AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 68

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 68
GERVIHNATTASAMSKIPTI VIÐ FISKISKIP Ný tækni sem á eftir að hafa áhrif á þróun sjávarútvegs. GYLFI AÐALSTEINSSON FRKVST. Fang hf. er tveggja ára gamalt íslenskt hug- búnaðarfyrirtæki sem hefur það að markmiði að hanna og selja fjarskiptabúnað til notkunar við tölvufjarskipti við fiskiskip. Homsteinninn í rekstri Fangs hf. er samstarfssamningur við Alþjóðlega gervihnattafjarskiptafyrirtækið Inmarsat. Samningurinn felur í sér að Fang hf. hannar grafískt flotaeftirlitskerfi og samskiptakerfi við fiskiskip, sem nýtir Inmarsat C gervihnetti til fjarskipta. Inmarsat styrkirhönnun kerfisins og hefur rétt til að nýta það við kynningar og tilraunir fiskveiðiyfirvalda með nýja tegund eftirlits með fiskveiðum skipa í sinni landhelgi og eigin fiskveiðiskipa utan sinnar landhelgi. Hér á eftir er gerð nokkur grein fyrir þessari nýju samskiptatækni, skýrt hvemig hugbúnaðarkerfi Fangs hf. er byggt upp og jafnframt skoðað hvaða þýðingu þessi nýja tækni getur haft fyrir sjávarútveg og markaðsfærslu sjávarfangs í framtíðinni. INMARSAT GERVIH NATTAKERFIÐ FYRIR FARARTÆKI Inmarsat er alþjóðlegt sameignarfyrirtæki rrkisstjóma og símafyrirtækja sem stofnað var þann 16. júlí 1979 á grundvelli alþjóðlegs fjarskiptasamnings. Höfuðstöðvar Inmarsat eru í London en tæplega sjötíu ríki eru nú aðilar að þessum fjarskiptasamningi og hafa hvert fyrir sig útnefnt fjarskiptafyrirtæki sem fulltrúa sinn og eignaraðila að Inmarsat. ísland er aðili að fjarskiptasamningnum og er Póstur og sími fulltrúi og eignaraðili fyrir fslands hönd að Inmarsat. Inmarsat er síðan fjármagnað af eignaraðilum sem eiga hluti í fyrirtækinu. Markmið Inmarsat er að byggja upp hnattrænt gervi- hnattafjarskiptakerfi fyrir farartæki á landi, sjó og í lofti. Bannað er að nýta Inmarsat til hemaðarlegra nota. Hér verður eingöngu rætt um nýtingu Inmarsat fyrir fiskiskip. Inmarsat fjarskiptakerfið byggir á þremur megineiningum. í fyrsta lagi Inmarsat gervihnöttum sem staðsettir eru á fjórum stöðum 36.000 km yfir miðbaug, snúast jafnhratt jörðu og eru því alltaf yfir sama stað á jörðu. Inmarsat rekur þessa gervihnetti og selur jarðstöðvum þjónustu sína. í öðru lagi jarðstöðvum á landi (Land Earth Stations, skammstafað LES) sem reknar eru flestar af símafyrir- tækjum semjafnframt eiga í Inmarsat. LES eru á stærð við Skyggni og þjóna hver um sig einum Inmarsat gervihnetti. Mikil samkeppni er milli jarðstöðva um þjónustu við viðskiptavini. Sjálft rekur Inmarsat ekki jarðstöðvar. í þriðja lagi jarðstöðvum í farartækjum (Mobile Earth Stations, skammstafað MES) sem staðsettar eru um borð í farartækjum. Hægt er að fá margar mismunandi tegundir af MES frá um 20 framleiðendum. Notendur Inmarsat þurfa að kaupa MES til að geta nýtt sér þjónustuna. Lengst af í sinni starfsemi hefur Inmarsat boðið upp á þjónustu gegnum Inmarsat A talsímakerfið. MES fyrir Inmarsat A eru nokkuð stórar, rúmlega metra háar og vega um 120 kg. Þess vegna hefur nýting Inmarsat A takmarkast við stærri skip og fjarskipti gegnum það kerfi hafa verið nokkuð dýr. Aðeins stærstu fiskiskip hafa nýtt Inmarsat A hingað til og verður ekki fjallað frekar um það kerfi hér né arftaka þess, Inmarsat B, sem nú er komið í notkun. INMARSAT C TIL TÖLVUFJARSKIPTA Frá áramótum 1991-2 hefur Inmarsat boðið upp á nýja þjónustu gegnum Inmarsat C kerfið til gagnkvæmra tölvufjarskipta við farartæki. Inmarsat C fjarskiptakerfið er hið eina sinnar tegundar í heiminum, sem spannar nánast alla jörðina. Kerfið getur miðlað samskiptum 75° gráður norður og suður frá miðbaug. Norskir aðilar hafa hannað aukabúnað sem eykur drægni kerfisins allt að 80° N og S frá miðbaug, þannig að kerfið ætti t.d. að nýtast skipum í Smugunni. Það sem gerir kerfið sérstaklega hentugt til notkunar fyrir fiskiskip er að Inmarsat C MES tækin eru lítil umfangs og geta nýst öllum tegundum fiskiskipa, allt niður í trillur. ÓÓ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.