AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Qupperneq 53

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Qupperneq 53
Þörf á áherslubreytingum er ekki síður mikil í skipulagi Reykjavíkur. Þeim áherslum, sem boðaðar eru í þessari stefnu um bætt rekstrarumhverfialmenningssamgangnaogminnibílaum- ferð, má skipta í tvo flokka: 1) Landnotkun og þéttleiki byggðar sem stefna er mörkuð um á aðalskipulagsstigi. 2) Uinhverfi fótgangandi umferðar og notenda almenningsvagna sem er útfært og hannað á hverfis- og deiliskipulagsstigum. LANDNOTKUN OG ÞÉTTLEIKI BYGGÐAR Mikill þéttleiki byggðar er helsta forsenda þess að hægt sé að bæta almenningsvagnaþjónustu og minnka bílaumferð án þess að draga úr velferð. A almenningsvagnaleiðum, sem liggja um þétta byggð með mörgum atvinnutækifærum á hvern ha. lands, er nýting vagna venjulega góð. Þegar nýting vagna er góð skapast forsendur fyrir því að bæta þjónustuna sem aftur eykur farþegafjölda og nýting vagnanna verður enn betri. Aftur á móti er óraunhæft að auka mikið þjónustu á leiðum sem liggja um byggð með litlum þéttleika. Blöndun landnotkunar er önnur mikilvæg forsenda þess að hægt sé aðbæta almenningsvagnaþjónustu. Með blönd- un landnotkunar er átt við að íbúðabyggð sé í nánum tengslum við verslunar-, þjónustu- og athafnasvæði. Jafnframt því sem blöndun landnotkunar eykur nröguleika fólks á að búa og vinna í sama hverfi (geta gengið eða hjólað til og frá vinnu og þar með dregið úr bílaumferð) þá bætir hún rekstrarumhverfi almenningsvagnaþjónustu. Almenningsvagnar á leið milli tveggja svæða með bland- aðri landnotkun eru líklegri til að vera vel nýttir en Mynd 1. Mikilvœgt er að þéttleiki byggðar sé sem mestur meðfram almenningsvagnaleiðum. @ MIKILL ÞÉTTLEIKI E3 MINNI ÞÉTTLEIKI O MINNSTI ÞÉTTLEIKI almenningsvagnar á leið milli svæða með einhæfri land- notkun. A fyrrnefndu leiðinni eru líkur á jafnri nýtingu í báðar áttir, en á síðarnefndu leiðinni yrðu vagnarnir e.t.v. einungis nýttir af íbúum íbúðarsvæðis á leið til og frá vinnu að morgni og kveldi. Til að tryggja gott rekstrarumhverfi fyrir almennings- samgöngur verður að gæta að eftirfarandi undirstöðu- atriðum við gerð aðalskipulags: 1) Að innan hvers borgarhluta sé blönduð og fjölbreytt landnotkun. Forðast verður það að stór svæði séu lögð undir einn landnotkunarflokk. 2) Að ákveðnum lágmarksþéttleika byggðar sé náð innan hvers borgarhluta og hverfis. Sérstaklega er mikilvægt að þéttleiki byggðar sé mikill þar sem væntanlegar almenn- ingsvagnaleiðir liggja. Sjámynd 1. 3) Að þéttleiki byggðar sé mikill og landnotkun fjölbreytt í grennd við almenningsvagnamiðstöðvar (skiptistöðvar; þar sem margar leiðir skerast). Sjá mynd 2. 4) Að þéttleiki og blöndun landnotkunar séu aukin við götur sem almenningsvagnar aka um. Einn möguleiki er að byggja íbúðarhúsnæði ofan á núverandi verslunar- og þjónustuhúsnæði. Sjá mynd 3. 5) Að þjónusta og verslun sé staðsett nálægt sem flestum biðstöðvum almenningsvagna. 6) Að þjónusta (t.d. heilsugæsla) sem nauðsynleg er þeim sem háðastir eru almenningssamgöngum (t.d. eldra fólki) sé staðsett sem næst biðstöð almenningsvagna. 7) Að svæði með miklum þéttleika byggðar og blandaðri landnotkun séu vel tengd innbyrðis með almennings- samgöngum. 8) Að tekið sé tillit til sérþarfa almenningsvagna við hönnun gatnakerfisins. Mynd 2. í grennd viö almenningsvagnamiðstöðvar er mikilvœgt að landnotkun sé blönduð og fjölbreytt. BLANDA, VERSLUN OG ÍBÚÐIR 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.