AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Side 33

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Side 33
verða margar hverjar að teljast vafasamar ef ekki slys í byggingarsögunni, sé ekki mál að linni Eitt er það efni sem margir arkitektar trúa að sé bæði gegnumsætt ásamt því að það fari vel við hvers kyns byggingar, en það er glerið. Þegar saman fara af- sprengi modernismans og gler getur farið verr en ilia. Eiga hús að hafa viðbyggingarmöguleika eða ekki? Við þröngar götur miðaldaborga Evrópu er oft ókleift að byggja við. Það er einfaldlega ekki rými til þess. Þar hvarflar það ekki heldur að fólki ef þörfin fyrir meira rými kemur til. Þá er einfaldlega flutt í annað og stærra hús eða íbúð. Þar sem meira rými er fyrir hendi freistast fólk frekar til að byggja við jafnvel þó hagkvæmara sé og réttara að flytja sig um set. Á íslandi tengist það þeim algenga hugsunarhætti að laga húsin að sér í stað þess að aðlaga sig hús- unum. Þessi aðlögun verður oft til þess að eyðileggja, einkum eldri hús eða jafnvel rífa þau, sem er annað mál. Ein tegund viðbygginga er sú að byggja við minni hús þannig að þau svari betur kröfum nútímans, oft hvað varðar hreinlætisaðstöðu ásamt auknu rými al- mennt. Þetta getur skipt sköpum þegar finna á eldri húsum áframhaldandi hlutverk og getur verið for- senda þess að varðveita viðkomandi hús. Oft er um að ræða efnalítið fólk sem ræðst í slíkar framkvæmdir. En þá bregður svo við að valdhafinn refsar fyrir slíkt tiltæki, a.m.k. í Reykjavík þar sem slík iðja er skatt- lögð. Það heitir gatnagerðargjald á mæltu máli og er ekki óeðlilegt á nýbyggingasvæðum, en orkar mjög tvímælis í þessum tilvikum. Tökum dæmi: Einstæð móðir með eitt barn byggir Útvegsbankinn í Reykjavík byggður 1904. Höf. Ch.Thurin. Ofan á og viðb. frá 1962. Höf. Örn Sigurðsson. kvist til að rýmka til í risíbúð sinni, þar sem tvö af þremur herbergjum eru undir súð og eingöngu með þakgluggum. Stækkun íbúðar 20 m2, gjald 16.060. Til skamms tíma var annar skattur álagður, sem var bílastæðagjald sem var á bilinu 500- 900 þúsund á hvert bílastæði ef ekki var hægt að sjá fyrir því á lóð. Þetta kom til við minnstu viðbyggingar, en hefur verið leiðrétt, svo að nú má byggja allt að 200 mz án þess að bílastæða sé krafist. ■ KIPULAG RÍKISINS Rit um skipulags- og byggingarmál Auk þess: Lög og reglugerðir um skipulags - og byggingarmál Umhverfismat fyrir Skútustaðahrepp Svæðisskipulag Suðumesja 1987-2007 Svæðisskipulag í Flóa 2011 Svæðisskipulag fyrir sveitarfélögin sunnan Skarðsheiðar 1992-2012 Stefnumörkun um skipulags-og byggingarmál Fjallabakssvæðisins 1993-2003. Eru til sölu hjá Skipulagi ríkisins, Laugavegi 166,150 Reykjavík, sími 5624100, bréfasími 5624165.

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.