AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1993, Page 89
Þar sem norður - suður geislinn sker hellulögn gangstéttar
og steinlögn, er hugmyndin, að reist verði fánastöng.
Þegar sólin er í hásuðri mun skuggi hennar skera miðju
hringsins. Klakkar, 6 talsins, 70 cm á hæð, 20 cm að
þvermáli, afmarka torgið í suður. Þeir ættu að koma í veg
fyrir að bflum verði lagt á torgið.
Hringurinn sjálfur er að einhverju leyti hugsaður sem
minning um Tívolí, sem var á þessum stað fyrir nokkrum
áratugum. Gras verður ofan á hleðslunni, sem er 2 m breið,
og einnig á svæðinu fyrir utan hringinn. Þar verði einnig
gróðursett tré og runnar af ýmsum tegundum, ekki hærri
en 4 metrar, gjarnan blómstrandi, svo sem sýrena, yllir,
birki, hansarós, með undirgróðri, t.d. glansmispli, kvistum
ýmiss konar og víði.
Fyrir austan hringinn í a - sa geira er gert ráð fyrir litlum
„sandkassa“, niðurfelldum í steinlögnina. Innan íhringnum
verður bekkur, sem „teygir sig“ fram fyrir garðinn við
sandkassann. Utfærsla á bekk og öðrum frágangi, t.d. við
TORGIÐ
A torginu verði hlaðinn hringlaga garður með hinni fornu
íslensku aðferð klömbruhleðslu, sem notuð var við hleðslu
margra gamalla torfbæj a, en einnig mætti nota aðra tegund
hleðslu. I Vatnsmýrinni væri eftil vill mögulegt að útvega
efni í hleðsluna, en vissulega ber að fara að öllu með gát
og virða verndun Vatnsmýrarinnar. Fyrir nokkrum árum
voru gerðar tilraunir með torfhleðslur í Vatnsmýrinni.
Hringlaga garðurinn opnast móti suðri og er ætlunin að
marka áttina norður - suður með steinlögn. Steinninn, sem
lagt er til að nota í steinlögnina er hjá framleiðendum
nefndur fornsteinn. Miðja torgsins verður lögð hringlaga
mynstri, en geislar með stefnuna norður - suður, sa - nv og
sv - na látnir skipta hringnum. Utan hringsins verði steinar
lagðir í geislamynstur, eins og sýnt er á uppdrætti.
Gangstéttir í kring verða hellulagðar.
STEINLÖGN I MtÐJU
FORNSTCINN LAOÐUR I
STEJNLÖGN UTAN HRINGS
FORNSTEINN LAODUR I OEJSLAMYNSTUR
flaggstöng, verður nánar skilgreind, er nær dregur fram-
kvæmdum.
Lagt er til, að fenginn verði listamaður, sem hefur góða
þekkingu á þeirri list að hlaða veggi úr torfi. Þekkingu,
sem mikilvægt er að haldið verði við. Því er lagt til, að
hleðsla hringsins verði verkefni námskeiðs í torfhleðslu,
sem listamaðurinn stjórnar. Með þátttöku íbúa og annarra
tengdra aðila (t.d. úr leikskólanum) gæti myndast sam-
kennd í hverfinu.
Hugmyndin með þessu torgi er, að það geti nýst íbúum
hverfisins til sameiginlegra leikja. Þar er hægt að setjast
og spjalla, meðan börnin leika sér í sandkassanum, eða
hjóla. Þarna gætu íbúar komið sér upp sameiginlegu grilli,
þar mætti halda leiksýningar, hægt væri að sitja eða liggja
í sólbaði eða bara ganga framhjá og minnast liðinna tíma.
Fagur frágangur torgsins gæti orðið íbúum hvatning til að
ljúka við húsin sín og rækta upp garða sína. Námskeiðið
gæti jafnframt orðið til þess, að torfhleðslur yrðu notaðar
í görðum í ríkara mæli. ■
87