Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1982, Page 29
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ í SUÐUR-MJÓDD
Nýlegaa er lokið samkeppni
um íþróttamiðstöð í Suður-
Mjódd, í Reykjavík. F"yrstu verð-
laun hlutu arkitektarnir Dagný
Helgadóttir og Guðni Pálsson.
I tillögu sinni leggja höfundar
til að syðsta hluta svæðisins verði
ráðstafað fyrir skokkbrautir,
reiðhjóla- og göngustíga í fjöl-
breyttu landslagi. Um miðbik
svæðisins leggja höfundar til að
reist verði íþróttamiðstöð, en auk
þess verði þar knatlspyrnuvöllur,
tjörn (skautasvell) og vatnaskrúð-
garður. Nyrst á svæðinu er síðan
gert ráð fyrir bifreiðastæðum auk
byggingar og íþróttavalla I. R.
UMHIRÐA VEGKANTA í BRETLANDI
Svæði A 1 - 1,5 m næst vegi. Þar
er rasið slegið a.m.k.
6-12sinnum á ári.
Svæði B Á þessu svæði sem
kalla má mið svæði er
gras slegið annað hvort
1) tvisvar á ári t.d. um
miðjan maí og í lok ág-
í júlí á síðasta ári kom út bleð-
lingur í Bretlandi á vegum „the
Professional Institutions Council
for Conservation”. Megininntak
hans eru tilmæli til þeirra er sjá um
umhirðu vegkanta (road verges). í
stuttu máli eru tilmælin þau, að
fara varlega við allan slátt í veg-
köntum vegna þess lífríkis sem þar
þrífst.
Á undangengnum árum hefur
Umhverfismálaráðunevtið breska
(D.O.E.) sent frá sér einskonar
verkleiðbeiningar (technical mem-
oranda) varðandi umhirðu
vegkanta. í þeim fyrstu var lagt til
að vegkantarnir skyldu snoðaðir
eins og frekast væri unnt. En nú
hin síðari ár hafa komið fram verk-
leiðbeiningar sem ganga þvert á
þær fyrri í þessum efnum.
í bleðlinum sem áður er um get-
ið, segir m.a. að um 700 mis-
munandi tegundir plantna vaxi á
breskum vegköntum, þar af 50 sem
eru algengari þar en anrtarsstaðar.
Að auki segir þar, að í vegköntun-
um lífi 40% spendýra, öll skriðdýr-
in, 20% fugla, 42% fiðrilda og
47% allra flugna er finnast á Bret-
landseyjum.
Til að lífríki þessu verði ekki
raskað um of leggur„the Profess-
ional Institutions Council for Con-
servation” því til að vegköntum
verði skipt í þrjú umhirðusvæði,
eftir fjarlægð frá akbraut.
Umhirðusvæði vegkanta (road
verges) í Bretlandi
2) aðeins einu sinni á
ári t.d. í lok ágúst.
Svæði C Á þessu svæði, sem er
fjærst akbrautinni, er
lagt til að grasið sé
slegið aðeins einu sinni
eða þá að það sé látið
vaxaalvegífriði.
Með þessari skiptingu vegkant-
anna í þrjú umhirðusvæði halda
umhverfisverndarmenn í Bret-
landi því fram að fjölbreytileika og
tilvist bæði plantna og dýra sé síður
hætta búin. Ennfremur sé með
skiptingu þessari hægt að auðga
fegurð vegkanta, ef svo má að orði
komast, bæði hvað varðar lit og
áferð þar sem blómjurtir og ýmsar
teundir af grösum ná hugsanlega
að skarta sínu fegursta ef þær fá að
vaxa þar í friði. En síðast en ekki
síst getur mikið fjármagn sparast
með því að skipta vegköntunum í
þessi ákveðnu umhirðusvæði, þar
sem aðeins ræma næst akbrautinni
er snöggslegin í stað þess að áður
tíðkaðist að slá allan vegkantinn.
*
29