AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Page 36

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Page 36
ISLENSK FYNDNIIBYGGINGARLIST ÁRNI ÞORVALDUR JÓNSSON ARKITEKT Kynlegur kokteill íslenskrar byggingarlistar. Margir kannast við söguna um ameríska leikstjórann, sem fékk séralltaf skemmti- túr með leigubíl þegar hann lenti í nokkurra tíma „stop-over“ á Keflavíkur- flugvelli. Skemmtitúrinn fólst í því að aka um helsta þéttbýlissvæðilandsinsog hlæjasigmáttlausanyfirskringi- legheitum í byggingarlist og skipulagi íslenskra bæja. En hvað er svona fyndið við þessa sýn? geta menn spurt sig. Auðvitað er það sundurgerðin og sérkennileg tilþrif í einstökum húsum, auk furðulegra tilburða í skipulagi sem minna erlend augu á trúðslegan klæðaburð. I trúðs- tískunni er það sundurgerðin sem skapar heildina. Hvernig getur sundurgerð skapað heild? Er von að spurt sé. Þetta er samt sem áður fullyrðing sem heyrist æ oftar í athugasemdum landsmanna þegar borgarmyndina ber á góma. Menn segja að það sé einmitt hinn mikli fjölbreyti- leiki og skörðóttar götumyndir sem skapi „sjarma“ reyk- vískrar borgarmyndar. Á sama hátt eru viðvaningslegar lausnir í einstökum húsum trúlega „sjarmerandi"! Sérkennileg hlutföll, ósam- stæðgluggasetning, tilgerðarlegartískubólur, súlurhérog súlur þar, „epal“ gluggar út úr veggjum og þökum og ofvaxin burðarvirki (vissara að vera réttu megin við öryggis- mörkin ef menn vita ekki hvar þau liggja) eru helstu kryddið í þessum „kynlega“ kokkteil. En er það nokkuð annað en skilyrðislaus uppgjöf gagnvart gerðum hlut að finnast þetta „sjarmerandi"? Ef þú færð ekki sigrað andstæðinginn gakktu til liðs við hann. Það er ef til vill ekki nema von að menn gefist upp við að reyna að ná einhverri heildarmynd á okkar ástkæru borg, því ekki virðist okkur hafa orðið mikið ágengt. „ Mjög ískyggilegur galli er það á skipulagi Reykjavíkur, að enn eru engin föst ákvæði um það, hvar byggja megi marglyft hús með háum brunagöflum, sem rísa upp hingað og þangað innan um sundurlaus, lág hús, án þess að nokkur trygging sje fyrir því, að nokkru sinni fáist skaplegt sam- ræmi í byggingarnar." (Um skipulag bæja, eftir Guðmund Hannesson 1916.) Þessi orð gæti ég allt eins gert að mínum því þau virðast eiga jafnvel við í dag og þegar þau voru skrifuð fyrir 77 árum. En hvað er til ráða ef menn vilja ekki gefast upp? Harla 34

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.