Arkitektúr og skipulag - 01.08.1988, Qupperneq 33

Arkitektúr og skipulag - 01.08.1988, Qupperneq 33
£3 UTLIT FRA FRAKKASTÍG hús á reitnum væru fjarlægö. Könnun var gerö á viðhorfum húseigenda og voru viðbrögðin yfirleitt jákvæð. Flestir voru tilbúnir til að selja sín hús ef viðunandi verð fengist fyrir þau. Gert var ráð fyrir því að heillegustu húsin yrðu flutt á óbyggðar lóðir vestan við þennan reit og þar mynduð húsaþyrping umhverfis torg. Höfundar þessarar hugmyndar höfðu tiltölu- lega frjálsar hendur um mótun byggðar á þessu svæði. f stórum dráttum var hugmyndin fólgin í því að tvær neðstu hæðirnar, þ.e. sú hæð sem tengist Laugavegi og sú sem tengist Grettisgötu, voru hugsaðar fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi sem aftur tengist göngugöt- unni sem liggur samsíða, milli þessara gatna. Pessi göngugata var hugsuð sem allsherjar verslunarsvæði, sem yrði sambland af smá- verslunum og þjónustufyrirtækjum og hugsan- lega líka einhverjum stórmörkuðum. Ofan á þessum hæðum var heil hæð ætluð fyrir bíla- stæði. Pessi hæð aðgreindi líka verslunarstarf- semina frá íbúðum og skrifstofum á efri hæð- um. Skrifstofurnar sneru út að Laugavegi, en íbúðirnar voru stallaöar niður að Grettisgötu, með stórum svölum gegnt suðri. Þegar hugmyndin var kynnt fyrir borgaryfir- völdum þótti mönnum þetta eitthvað stærra í sniðum og róttækara en þeir höfðu átt von á. Geir Hallgrímssyni, þáverandi borgarstjóra, leist ekki á að þetta væri framkvæmanlegt. Prátt fyrir að borgarverkfræðingur væri mjög áhugasamur um hugmyndina lognaðist hún út af vegna þess að borgaryfirvöldum þótti ekki ráölegt að ráöast í neitt í þessa veru. Hug- myndin komst því ekki lengra og var í raun ekki kynnt neitt fyrir almenningi. Hún varð því aldrei annað en vinnuplagg fyrir borgina og var svo stungið niður í skúffu. Einungis var litið á þessa hugmynd sem hugsanlegan kost við uppbyggingu. Með þessu má segja að borgaryfirvöld hafi gefist upp á að reyna að lífga upp á gamla bæinn og hafi ákveöið að efla í staðinn nýjan miðbæ í Kringlumýri. Einnig má segja að hug- arfar fslendinga hafi staðið í vegi fyrir því að nokkrar stórhuga hugmyndir hafi náð fram að ganga á gömlum byggðasvæðum. Það er varla hægt að gera nokkuð í þessum gömlu hverfum án þess að upp rísi alls konar aðilar sem kvarta yfir því að allt sé verið að eyðileggja. Fyrir bragðið eru þessar gömlu götur víða eins og hálf tannlaus gómur - stór hús og smákof- ar, hvort innan um annað, sem valda þvílíku ósamræmi að varla er til heillegur götuspotti nokkurs staðar. ( Reykjavík má samt víða sjá ► 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.