Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1982, Page 3

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1982, Page 3
SKIPULAGS- MÁL HÖFUÐBORGARSVÆfNSINS 3.TBL.3. ARG. 1982 Fréttablaðið SKIPULAGSMAL HÓFUÐBORGARSVÆÐISINS er gefið út af Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins, Hamraborg 7, 200 Kópavogi, sími 45155 og kemur út fjórum sinnum á ári. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gestur Ólafsson. Efnisyfirlit: * Hvaðerskipulagogíhversþágu? 5 BirgirH. Sigurðsson * Landsskipulag 8 Stefán Thors * Hlutverkreiknilíkanaviðskipulagninguþéttbýlissvæða 11 Þórarinn Hjaltason * Hugleiðingar um skipulagslögin 13 MagnúsE. Guðjónsson * ErindifluttáaðalfundiSSH 23. október 1982: 16 Erindi Zóphaníasar Pálssonar, skipulagsstjóra ríkisins 16 Erindi Sigurðar Guðmundssonar, áætlanafræðings: Stjórnun landnotkunar 19 Erindi Guðrúnar Jónsdóttur, forstöðumanns Borgarskipulags: Skipulagning og framkvæmd skipulags í nýjum og gömlum hverfum í Reykjavík 22 Erindi Gests Olafssonar, forstöðumanns Skipulagsstofu höfuð- borgarsvæðisins: Svæðaskipulag á höfuðborgarsvæðinu 24 * Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 26 * Hlutfallsleg skipting húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu sam- kvæmtrúmmáli 1982 27 * íþróttamiðstöðíSuður-Mjódd 29 * UmhirðavegkantaíBretlandi 29 * Sölukynning 31 Forsíðumynd: Forsíðumynd er eftir Tómasfónsson auglýsingateiknara Skipulag og framkvæmd skipu- lagsáætlana. Skipulag og framkvæmd skipu- lags á höfuðborgarsvæðinu hefur verið mikið til umræðu að undan- förnu. I ljós hafa komið töluvert ólíkar skoðanir á því hvað skipu- lag sé eða geti verið og hvernig farsælast sé að skipuleggja þessa vinnu þannig að hún skili sem mestum og bestum árangri fyrir land og þjóð. A það hefur m.a. verið bent að um % af því fé sem varið er til skipulags fari í söfnun og meðferð upplýsinga og að endurskoðun aðalskipulags geti tekið hátt í áratug. Þannig sé skipulag, í þeirri mynd sem það bent að starfssvið og samskipti þeirra aðila sem tengjast skipu- lagsmáluin á svæðinu séu víða ó- ljós og illa skilgreind og því fari að nauðsynjalausu umtalsverður tími og fjármunir í tví- og marg- verknað. Til að þessi vinna verði leyst vel og markvisst af hendi þarf að tak- ast gott og frjótt samstarf milli hlutaðeigandi stjórnmálamanna; þeirra sérfræðinga sem að þess- um málum vinna, og almennings á viðkomandi svæði. Viðkomandi ráðuneyti verða líka að sinna þessum málum betur ef vel á að vera, því án markvissrar samvinnu allra þessara aðila glötum við miklu af þeirn tæki- færum sem við annars gætum átt. A höfuðborgarsvæðinu býr nú meira en helmingur allra lands- manna, og því skiptir það miklu máli fyrir okkur sem þjóð að þetta samstarf takist vel. Aukin samvinna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þarf ekki að leiða til þess að þau afsali sér valdi eða sjálfsákvörðunarrétti, heldur getur hún leitt til mun betri nýt- ingar á fjármagni, komið í veg fyrir stórfelld glappaskot og stuðlað að mun betri heildar- umhverfi allra íbúa þessa svæðis. Hins vegar er það ljóst að til þess að svo megi verða þarf að skipu- leggja vinnutilhögun og fram- kvæmd skipulags á höfuðborgar- svæðinu mun betur en nú er. Gestur Ólafsson

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.