Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1984, Blaðsíða 22

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1984, Blaðsíða 22
22 SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Sé litið á uppbyggingu íslensks iðn- aðar, kemur í ljós, að helstu greinar hans eru þær, sem erlendis eru yfir- leitt taldar til láglaunaiðnaðar. Gildir þetta um ýmsar greinar mat- vælaframleiðslu, fataiðnaðar, hús- gagnaiðnað og ýmsar greinar málm- iðnaðar. Sumar þessara greina hafa á undanförnum árum átt í miklum erfiðleikum í nágrannalöndunum vegna samkeppni frá láglauna- löndum og hefur starfsmönnum í greinum eins og fataiðnaði, hús- gagnaiðnaði og skipasmíðaiðnaði fækkað mjög í flestum nágranna- löndunum. Ekki er ólíklegt, að svipuð fækkun eigi eftir að verða í þessum greinum hér á landi. Jafn- framt bendir margt til þess, að starfsmenn í íslenskum bygging- ariðnaði séu óeðlilega margir. Hlut- fall byggingariðnaðar af heildar- mannafla er 11% á íslandi á meðan hlutfall byggingariðnaðar í flestum öðrum þróuðum ríkjum er undir 5%. Bendir margt til þess að auka megi mjög framleiðni í íslenskum byggingariðnaði og er líklegt, að með aukinni fjöldaframleiðslu byggingahluta í verksmiðjum megi fækka nokkuð starfsmönnum í þessari grein iðnaðar. Margt bendir einnig til þess, að á næstu áratugum muni koma fram tækni, sem gerir mögulegt að auka mjög sjálfvirkni við fiskvinnslu. Þessi tækni mun hafa í för með sér mikla fækkun starfa við fiskvinnslu. Má því með nokkrum rökum halda fram að um- talsverð fækkun starfa verði í ýms- um þeim greinum iðnaðar, sem sterkastar eru á íslandi í dag. Eigi iðnaðurinn að halda sínum hlut hlutfallslega verða því að koma til nýjar greinar iðnaðar. Aukin stóriðja gæti leyst þetta vandamál að nokkru. Nú er talað um að byggja á næstu tveimur ára- tugum álver við Eyjafjörð, kísil- málmverksmiðju á Reyðarfirði, stækkun við álverið í Straumsvík, steinullarverksmiðju á Sauðár- króki. stálvinnslu á Vatnsleysu- strönd og jafnvel kísilkarbíðverk- smiðju á Suðurlandi. Hjá þessum fyrirtækjum er líklegt að starfa muni um 1000 starfsmenn. Miðað við, að eitt starf í stóriðju leiði til tveggja starfa í öðrum greinum iðn- aðar mun uppbygging stóriðju fjölga störfum í iðnaði um 3000. Gert er ráð fyrir, að til þurfi að vera störf yfir 126.232 íslendinga árið 2000. Til þess að hlutur iðnaðar verði hlutfallslega óbreyttur frá því sem nú er (miðað við tölur frá 1982), þurfa störf í iðnaði að verða 43.171. Þetta þýðir, að fjölgunin næstu 16 ár þarf að vera samtals 5125 störf. Þau störf við stóriðju, sem hugsanlegt er, að byggð verði upp til aldamóta, nægja því ekki til að hlutur iðnaðar verði óbreyttur. Ef litið er til annarra þjóða kemur í ljós, að stefna svo til allra iðnaðar- þjóða er að auka til mikilla muna iðnað, sem byggður er á tækni og þekkingu. Telja þessar þjóðir, að þessi tegund iðnaðar verði til þess að bæta lífskjör næstu áratugina með sama hætti og hefðbundinn framleiðsluiðnaður hefur gert á undanförnum áratugum. Þær grein- ar, sem flestir virðast leggja mesta áherslu á eru eftirfarandi: - Rafeindaiðnaður, - lífefnaiðnaður, - fjarskiptaiðnaður, - framleiðsla á nýjum tegundum efna, - geimiðnaður. Hér er um að ræða greinar með nokkuð aðra kostnaðarskiptingu en almennt gerist í hefðbundnum iðn- aði. Hlutur rannsóknar- og þróun- arstarfsemi í framleiðslukostnaði er mun meiri en áður hefur þekkst. Hráefnis- og launakostnaður er hins vegar lægri en algengt er. Þetta hefur það í för með sér, að þjóðir sem ráða yfir þekkingu fá forskot. Litlu máli skiptir hvar þær eru stað- settar í heiminum vegna þess, að flutningskostnaður á hráefni til framleiðslustaðar og á fullunnum vörum til markaðar verður hlut- fallslega lítill miðað við verðmæti vörunnar. Til þess að hátækniiðn- aður blómstri þarf að vera gott framboð á velmenntuðu fólki. Mjög æskilegt er, að iðnaðurinn sé í námunda við háskóla og rann- sóknastofnanir. Mikilvægt er, að fyrirtækin geti ráðið til sín vel þjálf- að vinnuafl. Þar sem rannsóknar- og þróunarkostnaður er oft mikill er nauðsynlegt, að áhættufjármagn sé til staðar.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.