AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 40

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 40
□ tröltkonan § oo 30 C> z o o o (/> o O' H H 71 Z o LO o oo > 73 7v LÓÐIN VIÐ ÁSMUNDARSAFN Höggmyndagarður Safn Ásmundar Sveinssonar er fjölsótt af fólki á öllum aldri, ungum sem öldn- um, konum sem körlum og erlendum feröamönnum. Víða má sjá Ijósmyndir af safninu og eru oft í forgrunni myndanna hlýlegar og sterk- byggöar höggmyndir Ásmundar, myndirnar vekja oft forvitni erlendra gesta. Ásmundur var áhugasamur um umhverfið, trjárækt og náttúruna. Sjálfur byrjaöi hann aö skipuleggja garðinn og kom þar fyrir mörg- um verka sinna. Nýverið var lóðin stækkuð og gerð ný tillaga að skipulagi lóðarinnar. SÖGUÁGRIP Ásmundur Sveinsson fæddist á Kolsstöðum í Dalasýslu 1893. Áriðl 942 hóf hann byggingu kúlu- hússins við Sigtún, sem síðan var vinnustofa hans og heimili. Ásmundur átti að baki langan og fjölþætt- an feril. Á þriðja áratugnum, í Stokkhólmi og París, var hann leitandi og list hans einkenndist af fjölbreyti- legum tilraunum. Um miðjan fjórða áratuginn leggur Ásmundur sig fram við að brjóta niður og snúa út úr þeim akademísku gildum sem fram að þessu höfðu vísað honum veginn og verið honum grunnsannindi. Hann teygir og ummyndar formin og samsamar þau myndefninu líkt og kemur fram í verkunum Vatnsber- anum og Járnsmiðnum. Þessar formrannsóknir lista- mannsins áttu síðan eftir að opna honum nýjar víddir í listinni. Á 5. áratugnum fjarlægist Ásmundur hvers- dagsleikann í verkum sínum og leggur sig eftir mynd- efni úr íslendingasögunum. Ásmundur virðist í þess- um verkum sækja í formheim náttúrunnar og áhorf- andinn skynjar fullkomlega samsömun sögunnar við landið. Tröllið er fjall. Og Sonatorrek er líkt og samsett úr klettum og dröngum. Ásmundur Sveinsson andað- ist í Reykjavík 9. desember 1982. Áður hafði hann ánafnað Reykjavíkurborg listasafn sitt eftir sinn dag. Var það nefnt Ásmundarsafn og formlega opnað 21.

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.