Skessuhorn


Skessuhorn - 02.11.2022, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 02.11.2022, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 202222 Morgunstund var haldin í Brekku- bæjarskóla á Akranesi síðastliðinn föstudagsmorgun og var hún til- einkuð 80 ára afmæli Akraneskaup- staðar. Þar voru á boðstólum atriði frá nemendum skólans og stóðu þeir sig allir með mikilli prýði. Þá voru veittar viðurkenningar til nemenda úr öllum bekkjum fyrir að standa sig vel í félagshæfni í skól- anum. Morgunstundin fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu og var nánast fullt hús af nemendum og aðstandendum þeirra. Blaða- maður Skessuhorns kíkti við og tók nokkrar myndir af skemmtuninni. vaks Morgunstund í Brekkubæjarskóla Nemendur úr 5. bekk tóku Queen lagið We Will Rock You með íslenskum texta. Þessir nemendur fengu viðurkenningu fyrir góðar dyggðir. Þriðji bekkur söng af mikilli innlifun. Sandra Bohdan nemandi í 3. bekk spilaði á gítar. Þessi plokkaði bassann af mikilli list. Pólskir nemendur í Brekkó sungu lag frá heimalandinu af miklum móð. Það var mikil stemning í salnum. Þrír bekkir fengu umhverfisviðurkenningu. Vel var tekið undir í laginu Í larí lei. Myndir nokkurra nemenda af Akrafjalli. Þessir nemendur spiluðu undir söng.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.