Arkitektúr og skipulag - 01.08.1988, Side 63
GRUNNMYND
Tb b “o 51
1 I
Dæmi um góða útlitsteikningu sumarbústaðar, teikningin er málsett og fram kemur
bygging arefni.
Dæmi um skipulagsuppdrátt sem hefur það helsta sem til er ætlast.
arbústaðahverfa þarf að koma fram tilhögun
gatna, bílastæða og göngustíga ásamt skil-
greiningu á notkun lands til sameiginlegrar úti-
vistar. Einnig er æskilegt að komi fram notkun
gróðurs, fyrirhugaðar landfyllingar og merkja
þarf stærð byggingarsvæðis eða þaö svæði þar
sem leyfilegt er eitthvert jarðrask.
Skilyrði ætti að vera að með umsókn fylgi loft-
mynd þar sem merkt væri inn lega lands og
sumarbústaða. Með loftmynd er auðvelt að
átta sig á gróðurlendi og notkun landsins. Því
miður er upplýsingagildi þeirra skipulagsupp-
drátta sem berast skipulagsstjórn oft mikið
ábótavant. Oft eru teikningar rissaðar upp óná-
kvæmlega án mælikvarða eða nokkurs kenni-
leitis í landinu. Ómögulegt er þannig fyrir
ókunnuga að átta sig á staðháttum og skipu-
lagi. Ferill umsóknar og öll málsmeðferð er til
að fyrirbyggja tilviljunarkennda sumarbústaða-
byggð sem oft hindrar önnur landnot og er til
umhverfismengunar.
Haustið 1986 sendi skipuiagsstjóri bréf til allra
sveitarstjórna þar sem spurt var um fjölda
sumarbústaða í viðkomandi sveitarfélagi. Svör
bárust frá flestöllum sveitarstjórnum landsins
og er samanlagður fjöldi bústaöa samkvæmt
þeirri könnun.
Byggðir sumarbústaöir 1986 samtals 4749
Sumarbústaðir í byggingu samtals 405
Skipulagðar lóðir, óbyggðar samtals 2435
Velmegun og góð afkoma hefur leitt til að ekki
einungis fáir hafi tækifæri til að koma sér upp
sumarbústað. Ekkert virðist benda til að sam-
dráttur færist í byggingu sumarbústaða, hvorki
byggingu bústaða í einkaeign né orlofsbústaða
í eign fyrirtækja, félagasamtaka eða bænda.
Mikið framboð er á landspildum til leigu undir
sumarbústaði. Kröfur almennings eru að auk-
ast, mikill kostur er talinn vera aðgangur að
heitu og köldu vatni. Margir setja kröfu um ná-
lægö við sína föstu búsetu. Algengara er nú aö
bústaðir eru notaðir að vetrum og virðast vera
sterkar óskir um að byggja stærra en áður.
Hér hefur verið sagt frá málsmeðferð vegna
umsóknar um byggingarleyfi á landsvæðum
þar sem ekki er til staðar samþykkt skipulag,
ásamt því aö minna á nauðsynleg gögn er
þurfa að fylgja með umsögn um skipulags- og
byggingarleyfi. Ekki er meiningin aö hefta
byggð á sumarbústöðum eða sumarbústaða-
þyrpingum en gæta þarf skynsemi og fegurð-
arskyns í skipulagi og staðsetningu. Nauðsyn-
legt er aö veita þjóðfélagsþegnum aðgang að
náttúru landsins sem víðast hefur verið útrýmt
úr þéttbýli landsins. Fríða B. Eðvarösdóttir
61