Fréttablaðið - 18.03.2023, Blaðsíða 64
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
bakþankar |
Lóan er komin að kveða burt
snjóinn – en ekki virðist hún
blessunin ætla að taka með sér
yfirvinnublæti okkar Íslendinga.
Af hverju get ég fullorðin mann-
eskjan ekki lagt mig um miðjan
dag þegar ég á frí og er örmagna
án þess að vakna úrill með sam-
viskubit? Mér líður eins og ég sé að
svíkjast um. Aumingi með dregið
fyrir um miðjan dag. Það virðist
engu skipta að ég hef þennan dag
engum öðrum skyldum að gegna
en að hvíla mig eftir aðgerð.
Vinkonurnar hafa sömu sögu
að segja. Ein í veikindaleyfi en
getur með engu móti lagt sig eftir
að hafa komið barnaskaranum út
á morgnana nema að upplifa sig
sem einskisnýtan aumingja.
Við erum nefnilega alin upp við
að vera alltaf að gera eitthvað.
Hvað er dugnaður og metnaður
og hvað er áráttukennd vinna, til
þess fallin að koma inn samvisku-
biti yfir að hvíla sig? Vissulega er
dugnaður dyggð – en það er hvíld
líka.
Við vitum núna að of mikil
vinna er ömurð sem rænir fólk
heilsu og fjölskyldu en það er ekki
hægt að hætta að vinna stanslaust
þegar það er búið að forrita þig til
yfirvinnu.
Hvernig getur fólk bara slökkt
á yfirvinnublætinu? – hvort sem
það er þegar það er 67 ára eða
komið á vegg vegna vinnu?
Fokking lóan er stanslaust í
eyranu.
„Hún hefur sagt mér til synd-
anna minna, ég sofi of mikið og
vinni ekki hót. Hún hefur sagt mér
að vaka og vinna og vonglaður
taka nú sumrinu mót.“
Fokking lóan. n
Fokking lóan
Tobbu
Marinós
Beltone Imagine™ – hágæða heyrnartæki
Hljóðheimurinn er stór hluti lífs okkar. Við hjálpum þér að njóta hans með hágæða
heyrnartækjum sem bæta lífsgæði þín til muna. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Það gæti verið farmiðinn þinn
inn í ævintýraheim hljóðsins.
Kringlunni • sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖÐIN
Hljóðsettu líð
upp á nýtt
Kringlunni – sími 568-7777 – heyra.is
©
Inter IKEA System
s B.V. 2023
Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is
Kjúklingabringa
með frönskum, brokkolí
og bernaisesósu
1.295,-
Nautasnitsel
með smælki og rauðkáli
1.295,-
Gríptu
tækifærið
Bragðaðu á tímabundnum réttum
á veitingastað IKEA – gríptu tækifærið!
Sparaðu
tíma
og gerðu
einfaldari
innkaup á
netto.is