tiltölulega mennskir til fót
anna, vængjalausir, en bera misjafn
lega afmynduð fuglshöfuð. Þeir eru
í miðju ummyndunarferli, brjótast
um í mannheimi en teygja sig í átt til
stjarnanna. Fuglar í einhverri mynd
koma víða fyrir í nútímalist, ekki
síst meðal súrrealista, þar sem þeir
eru gjarnan tákn fyrir hugarflugið
og andagiftina. Max Ernst teflir iðu
lega fram í verkum sínum furðufugli
sem hann nefndi „LopLop“, sem var
eins konar milliliður milli lista
mannsins og hugarheimanna þar
sem óttinn (e. the uncanny) býr.
Afkáralegt og ógnarlegt
Þannig birtist fuglinn líka í verkum
nokkurra íslenskra listamanna sem
á tímabili sóttu andagift til súrreal
isma, til dæmis Alfreðs Flóka, Errós,
Sverris Haraldssonar og Sigurjóns
Ólafssonar. Sem gegnsætt róman
tískt tákn fyrir skáldskapinn og eft
irlöngun mannsins eftir æðri sann
leik kemur fuglinn hins vegar mun
víðar fyrir í íslenskri myndlist, til
að mynda í táknsæknari verkum
Kjarvals og Finns Jónssonar. Fyrir
utan Ólöfu man undirritaður hins
vegar aðeins eftir einum öðrum
listamanni íslenskum, Steingrími
Eyfjörð, sem lýsir þessu ummynd
unarferli, „ferðinni til stjarnanna“,
sem afkáralegu, jafnvel ógnarlegu.
Einhvern veginn þannig skilgreina
menn „grótesku“.
En þetta er líka viðhorf sem
markar eldri verk Ólafar, þar sem
fjallað er um mannkynbætur. Í því
tilfelli voru hugsjónir hátimbraðar,
en aðferðafræðin hörmuleg. n
niðurstaða: Einföld sýning en
margræð.
Á rumpi situr fogl
Á sýningu Ólafar Nordal, Fygli, í Ásmundarsal má sjá þrjár furðuverur úr bronsi. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Fréttablaðið menning 4118. mars 2023
LAUgARDAgUR