Arkitektúr og skipulag - 01.08.1988, Blaðsíða 40
Hallæris plan“
IBUDIR
VERSL WÓN
VERSL
1 ~
MIDBŒJARMARKADUR
.......
ÍBÚÐIR
ÍBÚDIR
ÍBÚDIR
Arkitekt Gestur Ólafsson, samstarfs-
menn Hilmar Þór Björnsson arkitekt og
Örn Sigurösson arkitekt.
Fyrir röskum 10 árum voru margir arki-
tektar farnir að gera sér grein fyrir því að
æskilegt gæti verið að byggja yfir versl-
unargötur og torg hér á landi til þess að
mynda skemmtilegra verslunarumhverfi
fyrir gangandi fólk. Á þessum árum voru
m.a. settar fram hugmyndir um yfir-
byggða verslunargötu í nýjum miðbæ
við Miklubraut/Kringlumýrarbraut (þar
sem Kringlan stendur nú), yfirbyggðan
miðbæ í Garðabæ, og yfirbyggt Austur-
stræti að hluta. Einnig voru settar fram
tillögur 1977 um að byggt yrði þak yfir
„Hallærisplanið“ og reistar þriggja til
fimm hæða byggingar umhverfis það
sem teygðu sig upp að aðliggjandi
brunagöflum sem eru til lýta á þessu
svæði.
Ajarðhæö og fyrstu hæð var gert ráð
fyrir margs konar félagsaðstöðu, veit-
ingum, aðstööu fyrir leiksýningar,
barnagæslu o.m.fl., auk sérverslana og þjón-
ustustarfsemi. Á efri hæðum þessara bygginga
var gert ráð fyrir 90 íbúðum. ( kjallara undir
þessum byggingum var gert ráð fyrir um 140
bílastæðum, sem fyrst og fremst voru þáver-
andi stæði á þessu svæði. Lagt var til að göm-
ul timburhús á þessu svæði væru flutt um set
á auðar lóðir f Grjótaþorpi og endurnýjuö þar.
Þessar tillögur voru fyrst og fremst settar fram
með það að markmiði að bæta umhverfi í
Kvosinni tímanlega og auka samkeppnishæfni
verslana og þjónustufyrirtækja þar áður en
bygging nýs miðbæjar við Miklubraut/Kringlu-
mýrarbraut hæfist. Þá þegar gerðu menn sér
fulla grein fyrir því að Kvosin gæti aldrei keppt
við ný verslunarhverfi um fjölda bílastæða og
aðgengileika heldur þyrfti aö bjóða upp á eitt-
hvað annað; gróna fjölbreytta byggð, gott
menningarlegt umhverfi; miðstöð sérverslunar
og þjónusta á (slandi.
Settar voru fram þrjár mismunandi hugmyndir
um uppbyggingu á „Hallærisplaninu" og þar af
var ein valin til frekari útfærslu. Ekki voru allir
á eitt sáttir um ágæti þessara tillagna frekar en
fyrri daginn. Þeir sem vildu mótmæla tillögun-
um héldu því fram í dreifibréfi að þarna stæði
til að rífa 11 hús og byggja í staðinn 5 hæða
verslunar- og íbúðasamstæðu. Boðuðu þeir til
mótmælafundar á „Hallærisplaninu" í janúar
1978, þar sem Hamrahlíðarkórinn og Spilverk
þjóðanna sungu, og boðiö var upp á heitt te.
Nokkru síðar tók nýr meirihluti við völdum í
Reykjavík sem áleit önnur mál mikilvægari en
að byggja þak yfir „Hallærisplanið“.
Síðan er liðinn áratugur. Nýr miðbær er risinn
við Miklubraut/Kringlumýrarbraut, með yfir-
byggðri verslunargötu. Þótt mikið hafi verið
skipulagt í Kvosinni síðan þetta var hefur lítið
verið gert til að bæta umhverfi Steindórsplans
og „Hallærisplans" síðastliðinn áratug. Von-
andi hefur það þó glatt einhver hjörtu.
Þeir í Reykjavík, sem ennþá leggja það á sig að
versla í Kvosinni í Reykjavík þegar norðangarr-
inn næðir um bílastæðin á „Hallærisplaninu“
eiga þó ekki neitt yfirbyggt torg með laufguð
tré þar sem hægt er að hlusta á góða tónlist,
rabba saman og drekka heitt te undir þaki áður
en haldið er út í kafaldsbylinn og næðinginn á
ný. ■
Gestur Ólafsson
38
39