AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 74

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Síða 74
UMHVERFISMÁLÍ BRENNIDEPLI STEFÁN THORS SKIPULAGSSTJÓRI RÍKISINS Meta þarf umhverfisáhrif vegaframkvœmda. o C > E c o -Ö O) _c b T3 c 3 E <0 3 0 o c > E -o Asama tíma og byggingarframkvæmdir hafa verið að dragast saman á undanförnum árum hefur gæðahugtakið verið að fá aukinn sess í allri umfjöllun um mannvirkjagerð. Að öllum líkindum er það tilviljun að þetta tvennt hafi farið saman í tíma en sú staðreynd, að svo hafi verið, hefur gert það að verkum að aðilar sem koma að ákvarðanatöku um framkvæmdir og leyfisveitingum hafa haft meira svigrúm til að skoða málið frá öllum hliðum áður en hafist er handa. Þótt það sé að sjálfsögðu meginatriði að halda uppi atvinnu í byggingariðnaði þá má það ekki verða til þess að magn vegi þyngra en gæði þegar gildi framkvæmda er metið. Ekki er lengur horft á notagildi mannvirkis eitt og sér heldur er farið að skoða það í miklu víðara samhengi. Mannvirkið er ekki lengur einkamál þess sem það byggir. Alveg eins og það kemur okkur öllum við hvort gengið er svo á fiskistofna að jaðri við útrýmingu með tilheyrandi efnahagslegum afleiðingum þá kemur það okkur við hvort ár og vötn em menguð, byggðir lagðar í eyði eða loftmengun spillir heilsu manna. Náttúmvernd og nýting auðlinda þurfa ekki að vera ósættanlegar andstæður frekar en fögur náttúraumgjörð þurfi að þýða að þar megi ekkert byggja og engu raska. Aðalatriðið er að nýtingin sé á þann veg að ákvarðanir séu teknar að vel athuguðu máli, jafnvægi haldist og manngert umhverfi styrki frekar náttúrlegt umhverfi en eyðileggi það. Náttúran er og verður breytileg og huga þarf að því við inngrip mannsins hvað gerist ef hún er látin afskiptalaus og hvernig náttúrlegt umhverfi breytist með aðgerðum mannsins. Mannvirkjagerð má til skemmri tíma litið skoða sem atvinnuskapandi fjárfestingu. Þegar til lengri tíma er litið og í víðu samhengi er mannvirkjagerð hins vegar umhverfismál og þarf því að skoðast í því ljósi. Árið 1990 var komið á fót nýju ráðuneyti umhverfísmála þar sem sameinuð var m.a. yfirstjórn skipulags-, byggingar- og náttúruverndarmála. I umhverfisráðuneytinu hefur verið unnið að samræmingu þessara málaflokka og stefnumörkun í umhverfismálum. Mikið hefur áunnist á tiltölulega stuttum tíma. I mars 1993 kynnti ráðuneytið t.d. stefnu og framkvæmdir ríkisstjómarinnar í umhverfismálum undir heitinu „Á leið til sjálfbærrar þróunar“ og vinna nú 7 starfshópar á vegum ráðuneytisins að gerð framkvæmda- áætlunar í umhverfís- og þróunarmálum sem taka mun til allra þátta íslensks samfélags. í skipulags- og byggingarmálum eiga sér nú stað miklar breytingar og enn frekari breytinga er að vænta. í febrúar 1993 mælti umhverfisráðherra fyrir frumvarpi til skipu- lags- og byggingarlaga og í maí í vor voru samþykkt lög á Alþingi um mat á umhverfisáhrifum. Þá var einnig samþykkt breyting á skipulagslögum sem gerir kleift að 72
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.