AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Page 27
SERSTAÐA ISLENSKRAR FRAMLEIÐSLU
ER ÍSLENSK HÖNNUN."
ELISABET V. INGVARSDOTTIR
INNANHÚSSARKITEKT
viðtal viðSigurjón Pálsson húsgagnaarkitekt.
Fyrir nokkrum árum heyrði ég á tal tveggja
athafnamanna í biðstofu bankastjóra. Annar
þeirra rak prjónastofu og hafði fjölda manns í
vinnu. Aðspurður sagðist hann ekki hafa neinn
sérstakan hönnuð í vinnu, það væri alltof dýrt. Hins vegar
væru nokkrar handlagnar konur í vinnu hjá honum sem
gaukuðu að honum nýjum uppskriftum öðru hverju...
í Ráðhúsi Reykjavíkur var haldin sýning á vegum Félags
húsgagna- og innanhússarkitekta, dagana 14. - 24. október.
A sýningunni voru sýnd húsgögn hönnuð af níu félags-
mönnum FHI. Húsgögn þessi voru í september síðast-
liðnum sýnd á alþjóðlegu húsgagnasýningunni í Bella
Center í Kaupmannahöfn. Þetta var í annað sinn sem FHI
tók þátt í þeirri sýningu, sem er eins og ílestum er kunnugt
árlegur viðburður.
Flest þessara húsgagna voru kynnt á síðasta hönnunardegi,
þó voru nokkur þeirra sem ekki höfðu sést áður. Ómar
Sigurbergsson kynnti nýjan sófa, DC-3, Erla Óskarsdóttir
staflanlegan stól „Nytorv“ og Sigurjón Pálsson einnig
staflanlegan stól, „Rapsodíu“. Aðrir sem sýndu voru Edda
Ríkharðsdóttir,FinnurP. Fróðason, Kristinn Brynjólfsson,
Guðrún M. Ólafsdóttir, Oddgeir Þórðarson og Þórdís
Zoéga. Eins og myndir frá sýningunni bera með sér er
mikilgróskaííslenskrihúsgagnahönnun,endavarárangur
Bella Center sýningarinnar sá að ýmsar þreifingar eru í
gangi á erlendri grund.
Sjálfsagt blundar sá draumur meðal allflestra sem þátt taka
í húsgagnasýningum að feitur forstjóri birtist og bjóði í
hönnunina. Eitt aðalmarkmiðið er að hönnunin komist í
framleiðslu úti í hinum stóra heimi.
Hjá Sigurjóni Pálssy ni húsgagnaarkitekt rættist sá draumur.
Til hans kom Wolfgang Bruneforstjóri „Brune Möbelfabrik
GMBM & Co.“ ekki síðar en á öðrum degi sýningarinnar
í Bella Center. Fyrirtækið er með þeim stærri á sínu sviði
í Þýskalandi og rekur þrjár verksmiðjur þar auk einnar í
Yfirlitsmynd úr ráðhúsinu.
Skissa af
Rapsodiu.
25