AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Side 38
FINNUR BIRGISSON ARKITKET
Tillaga um viðbyggingu:
AÐALSTRÆTI 44 AKUREYRI
Byggöin við suðurhluta Aðalstrætis heitir
frá gamalli tíð „Fjaran". Þarna var byrjað
að byggja um 1840 og gömlu húsin
standa þarflest enn, en hafa tekiðýms-
um breytingum í tímans rás. Margir telja Aðalstrætið
fegurstu götu bæjarins, mikill trjágróður setur svip
sinn á götumyndina og yfir byggðinni gnæfir Brekkan
og veitir henni skjól. Húsin eru fjölbreytt að stærð og
gerð og við mörg þeirra standa enn bakhús eða við-
byggingar, sem ýmist hafa þjónað sem gripahús og
hlöður eða sem verkstæði og smiðjur iðnaðarmanna.
Aðalstræti 44 var byggt um 1840 og er því alfriðað
skv. núgildandi lögum. Húsið er dæmigert lítið timbur-
hús frá þessum tíma, 54 x 7,4 m að grunnfleti, með
bröttu risi og stendur í brattri hlíð. Nú er á bak við
það tveggja hæða skúr, sem innangengt er í af báð-
um hæðum gamla hússins, og vegna hæðarmunar-
ins er hægt að ganga af efri hæð skúrsins út á lóðina
vestan hans. Meginskilyrði af hálfu eigandans, sem
býr einn í húsinu, var að fyrirkomulag viðbyggingar
yrði svipað að þessu leyti. Fyrirhugað er að færa
gamla húsið í upprunalegt horf og að viðbyggingin
komi í stað skúrsins sem verði rifinn. Áður höfðu verið
gerðar tvær tillögur um viðbyggingu við húsið og
hlaut önnur þeirra ekki náð fyrir augum eigandans,
en á hina vildi Húsfriðunarnefnd ekki fallast.
Mjög lágt er undir loft í gamla húsinu og skapar það
vandkvæði á að tengja við það tveggja hæða við-
byggingu, sem hafi boðlegar lofthæðir, án þess að
gnæfa yfir hið gamla eða kaffæra það. í meðfylgjandi
tillögu er viðbyggingin aðallega í formi nýs port-
byggðs húss tæpum 3 m aftan við hið gamla, og er
með því tekið upp bakhússtemað, sem mikil hefð er
fyrir í Fjörunni.Bakhúsið tengist síðan hinu gamla með
grannri tengibyggingu. Mænishæð tengiálmunnar
verður sú sama og á gamla húsinu, en nýja húsið
Norðurhlið.
Suðurhlið.