AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Blaðsíða 52

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Blaðsíða 52
UM ALMENNINGSSAMGONGUR OG BORGARSKIPULAG HARALDUR SIGURÐSSON SKIPULAGSFRÆÐINGUR / Aundanfömum áratugum hefur þeim fækkað stöðugt sem nota almenningsvagna til að komast leiðar sinnar innan Reykjavíkur. Árið 1970 fór hver íbúi borgarinnar að meðaltali 164 ferðir með SVR á ári en árið 1991 fór hver íbúi 68 ferðir að meðaltali. Þetta er fækkun ferða um 60 %, sem er enn athyglisverðari þegar tekið er tillit til þess að ferðatíðni hefur almennt aukist meðal borgarbúa. Þessi neikvæða þróun hefur verið borgaryfirvöldum áhyggjuefni, sér- staklega vegna þess að rekstrarafkoma S VR hefur versnað og þar með hefur þurft að auka framlag borgarinnar til rekstursins. Borgaryfirvöld hafa hins vegar lítið gert til að breyta þessari þróun til betri vegar. Helsta ástæða þess er sennilega sú að borgaryfirvöld líta á þetta sem eðlilega þróun, að fækkun farþega með SVR sé óhjákvæmileg afleiðing aukinnar einkabílaeignar. Vissulega er aukin einkabílaeign ein aðalástæða þessarar neikvæðu þróunar. Áárinu 1970 voru 214einkabílaráhverja lOOOborgarbúa en árið 1991 vartalaeinkabílakomin í464áhverja 1000 borgarbúa. Hins vegar er aukin einkabílaeign ekki grund- vallarástæða þessarar þróunar og fækkun ferða með al- menningsvögnum erekki endilegaóhjákvæmileg afleiðing aukinnar einkabílaeignar. Á undanförnum mánuðum hefur rnikið verið rætt og ritað um vanda almenningssamgangna í Reykjavík, jafnframt því sem hin mikla untferð einkabíla hefur verið gagnrýnd. Þær lausnir á vandanum, sem mest hefur borið á, snúa að því að bæta þá þjónustu sem SVR veitir. Með því að auka ferðatíðni strætisvagnanna og gera þjónustuna ódýrarari (eða jafnvel ókeypis) er því trúað að hægt sé að sporna við „einkabílismanum". Farþegafjöldi með S VR myndi aukast og rekstrarafkoma fyrirtækisins batna og gerði það mögulegt að efla þjónustuna enn frekar. Með þessum aðgerðum myndi smám saman draga úr bílaumferð og samgöngukostnaður myndi lækka. Að bæta þjónustu SVR er af hinu góða, þó ekki væri nema til að þjóna betur þeim sem ekki hafa einkabíl til umráða. Hins vegar er ólíklegt að slíkar aðgerðir einar sér myndu breyta miklu um þá þróun sem verið hefur á undanfömum áratugum. Miðað við núverandi skipulag í Reykjavík og óbreyttar áherslur í borgarskipulagningu, er hreinlega óraunhæft að auka þjónustu almenningsvagna mikið og ætlast til þess að hún sé samkeppnisfær við einkabílinn. Þessu til stuðnings er sú staðreynd, að þrátt fyrir að gæði almenningsvagnaþjónustu í Reykjavík hafi haldist eða jafnvel aukist lítillega á tímabilinu 1970 til 1991, þá fækkaði farþegum SVR stöðugt allt tímabilið. Breyttar áherslur í borgarskipulagi eru forsendur þess að raunhæft sé að efla almenningssamgöngur. Breyta verður áherslum er varða þéttleika byggðar, landnotkun og hönnun umhverfis fyrir fótgangandi vegfarendur og notendur almenningsvagna, svo mögulegt sé að bæta rekstrar- umhverfi almenningsvagnaþjónustu í borginni. Óraunhæft er að ætlast til að boðið sé upp á almennings- vagnaþjónustu á háu stigi í einbýlishúsahverft í Grafarvogi í slíku hverfi er þéttleiki byggðar mjög lítill, Þ.e. mjög fáir íbúar eru á hvern ha. lands sem almenningsvagnaleiðin liggur um, og því litlar líkur á góðri nýtingu vagnsins vegna íbúa hverfisins. I slíku hverfi er heldur engin sú þjónusta eða verslun sem gæti haft aðdráttarafl fyrir íbúa annarrahverfa og því litlar líkur á góðri nýtingu almennings- vagnsins af þeim sökum. Þá er einnig óraunhæft að ætla að margir noti almennings- vagna í borgarumhverfi þar sem illa er búið að fótgangandi umferð. Þó tiltölulega margir almenningsvagnar stansi á hverri klukkustund á Miklubraut nálægt verslunarmið- stöðinni Kringlunni, þá hika eflaust margir við að taka vagn þangað, vegna þess að það þarf að fara yfir götur með þungri bílaumferð, þar sem engin merkt gangbraut er, og í gegnum dimmt bílastæðahús sem er uppfullt af menguðum lofttegundum, áður en komið er inn í verndað umhverfi verslunarmiðstöðvarinnar. Hér eru kynnt nokkur hugtök og aðferðir í borgar- skipulagsfræði sem lúta að því að bæta rekstrarumhverfi almenningsvagnajafnframt því að bæta umhverfi almennt fyrir fótgangandi og hjólandi vegfarendur. Einkum er stuðst við stefnu innan borgarskipulagsfræðinnar sem kennd hefur verið við „Transit-supportive land use plan- ning“ en einnig er tekið mið af áherslum sem koma fram hjá skipulagsfræðingum sem boða afturhvarf til borgar- umhverfis fyrirtímaeinkabílismans (neo-traditional plan- ning). Þau hugtök og þær áherslur sem kynnt eru hér á eftir eru ekki nýjar að öllu leyti. Um það hefur verið rætt og ritað meðal skipulagsfræðinga undanfama þrjá áratugi. Á seinustu árum hefur þessi umræða aukist mjög í N- Ameríku þar sem þörf á áherslubreytingum er hvað mest. 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.