Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1982, Qupperneq 8

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1982, Qupperneq 8
þar hefur komið fram. Þó skal hér tvennt tínt til í lokin til viðbót- ar. Akvarðanataka í skipulagi byggðar þarf að eiga sér stað á fleiri en einum stað í stjórn- kerfinu m.a. til vinnuhagræðing- ar og afkastaaukningar. Til að nefna einfalt dæmi í þessu sambandi þá ætti ákvörðun um barnaleikvöll að vera tekin á „lægra þrepi” stjórnkerfisins en t.d. ákvörðun um það hvort flytja eigi Reykjavíkurflugvöll eða ekki. Fyrrnefnda atriðið er nánast hagsmunamál eíns bæjarhverfis eða aðeins fárra íbúa í einu bæj- arhverfi. Akvörðun um hið síð- astnefnda á aftur á móti ekki að- eins við um íbúa alls höfuðborg- arsvæðisins heldur þjóðina alla. Því ætti slík ákvörðun að vera tekin á „hærra þrepi stjórnstig- ans”. Síðara atriðið um þátttöku íbú- anna í skipulagi er tengt vanga- veltum um það hvort hægt sé að virkja „hinn þögla meirihluta”. Sagt er hér að framan, að skipu- lag hafí áhrif á alla og því sé nauð- synlegt að leita eftir skoðunum sem flestra. En skoðanir hins þögla meirihluta almennings koma sjaldnast fram en í stað þess gaspra hópar fárra manna hver í kapp við aðra, — krefjast þessa og krefjast hins. Öll umræða um skipulagsmál hefur því til- hneigingu til að vera allt annað en málefnaleg, þar sem hagsmunum fárra er stillt á stall sem hagsmun- um heildarinnar. Finn fremur má benda á að almenningur hér á landi getur ekki, eins og málum er háttað í dag, reitt sig á hina fræðilegu umfjöllun skipu- lagsmálanna, einfaldlega vegna þess að hún á sér sjaldan stað. Skipuleggjendur þegja of oft af hræðslu við að styggja yfirboðara sína enda oft nokkrir bagsmunir í veði. Reynslan erlendis sýnir, að þó settar séu klásúlur í skipulagslög sem tryggja eiga rétt íbúanna til að taka þátt í að móta það samfé- lag sem þeir búa í eða stefna að, þá sé raunin oftast önnur, þeir virðast hafa öðrum hnöppum að hneppa en að fylgjast með skipu- laginu. Einkum verður vart við þetta afskiptaleysi almennings þegar rætt er um skipulagsmál er varða íbúa mjög fjölmennra svæða svo sem fleiri en eins sveitarfélags eða enn stærri LANDSSKIPULAG Arið 1979 voru gerðar mikil- vægar breytingar á íslensku skipulagslögunum, sem tiltölu- lega lítið hefur farið fyrir. I nýrri grein er nefnilega meðal annars kveðið á um, að öll sveitarfélög séu skipulagsskyld og að gera skuli skipulagsuppdrætti af öllum þéttbýlisstöðum, þar sem búa 50 manns eða fleiri. Ennfremur getur ráðherra samkvæmt sömu grein, að fengn- um tillögum skipulagsstjórnar, látið gera drög að héraða- og landshlutaskipulagi. Þó svo að hér hafi verið um verulega breytingu að ræða, er varla hægt að segja að mikilla á- hrifa hennar sé enn farið að gæta. Þess var reyndar varla við að bú- ast, þar sem breytingar á fram- kvæmd skipulagsmála fylgdu ekki í kjölfarið. Þannig er t.d. enn takmörkuðu fé variðaf opinberri hálfu til þessara mála um fram það, sem húsbyggjendur greiða 8 sjálFir í skipulagsgjöld. Hefði lagabreytingu þessari verið fylgt ákveðnar eftir mætti ef til vill hugsa sér, að í dag væri búið að gera drög að skipulagi fyrir á- kveðinn landshluta og aðalskipu- lag fyrir alla þéttbýlisstaðina innan hans. Því hefur hins vegar ekki verið til að dreifa og verður sjálfsagt einhver bið á því, að svo verði. Því þótt bærilega gangi að gera aðalskipulag fyrir þéttbýlis- staðina, er sjálfsagt leit að stað, þar sem aðalskipulagið er byggt á eða í samræmi við landshluta- skipulag. Slík samræming er hins vegar æskilcg og reyndar nauðsynleg, því byggðaþróun eins þéttbýlis- kjarna hlýtur að vera háð því sem að öðru leyti gerist innan lands- hlutans. Þar sem slík samræming er ekki fyrir hendi mætti segja sér að ef mannfjöldaspár eru teknar úr greinargerðum með aðalskipu- svæða. Þó horfi málið aðeins öðru vísi við ef rædd eru áform um skipulagsbreytingar á næsta umhverfi fólks. Þá er oft á tíðum auðveldara að „virkja” íbúana, — þeir átti sig þá betur á því hvað sé umhverfi þeirra fyrir bestu og hvað ekki. Reynslan sýnir því að „skipulagssvæðin” mega ekki vera of stór ef virkja á almenning í skipulagsvinnunni. Efalaust má nefna hérlend dæmi þessu til staðfestingar og ennfremur hve nauðsynlegt það sé að efla samkennd fólks, gera því skiljanlegt að með skipulagi byggðar er verið að njörva saman fjölmarga þætti í líki þess, — fast- ákveða hluti sem oft á tíðum er útilokað að breyta síðar meir. Það er kannske ekki síst þess vegna sem nauðsynlegt er að cfla tengslin á milli þess sem skipu- leggur og þess sem skipulagt er fyrir. En eins og áður scgir, þá er það í raun og veru hverri sveitar- stjórn í sjálfsvald sett hvort hún ætlar almenningi að taka þátt í skipulagsmálum og það oftar en á fjögutra ára fresti. Birgir H. Sigurðsson lagi allra staða í einum landshluta og lagðar saman, komi í ljós, að fólki þyrfti að fækka í öðrum landshlutum, ættu spárnar að rætast. Ekki þar fyrir, að sjálfsagt er að fólkið í byggðalögunum sé bjart- sýnt og vilji hag síns sveitarfélags sem mestan, en þetta sýnir okkur líka á hve veikum grunni aðal- skipulag er byggt. Það er fyrst og fremst eðlisrænt skipulag og rammi um þróun, sem sveitar- stjórn eða skipu 1 agsaði 1 ar ráða litlu sem engu um. Þess vegna er mikilvægt að þessi rammi sé byggður á raunhæfum forsend- um eigi hann að vera brúklegt stjórntæki. I landshlutaskipulagi, sem er í senn eðlisrænt og hagrænt, þarf því að vera mat á því m.a. hvernig áætluð aukning fólksfjölda muni skiptast milli viðkomandi sveitar- félaga og hvernig samstarfi og verkaskiptingu verði háttað. Þá

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.