AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Blaðsíða 49
I
FRUMHUGMYND AÐ SKIPULAGI GARÐS VIÐ
■ ■
HVERFISGOTU tileinkaö 50 ára afmœli lýöveldisins áriö
1994
Afundi framkvæmdanefndar vegna 50 ára
lýðveldishátíðar í Reykjavík á næsta ári var
á sl. vori samþykkt að valinn yrði staður
inn-an byggðar í Reykjavík, þar sem gróður-
settur yrði trjálundur í tilefni af lýðveldishátíðinni. í
framhaldi af því var farið að huga að stöðum, sem til greina
kæmu, og staðnæmst við tæplega 700 m2 lóð á horninu á
Hverfisgötu og Smiðjustíg. A þeim slóðum lá frá örófi
alda aðalleiðin niður í meginbyggð Reykjavíkur fram hjá
Traðarkoti og niður Arnarhólstraðirnar að vaði á lækjar-
ósnum. Vestan við lóðina er tvílyft steinhús frá 1912, sem
Jón Magnússon fyrsti forsætisráðherra landsins lét reisa
en austan við er steinhús, sem reist var 1913, og er þar
danska sendiráðið og bústaður sendiherrans.
Á ióðinni er einlyft timburhús, sem byggt var árið 1903.
Borgarráð hefur samþykkt að flytja húsið í Grjótaþorp að
Vesturgötu 5a. Við austurgafl hússins er yfir sjö metra hár
silfurreynir með fagurri krónu og er lagt til að hann verði
varðveittur. minni ilmreynirstendurþarnorðan við. Megin-
hluti lóðarinnar er nú nýttur sem bílastæði.
Nýjum trjám (garðahlyni og undirgróðri) verður plantað í
hringform út frá silfurreyninum. Þrír inngangar verða að
garðinum, tveir frá Hverfisgötu og einn fráÞjóðleikhúsinu
og verður bekkjum komið fyrir meðfram stéttinni, þar
fyrir innan verður grasflöt. í skipulagshugmyndinni er
skírskotað til jarðfræðilegra, landfræðilegra og sögulegra
þátta tengdra þingstöðum á íslandi. Ætlunin er að í
garðinum verði komið fy rir einkennisbergi frá þingstöðum
fjórðunganna til forna:
FJÓRÐUNGUR:
Vestfírðingafj.
Norðlendingafj.
Austfirðingafj.
Sunnlendingafj.
ÞINGSTAÐUR: EINKENNISBERGTEGUND:
Þórsnes Líparít (súrt gosberg)
Hegranes Blágrýti (basískt gosberg)
VíkíLóni Granít(súrtdjúpberg)
Þingvellir Hraun (basískt gosberg)
Að auki verði Reykjavíkurgrágrýti (basískt gosbergjsem
einkennisberg fyrir núverandi þingstað þjóðarinnar.
Grjóthnullungarnir verða 1,5- 2,0 metrar á hæð og verður
hluti af hliðinni sem nýr suður sagaður í sléttan flöt þar
sem nöfn bergtegundarinnar og þingstaðarins verða meitlað
ígrjótið. Grjótinuverðurkomiðfyriríréttrilandfræðilegri
afstöðu þannig að hægt verði að gera sér grein fyrir
hlutfallslegri fjarlægð milli staðanna. í miðju garðsins
verður koparskjöldur felldur inn í hellulögnina með
skýringum um tilurð og uppbyggingu garðsins.
Hönnuður garðsins er Yngvi Þór Loftsson landslagsarki-
tekt, framkvæmdin verður á vegum Garðyrkjudeildar
Reykjavíkurborgar. ■
'TKA&AsCUÍOT'
A TEIKNIBORÐINU