AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Page 29
Tengifesting.
til að styrkja hönnunina gegn því að fá framleiðslurétt á
stólnum. Atvinnumálanefnd staðarins bauðst til að útvega
mann á verkstæðið sem átti að framleiða stólinn. Vegna
seinagangs og neikvæðra viðbragða iðnþróunarfélags
héraðsins virtist hugmynd þeirra um markað aldrei ná út
fyrir landsteinana.
Það var hér sem Sigurjóni þótti hann vera algjörlega strand
og sjálfsagt hafa fleiri hönnuðir staðið í sömu sporum.
Hann afréð þó að freista fáránleikans og leita á toppinn og
fór á fund þáverandi iðnaðarráðherra Jóns Sigurðssonar.
Það var í ráðuneytinu sem fjárstuðningur fékkst til
áframhaldandi vinnu, auk þess sem atvinnurekandi
Sigurjóns, IKEA á íslandi, kostaði ferð hans og uppihald.
Með þrotlausri vinnu hjáfagmönnum Stálkó sem smíðuðu
grindina og Sigurði Knútssyni trésmið í Kópavogi varð
„Rapsodiudraumurinn“ að veruleika tveimur tímum áður
en loka átti gámnum sem flutti húsgögnin á sýninguna í
Kaupmannahöfn.
Að fenginni reynslu telur Sigurjón mikilvægt að efla
frekar samvinnu hönnuða og framleiðenda. Þetta hafi
lengi verið í umræðunni en herslumuninn vanti.
„Það eru framleiðendurnir sem eru með fingurinn á
púlsinum, þeir ættu frekar að leita til hönnuðarins heldur
en öfugt. Þeir sem stjórna sölunni eru með markaðinn í
sínum höndum. Hönnuðirnir ættu að eiga mun meiri þátt
í framleiðslunni. Við þurfum að þróa verkþekkingu og
handverk sem eru hreinlega í hættu. Þróun verkþekkingar
felst í mun meiri samvinnu hönnuða og framleiðenda. Við
þurfum ekki að bera kinnroða gagnvart erlendum
hönnuðum, það kom skýrt fram á BellaCenter-sýningunni
þar sem íslensku húsgögnunum var sýndur mikill áhugi og
myndir af þeim birtust í fjölda tímarita. Ég fylgdist grannt
með hinum norrænu hönnunarhópunum en enginn þeirra
gat státað af viðbrögðum í líkingu við þau sem íslensku
þátttakendurnir fengu. Við þurfum að hugsa okkar gang
og meta okkar sérstöðu með tilliti til sameinaðrar Evrópu.
Sérstaða íslenskrar framleiðslu er íslensk hönnun.“
Sigurjón taldi þátttöku íslenskra hönnuða í Bella Center-
sýningunni vera gott frumkvæði hjá FHI. Hann hefur
mikla trú á íslenskri hönnun og telur íslenska hönnuði hafa
fyrir sér óplægðan akur,íslensk hönnun hafi mikið að-
dráttarafl og eigi sér framtíð. Þróunin sé sú að Islendingar
vilji velja íslenskt, þetta geti gerst á öðrum sviðum ef
framleiðendur læri að nota íslenska hönnuði. Það þurfi að
efla skilning framleiðenda á mikilvægi þess að markaðssetja
rétt, á því grundvallist gróskan. Hann telur hönnunina vera
fyrir hendi það sé aðeins framleiðsluapparatið sem þurfi
að fara í gang. Af þeim níu íslensku hönnuðum sem sýndu
í Bella Center komust fjórir í marktæk viðskiptasambönd
við erlenda aðila en Sigurjón var eini sem kom heim með
frágenginn samning.
Sigurjón segir tilurð Rapsodiu og velgengni hafa einkennst
af röð tilviljanafrekaren umhreint markmið væriaðræða.
Hins vegar hafi hann unnið mjög mark visst að því að koma
stólnum á framfæri á sýningunni í Bella Center. Það sé
mikill vandi að taka þátt í sýningu sem þessari ef ná á
einhverjum árangri. Mjög mikilvægt sé að hönnuðurinn
eða framleiðandinn, ef hann er fyrir hendi, sé á staðnum
allan tímann. Sigurjón útbjó fimmtán myndamöppur sem
hann dreifði á sýningarbása þekktra húsgagnafyrirtækja.
Brune Möbelfabrik var að leita að sérstakri gerð stóls sem
átti að uppfylla ákveðið notagildi. Það gerði Rapsodia.
En hvernig stóll er Rapsodia? Stóllinn er fyrst og fremst
hugsaður fyrir veitingahús en getur engu að síður hentað
til margvíslegra nota, svo sem á heimilum og sem ráð-
stefnustóll. Hann sómir sér jafnvel einn sér og sem hluti af
heild. Stólnum má stafla í stæður og einnig má tengja
stólana saman á snjallan máta sem er lítt áberandi. Grind
stólsins er úr stáli og beinist stöðluð framleiðsla að svartri
eða krómaðri grind. Hins vegar er hægt að velja úr 26 litum
á grindina en það kostar meira. Setan er bólstruð. Bak
stólsins er ýmist spónlagt með beyki eða mahóníi.
Form stólsins sækir Sigurjón til fiðlunnar og sellósins eins
og sjá má í lögun setunnar útskurði, baksins og örmunum,
en stóllinn fæst bæði með og án arma. En hljóðfæri
Rapsodiunnar eru fleiri því lögun tengifestinganna sem
eru ákaflega látlausar og fyrirferðarlitlar eru teknar frá
þverflautunni. Sigurjón segist hafa hrifist af sígildri fegurð
þessara hljóðfæra sem engum hefur enn tekist og mun
sjálfsagt aldrei takast að betrumbæta. ■
27