Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1984, Qupperneq 15
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
15
um annars vegar og í Svíþjóð hins
vegar. í því skyni að reyna að ein-
angra þær forsendur sem stuðlað
gætu að framförum á þessu sviði
ætla ég að fara um þetta nokkrum
orðum. Ástæðan fyrir því að
Massachusetts var valið til sam-
anburðar við Svíþjóð er sú að fólks-
fjöldi er svipaður. Áþekkur fjöldi
starfsmanna er í tækniiðnaði um
250 þús. Á báðum stöðum eru laun
tiltölulega há, menntastig hátt
o.s.frv. í ljós kom að erfitt var að
finna einhverja tiltekna gerð fyrir-
tækis sem var líkleg til þess að
verða ofan á eða undir. Þau atriði
sem virtust mestu máli skipta voru
víðfeðm stjórnunarþekking, þ.e.
kunnátta bæði á markaðssviðinu og
tæknisviðinu, svo og aðgangur að
áhættufé. Almenna reglan er sú að
það eru nýju fyrirtækin sem eru í
fararbroddi með nýja tækni og hug-
myndir þótt stórfyrirtækin kaupi
þau ósjaldan upp síðar. Það gæti að
vísu brenglað tölurnar að hugvits-
menn sem starfað hafa við stórfyrir-
tækin hverfi á braut og stofni sín
eigin fyrirtæki. Bandarísku fyrir-
tækin höfðu meira fé milli hand-
anna í byrjun og fjármagnsmarkað-
ur er þar virkari en í Svíþjóð. Hins
vegar gegndu stórfyrirtækin í Sví-
þjóð því hlutverki að útvega minni
fyrirtækjunum fé með því að ráða
þau sem undirverktaka.
í Massachusetts þekktu allir alla en
það kom mér á óvart að í Svíþjóð
vissi einn ekki hvað annar var að
gera á sama sviði. Nálægð við
tækniháskóla skipti miklu máli báð-
um megin Atlantshafsins. Má í því
sambandi nefna að af hverjum 10
nýjungum komu sex hugmyndir frá
kaupendum, 3 frá háskólunum og
1-2 annars staðar frá.
Háskóli íslands og
Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg veitti Háskóla ís-
lands gífurlegan styrk með hinni
höfðinglegu gjöf háskólalóðar á 50
ára afmæli hans 1961 og með
veitingu lands fyrir starfsemi til-
raunastöðvarinnar í meinafræði að
Keldum. Það er þó fyrst nýlega að
formlegt samstarf við Reykjavíkur-
borg hefur hafist með því að há-
skólinn og Reykjavíkurborg hafa
ráðið sér starfsmann sameiginlega
til þess að vinna að eflingu hátækni-
iðnaðar á Reykjavíkursvæðinu.
Sömuleiðis var tekið tillit til þess
við samninga háskólans, ríkisins og
Reykjavíkurborgar um framtíðaraf-
not af Keldnaholtinu að þar gætu
risið stofnanir og fyrirtæki sem
hefðu hag af nálægð við háskólann
og rannsóknarstofnanir atvinnuveg-
anna á Keldnaholti.
Þróunarmiðstöð Háskóla íslands
og fyrirtæki í tengslum við hana
I Háskóla íslands er nú verið að
vinna að fjölda áhugaverðra þróun-
arhugmynda á sviði rafeindatækni,
hugbúnaðar og líftækni o.fl. sem
geta leitt til framleiðslu á nýjum
háþróuðum iðnaðarvörum til sölu
heima og erlendis. Á fjölmörgum
tæknisviðum eru ekki starfandi á
Islandi fyrirtæki sem geta notfært
sér og styrkt rannsóknarstarfsemi í
landinu. Það er áhugavert að stuðla
að stofnun slíkra fyrirtækja svipað
og gert hefur verið erlendis. Einnig
má geta þess að margir efnilegri
íslendingar eru nú í framhaldsnámi
erlendis og er mikilvægt að þeir
nýtist vel þegar heim kemur að
námi loknu. Auk þess hefur ekki
farið fram hjá neinum að þriðji
hver íslendingur hefur nú nám í
Háskóla íslands og þann mannauð
þarf að virkja ekki síður en
fallvötnin, jarðhitann, sjávarafla og
landbúnaðarvörur.
