Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1984, Blaðsíða 12

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1984, Blaðsíða 12
12 SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS hægt að selja, á hvaða verði og vinna út frá því. Með minnkandi fiskveiðum má gera ráð fyrir að matvælaiðnaður- inn eigi eftir að þróast mikið. Það þarf að nýta hráefnið betur en gert er nú, en þetta kallar á stórt átak í markaðsmálum, stærra en við erum vön. íslendingar búa yfir fleiri mögu- leikum en fiskiðnaði. Þekking á ýmsum sviðum er hér á mjög háu stigi. Nú þegar eru t.d. 4 fyrirtæki í landinu í rafeindaiðnaði, þar af 3 í Reykjavík. Efnaiðnaður á líka góða möguleika að þróast og verða útflutningsvara. Tækniþekking á sviði jarðvarma og orkuverum er mikil og þegar er hafinn útflutning- ur á slíkri þekkingu. Vélar og tæki fyrir sjávarútveginn er líka iðnaður sem er háþróaður og getur eflst mikið enn. í því sambandi þyrfti að koma á meira samstarfi milli fyrir- tækja sem framleiða tæknibúnað fyrir sjávarútveginn, þannig að þau gætu staðið að því að framleiða sameiginlega heil kerfi, eða jafnvel heil frystihús. Þær iðnaðargreinar sem mögu- leikar eru á að hagkvæmt sé fyrir íslendinga að stunda þurfa að hafa innanlandsmarkað, byggjast á þekkingu sem íslendingar hafa yfir að ráða og geta náð framleiðsluhag- kvæmni í styttri seríum en hag- kvæmt er í stórum fyrirtækjum. Þegar eru dæmi um fyrirtæki á ís- landi sem fengið hafa framleiðslur- éttindi erlendis frá, vegna þess að séríuframleiðslan var of stutt til að hagkvæmt væri að framleiða er- Iendis. Fyrir þessa framleiðslu á að vera innanlandesmarkaður. Er- iendu aðilarnir sem seldu fram- leiðsluréttinn, hafa ýmist keypt hluta framleiðslunnar eða látið við- skiptasambönd sín fylgja með, og tækniþekking var fyrir í fyrirtækj- unum sem nýttist í framleiðslunni. Fyrirtækjaformið virðist vera að breytast frá mjög stórum verks- miðjum yfir í smærri einingar. Dæmunum, eins og sagt er frá hér að ofan, þar sem framleiðslan er hagkvæm í færri einingum, á áreið- anlega eftir að fjölga á næstu árum. Hvað framtíðin ber í skauti sér á sviði atvinnulífsins mun ráðast mik- ið af ytri aðstæðum. Takist okkur að minnka verðbólguna og gera ytri skilyrði hagstæð, mun án efa verða mikil þróun í útflutningsiðnaði. Samkeppnishæfni íslendinga á er- lendum mörkuðum ræðst af kostn- aði innanlands og gengi íslensku krónunnar. Með góðri samkeppnis- stöðu og nauðsyn þess að leita ný- rra leiða, mun án efa verða mikil þróun í útflutningsiðnaði. Guðmundur Magnússon, rektor háskóla íslands UM SAMSTARF HÁSKÓLA VIÐ FYRIRTÆKI OG SVEITARFÉLÖG í kjölfar olíkreppunnar uppúr 1970 og minnkandi framleiðni í iðnaði varð fyrirtækjum enn ljósara en áður hve nauðsynlegt er að hafa gott samstarf við háskóla og aðrar rannsóknarstofnanir ef takast á að keppa á alþjóðamarkaði á sviði há- tækniiðnaðar. Einnig hafa sveitar- félög lagt sitt af mörku til að efla samvinnu af þessu tagi í því skyni að auka tekjur og atvinnu. Segja má að við allflesta stærri skóla í Bandaríkjuum séu komnar tækni- þróunarmiðstöðvar. Sömu sögu er að segja um Evrópu. Sérstaklega í Bretlandi og á Norðurlöndum hafa risið “vísindagarðar". Það er því ekki að furða að þessi mál séu til umræðu hér á íslandi um þessar mundir og að háskólinn, fyrirtæki og Reykjavíkurborg velti fyrir sér hvernig megi efla rannsóknir og þróunarstarfsemi í tengslu við Háskóla íslands. Menntun háskólakennara í Árbók Háskóla íslands fyrir há- skólaárið 1980-1981 er að finna skrá er sýnir menntun kennara við háskólann eftir stúdentspróf. Þar kemur berlega í ljós hve fjölþætt það undirbúningsstarf er sem menn hafa lagt af mörkum til þess að gera sig hæfa til háskólakennslu og rann- sókna. Þar kemur t.d. fram að 91 af 230 kennurum skólans hefur dokt- orspróf frá 42 mismunandi há- skólum, og það yfirleitt þeim bestu í heiminum á þeirra sviði. Það er því augljóst að við háskólann er samankominn mikill þekkingar- forði sem klaufaskapur er að ríkið og Reykjavíkurborg nýti ekki sem best til rannsókna á sviði nýjunga og tækni. Skipting tekna Háskóla íslands og rannsóknarstarfsemi Eins og kunnugt er nýtur háskóiinn þess að hafa Happdrætti Háskóla íslands að bakhjarli. Hann fær 80% af tekjuafgangi þess, en 20% (eða andvirði þeirra) renna til annarrar rannsóknarstarfsemi í landinu. Læt- ur nærri að 15% af tekjum H.í. komi frá happdrættinu, 80% úr ríkissjóði og 5% eru þjónustutekj- ur. Eru þá ekki taldar með tekjur Háskólabíós og Reykjavíkurapó- teks sem háskólinn rekur. Reyndar er þessi mikli fyrirtækjarekstur óvenjulegur á evrópska vísu. Sé borið saman við aðra skóla er skipt- ingin við Tækniskólann í Stokk- hólmi sú að 67% tekna koma á fjárlögum 28% frá rannsóknar- ráðum og 5% eru þjónustutekjur. Við Minnesotaháskóla er 1/3 tekna frá fylkinu, annar þriðjungur frá alríkisstjórninni (mest samkvæmt rannsóknarsamningum) en afgang- urinn er skólagjöld og ýmsar aðrar

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.