AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 65

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 65
og ráðamenn samþykktu sjónarmiðið. Útkoman varð Markaðurinn eins og við höfum þekkt hann, parkgatan varð ruslatunnusund milli Markaðarins og Landsíma- hússins. Þegar svo var hafist handa um endurskoðun skipulagsins í Kvosinni sneri lóðareigandinn sér til þeirra sem var falið það verk, með þá hugsun að nauðsyn bæri til að hækka Markaðinn. En lóðarhafinn hafði í upphafi látið reikna unditrstöður fyrir hús sem var tveimur hæðum hærra en samþykkt hafði verið. Síðan las maður um það í byggingablaði Moggans að til stæði að hækka Markaðinn um þrjár hæðir og athugun hjá byggingarfulltrúa sýnir að það var skipulagshönnuðurinn sem teiknaði stækkunina til byggingarnefndar. Og nú er þessi „arkitektoniska dýrð“ risin eins og sjá má. Með þessu hefur ruslatunnusundið fengið nýja „dimension". Og ekki óverðugum þætti verið bætt við Ingólfstorg. Þar kom að því að menn fóru að byggja torg í henni Reykjavík. Ég tel að þróun Miðbæjar- markaðarins sé lýsandi dæmi um þá óheillaþróun sem getur átt sér stað ef skipulagshöfundurinn og arkitektinn búa í sama líkama. Þessi tengsl verður að rjúfa. Nýju stjómsýslulögin ættu að koma í veg fyrir áframhald þessarar þróunar. Hér er máski rétt að segja frá öðrum lóðahafa sem sneri sér til sömu skipulagshönnuða til að fræðast um væntanlega nýtingu á lóðum sínum. Þar sem hann vildi ekki svara ítrekuðum fyrirspurnum hönnuðanna um hver ætti að teiknafyrirhann, þá gátu þeirekki upplýst hann um hvers hann mætti vænta um lóðarnýtingu. Þegar lóðahafinn lagði síðar fram hugmyndir sínar um uppbyggingu á lóðum sínum þá lögðust skipulagshönnuðirnir á móti tillögunni og mál hans dó. Enn eitt dæmi um afskipti arkitekta af umhverfismótun er að finna við Lækjartorg. Þar hafði arkitekt og skipulags- fræðingur gefið húsinu Hafnarstræti 20 grunnform eftir fjöruborði sem hann meinti að hefði verið þarna endur fyrir löngu. Sennilega hefur nú undirrótin að fjöruborðinu verið þörf lóðarhafans fyrir ögn fleiri fermetra. Það lenti svo í höndum nefndararkitekts að setja gluggagöt eða arkitektúráskipulagsnýtinguna,raunarþess samanefndar- arkitekts sem ruddi brautina fyrir „pavillionen" í parkgötu Einars heitins Sveinssonar. Ætli þessi dæmi geri það ekki nokkuð vafasamt að arkitektar eigi að hafa óskilyrtan rétt til umhverfismótunar, allavega ekki þeir sem selt hafa sál sína fyrirfram fyrir einn grautardisk? En mér finnst skoðanaleysi arkitekta hafa farið vaxandi með árunum. Viðskiptavinurinn á að ráða því sem þarf til að hann verði ánægður og finni að hann hafi fengið vanda sinn leystan, en hann máekki brjóta niður heilbrigð viðhorf arkitektsins.“ Talið berst að tengslum arkitektúrs við tæknina og listina og spurninguna um hvort arkitektúr sé listgrein. „Tæknin ætti ekki að hindra mann, ekki þegar maður ræður við hana, en það er forsenda og þá getur hún orðið manni lyftistöng. En ég veit ekki hvernig arkitektúr tengist öðrum list- greinum, það er allavega vonlaust að ætla að redda vondu húsi með því að drekkja því í myndlist. Og ég held það sé oft með listina eins og með Olaf konung að þeir lofa hann mest sem hvorki hafa heyrt hann eða séð. Og allt þetta listablaður, drottinn minn sæll og góður, hafðu mig afsakaðan.“ Hvaða skoðun hefur þú á því að stofnaður verði arki- tektaskóli á Islandi? „Ég er frekar mótfallinn því að við förum að stofna arkitektaskóla nema þá sem byrjunarskóla sem beindist eingöngu að tæknilegu hliðinni á náminu eða sem svaraði forskóla. Þá yrði einnig að tryggja nemendum vist ífram- haldsskólum, fleiri en einum. Ég er hræddur um að einangraður skóli hér heima myndi fljótt leiða til for- pokunar. Hitt mætti einnig hugsa sér að flytja kennara hingað en hætt er við að það myndi fljótt segja til sín í lausung í skólastarfi. Svo má einnig segja að það sé arkitektum nauðsyn að vaxa upp í sínu samfélagi og náttúrlega umhverfi. En líti maður til þess að það er grunnþáttur í námi og þjálfun arkitekta að leita skilnings á því umhverfi sem verið er að vinna að hverju sinni, sé ég ekki að það skipti sköpum hvort við starfrækjum skóla hér heima. I þessu sambandi er rétt að líta til verka Högnu Sigurðar- dóttur, arkitekts. Högna hefur stundað allt sitt nám í Frakklandi við náttúruskilyrði mjög frábrugðin okkar, en eigi að síðurhef égekki séð íslenskari hús en þau íbúðarhús sem Högna hefur teiknað hér í Reykjavík og í Garðabæ. Jafnframt teiknar hún skólabyggingar í Frakklandi sem virðast opnafaðminn móti hinni frönsku sól og blíðujafn innilega og hús hennar í Reykjavík snúa baki í frostið og harðneskjuna. Sem sagt rétt hús í réttu umhverfi. Það er góður arkitektúr. Högna getur verið okkur fordæmi um nauðsyn þess að kryfja eiginleika efna og eðli umhverfis til að nálgast góða byggingarlist.“ H vaða möguleika sérðu fyrir þér fyrir unga arkitekta? „Sömu möguleika og arkitektar hafa alltaf haft. En þeir þurfa að losna undan því fargi „korruptionarinnar'1 sem hér ræður allt of miklu bæði innan stéttarinnar og í stjórnsýslunni, þannig að hæfileikar ungra manna fái notið sín byggingarlistinni og þeim sjálfum til hagsbóta. Arkitektar ættu að reyna að kryfja verkefnin til skilnings þegar þau berast og að kryfja eiginleika byggingarefna svo þau verði arkitektum undirgefín til lausna. Ef þetta tekst þá held ég að allt ætti að vera í lagi.“ ■ Olöf Guðný Valdimarsdóttir. 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.