Arkitektúr og skipulag - 01.08.1988, Page 88
5. Kynning hverfaskipulags
Eftir að frumdrög að hverfaskipulagi liggja fyrir
tekur við kynningarferill sem skipt er í þrennt:
I. Kynning í þeim nefndum og ráðum innan
þorgarinnar er málið varðar, m.a. skipulags-
nefnd, umferðarnefnd, umhverfismálaráði og
borgarráði. Á þessu fyrsta stigi er farið í gegn-
um einstaka þætti hverfaskipulagsins. Gerð er
grein fyrir þeim kostum sem þjóðast og nefnd
dæmi um úrbætur á þeim stöðum þar sem
þeirra er þörf.
II. Borgarafundir. Á þeim eru drög að hverfa-
skipulagi kynnt íbúum viðkomandi borgar-
hluta. Óskað er eftir ábendingum og athuga-
semdum. Reynt er að haga borgarafundunum
þannig að sem flestir geti tekið til máls til að
skýra sín sjónarmið. Enda er virk þátttaka íbúa
ein af forsendum fyrir góðu skipulagi. Borg-
arafundir eru vandlega bókaðir og er fundar-
gerðin m.a. send öllum borgarfulltrúum til yfir-
lestrar. Á borgarafundum er dreift blöðum þar
sem gerð er grein fyrir helstu þáttum hverfa-
skipulagsins ásamt upplýsingum hvert hægt sé
að koma ábendingum og athugasemdum eða
leita eftir frekari upplýsingum. Borgarafundir
eru vel kynntir í fjölmiðlum, bæði í gegnum
auglýsingar og blaðagreinar. Ennfremur eru
veggauglýsingar hengdar upp á fjölförnum
stöðum víðs vegar um borgarhlutann. Eftir
borgarafundi eru sendar út fréttatilkynningar
sem greina frá helstu niöurstöðum fundarins.
III. Eftir borgarafundinn hefst lokavinnsla
hverfaskipulagsins. Þá er farið yfir athuga-
semdir og ábendingar sem borist hafa. Hverfa-
skipulagið er lagt fram til kynningar í viðkom-
andi nefndum og ráðum borgarinnar ásamt
ábendingum og athugasemdum. Eftir sam-
þykkt þess hefst lokavinnsla einblöðungsins
og undirbúningur fyrir þrentun. Pessi kynning-
arferill tekur um fjóra mánuði.
6. Afgreiðsla hverfaskipulags
7. Einblöðungur hverfaskipulags
Myndirnar sem fylgja greininni eru af fyrsta
einblöðungnum sem samþykktur var hjá
Reykjavíkurborg og hefur honum þegar verið
dreift inn á hvert heimili í borgarhluta 4 (Teig-
ar, Laugarnes, Lækir, Kleppsholt, Laugarás,
Sund, Heimar og Vogar). Fyrirhugaö er að
Ijúka við hverfaskipulag fyrir tvo borgarhluta til
viðbótar á þessu ári, 1988, borgarhluta 5 og
borgarhluta 1 (gamla bæinn). En stefnt er að
því að hverfaskipulagsvinnu fyrir alla borgar-
hluta Reykjavíkur verði lokið á árinu 1990.
Hverfaskipulagið er afgreitt í skipulagsnefnd,
umferðarnefnd og umhverfismálaráði og end-
anlega í borgarstjórn.
86
Birgir H. Sigurðsson, skipulagsfræðingur.