AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Qupperneq 11
G E S T U R
Ó L A
F S S O N
UMHVERFI INNAN DYRA
jóðir eins og við, sem búa nyrst á norðurhveli
jarðar við myrkur og kulda utan dyra mikinn
hluta vetrar, eiga mikið undir því að það
umhverfi sem mótað er innan dyra í byggingum
létti þeim leiki og störf þann tíma sem beðið er eftir hlýju
og birtu sumarsins.
Að hanna gott og heilsusamlegt umhverfi innan dyra sem
hentar íslendingum sérstaklega er flókið mál, ef vel á að
vera. Oft nær hönnunin ekki lengra en að nota síðustu
tískulitina og tískuformin úr alheimstískublöðunum og
oft vill sú þekking sem við eigum tiltæka um áhrif
byggingarefna, ljóss, lita, hita, hávaða, geislunar og raka
á fólk, svo eitthvað sé nefnt, gleymast í eltingarleiknum
við tískuna.
Oft gleyma hönnuðir því að á hverjum degi borðar hver
manneskja u.þ.b. 1 kg af mat, drekkur um 2 kg af vatni og
andar að sér um 24 kg af lofti. Rannsóknir hafa Iíka leitt í
ljós að fólki líður að öllum jafnaði best og vinnuafköst eru
mest við um 22 stiga hita. Aðeins fjögurra stiga frávik frá
þessu lækkar vinnuafköst u.þ.b. 15%.
Ahrif sólarljóss á fólk eru löngu þekkt og mælingar hafa
sýnt fram á að bakteríur í lofti eru mun færri í herbergjum
þar sem sólar nýtur en þar sem sólar nýtur lítið eða ekkert.
Margar þjóðir sem búa sunnar á hnettinum en við hafa
tekið upp ákvæði í sín byggingar- og skipulagslög um
lágmarksfjölda sólskinsstunda í íbúðarherbergjum, en í
íslenskri löggjöf er engin slík ákvæði að finna.
Loftræsti- og rakakerfi í byggingum geta verið ágæt, en
þau þurfa stöðugt eftirlit ef vel á að vera, ekki síður en sían
í gufugleypinum yfir eldavélinni sem reglulega þarf að
skipta um ef hún á ekki að verða gróðrarstía fyrir bakteríur.
Þótt tiltölulega einfalt sé að mæla og fylgjast með
breytingum á umhverfi innan dyra í byggingum er það
alltof sjaldan gert, hvort heldur um er að ræða stóra
vinnustaði eða heimili. Engu að síður hefur verið sýnt
fram á að ef það er gert, getur verið um mjög góða
fjárfestingu að ræða, sérstaklega ef tekið er tillit til aukinnar
vellíðunar fólks, meiri afksta og færri slysa á vinnustað.
Auðvitað eiga íslendingar að taka sér hér tak og sérhæfa
sig í því að mynda gott umhverfi innan dyra í byggingum
á norðlægum slóðum og nýta til þess alla fáanlega
tækniþekkingu til viðbótar við tískubrellurnar úr
alheimspressunni. Þá er aldrei að vita nema hér gæti verið
um nýja útflutningsafurð að ræða. ■
9