AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Blaðsíða 45
vöru. Menn reru víða á árabátum frá ströndinni og
renndu fyrir fisk. Aflanum var landað upp í sandinn
og reiddur heim eða lagður upp á bryggjuna væri
hún fyrir hendi og tekinn á handvagn inn í aðgerðar-
húsið þar sem gert var að honum. Fiskurinn var síðan
flattur eða flakaður, svo saltaður, hertur eða frystur.
Togararnir sigldu oft með ísaðan afla og seldu til
Englands eða annarra landa. Oft fiskuðu þeir í salt
eins og kallað var.
SKIPASMÍÐI
Tækniþróun í skipasmíði, gerð fiskiskipa og fiskveið-
um hefir verið með ólíkindum á seinustu 50 árum.
Til þess að halda í við þróunina í skipasmíðum hefur
orðið að fylgjast mjög vel með öllum tækninýjungum
og framförum á sviði skipulags og framleiðslutækni.
Eftir 1950 varð algengt að smíða litla fiskibáta raf-
soðna úr stáli og stækkuðu þeir ört eftir það, svo nú
var hægt að sækja lengra út á mörgum stærri skipum.
Framan af héldu íslendingar að sér höndum þegar
farið var að smíða skip með þeim hætti, þrátt fyrir að
þeir höfðu lengi staðið sig vel við smíði fiskibáta úr
furu og eik.
Upp úr 1970 viku síðutogararnir fyrir skuttogurum
sem eru nú oft búnir nokkur þúsund hestafla vélum
og spilum sem draga inn togvírana og aflann með
yfir 100 metra hraða á mínútu upp í skutrennuna í
stað þess að á síðutogurunum voru togvírarnir dregn-
ir um blakkir hengdar í aftur- og framgálga á síðunni
með miklu óþægilegri hætti. Trollið var dregið að skip-
inu og aflinn snörlaður inn á þilfarið. Mörg slys áttu
sér stað á þilfari síðutogara.
Kraftblökkin skipti sköpum á síldveiðunum. Asdic,
bergmálsdýptarmælir, höfuðlínumælir og fleiri tæki
eru mikilvægustu síldarleitartæki sem nú eru notuð
ásamt nákvæmum miðunar- og staðsetningartækj-
um. Með asdici finnst síldin t.d. í tveggja til þriggja
km fjarlægð frá skipinu.
Páll Guðmundsson, þekktur aflaskipstjóri, segir í
vandaðri grein sem hann skrifar í Sjómannablaðið
Víking 1972, 10. hefti: „Árið 1959verðurupphaf bylt-
ingar á síldveiðum okkar, þá tekst á m/b GUÐMUNDI
ÞÓRÐARSYNI að nota kraftblökkina með góðum
árangri við að draga síldarnót, áður hafði verið gerð
tilraun með notkun kraftblakkar á m/b BÖÐVARI, en
sú tilraun gekk ekki vel og var hætt.Næstu árin eign-
uðumst við mörg skip búin fullkomnum tækjum til
síldveiða, jafnframt voru þau alhliða fiskiskip, bæði
Fyrsti skuttogarinn sem smíðaður var á Islandi. Stálvík Sl-I,
1973.
af nákvæmni 0.1 mm á 10 m skurði frá byrjunar-
punkti, nú í Danmörku.
til línu-, neta-og togveiða. Meðtilkomu þessaraskipa
hófust haust- og vetrarsíldveiðar okkar.“ Seinna hefur
mikið verið veitt af loðnu og fleiri fisktegundum í nót.
Fiskidælan er mjög hagnýtt og afkastaaukandi tæki,
sem beitt er í stórum stíl við loðnuveiði, hleðslu og
losun aflans.
í nefndri grein Páls Guðmundssonar skipstjóra kemur
fram að á mörgum sviðum höfum við átt frumkvæði í
framfaramálum er lúta að fiskveiðum og tækjabúnaði
til þeirra.
43
Ljósm: Sveinn Magnússon.