Þjónusturannsóknir og tilraunir í
háskólanum eru orðnar það fjöl-
þættar að nauðsynlegt er að beina
þeim í skipulegan farveg. Hin opna
frjálsa rannsóknarstarfsemi við há-
skóla hentar heldur ekki alltaf þeg-
ar komið er út í harða samkeppni
þar sem vinna þarf hratt, með Ieynd
og fyrir áhættufé. Einnig þarf að
leysa ýmis flókin höfundarréttar-
mál jafnframt því sem virkja þarf
einstaklingsframtakið í rannsókn-
um og framleiðslu.
Eftir viðræður við menn innan og
utan háskólans er ég um þessar
mundir að vinna að stofnun þróun-
armiðstöðvar eða þróunarfyrirtækis
Háskóla íslands. Markmiðið yrði
að efla hagnýtingu rannsókna við
háskólann, nýsköpun og vöruþróun
á sviði hátækniiðnaðar með því að
auðvelda starfsmönnum háskólans
að koma hugmyndum sínum í fram-
kvæmd með bættri starfsaðstöðu og
starfsliði, með ráðgjöf á sviði mark-
aðsmála og nægilegu áhættufé til að
stunda markvissa og öfluga þróun-
arstarfsemi; að efla nýsköpun og
fjölbreytni í íslensku atvinnulífi og
stuðla að eflingu háþróaðra iðn-
greina hérlendis til að fjölga at-
vinnutækifærum fyrir háskóla-
menntaða menn og aðra þegna
þjóðfélagsins; að efla möguleika á
áhugaverðum störfum við há-
skólann fyrir íslenska námsmenn
þegar þeir komg aftur heim frá sér-
fræðinámi erlendis. Fyrirtækið
heyrði undir háskólaráð en væri
sameign háskólans, fyrirtækja og
fjármálastofnana. Það starfaði á
viðskiptalegum grundvelli eftir
deildum og annaðist samninga við
aðila innan og utan skólans. Það
yrði því eins konar umsýsluaðili
sem ekki framkvæmdi rannsóknir
sjálft nema þá að litlu leyti. Leiði
þróunarstarfsemin til söluhæfra
hugmynda gæti það síðar leitt til
stofnunar fyrirtækja samkvæmt al-
mennri löggjöf þar sem eignaraðild
gæti verið með ýmsum hætti
þ.e.a.s. gæti verið eign háskóla og
fyrirtækja eða þá einstakra háskól-
akennara í samvinnu við ýmsa aðila
eða jafnvel alfarið í eigu utanskó-
laaðila. Ég tel heppilegast m.k. á
þessu stigi að ríki og Reykjavíkur-
borg eigi ekki beina aðild að þróun-
armiðstöðinni. Hins vegar hlýtur fé
og aðstaða að koma frá þeim með
ýmsum hætti Ég bind miklar vonir
við samstarf af þessu tagi og trúi því
að með því sé unnt að flýta þróun
hugmynda um mörg ár sem út af
fyrir sig er yfirleitt bráðnauðsynlegt
í þeirri hörðu samkeppni sem ríkir
á flestum sviðum. Sömuleiðis bind
ég miklar vonir við að við getum
haslað okkur völl á sviði ýmis-
skonar hugbúnaðar. í slíkum tilvik-
um skiptir afskekkt lega landsins
ekki miklu máli. Svo vill til að sala
hugbúnaðar á alþjóðamarkaði vex
nú um 40% á ári þegar sala á hrá-
efni stendur í stað eða jafnvel
dregst saman. Einnig treysti ég því
að þær aðgerðir sem gripið hefur
verið til í efnahagsmálum og ráð-
gerðar eru til eflingar atvinnulífs í
landinu verði til styrktar samstarfi
milli háskóla og fyrirtækja. Á ég
þar við hjöðnun verðbólgu og
hækkun rauvaxta sem leiðir til
meira framboðs á sparifé og áhætt-
ufé svo og þær breytingar á hluta-
fjárlöggjöf og lögum um viðskipta-
banka sem væntanlegar eru. Allar
tilraunir koma ekki til með að tak-
ast -