AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Síða 60
hafaforvarnarsamninga við viðurkennd fyrirtæki. Um-
rædd kælikerfi eru á suðvesturhorni landsins og
Reykjavíkursvæðinu og byrjað er að skipt frá R-12
og 502 í R401A og R402A. Með nýjum kælimiðla-
reglugerðum og stöðlum á alþjóðavettvangi er verið
að setja hömlur á „sóunarfrelsið" sem ríkt hefur um
heim allan í 50 ár vaðandi of mikla efna- og orku-
eyðslu við rekstur kæli- og frystikerfa.
Kostnaður við fráhvarfsaðgerðir verður mikill á lands-
vísu, en í staðinn kemur hagkvæmari og lægri rekst-
rarkostnaður en viðgengist hefur undanfarna áratugi,
sem byggist á tæknilegu forvarnareftirliti með kerfun-
um.
Forgangsmál er að stöðva kælimiðilsleka og lagfær-
ing kerfanna að valkostaefnum þeim sem í boði eru
er besti mótleikur gegn áföllum.
Sé núverandi leki á mánuði = óbreytt ástand frá 1993
leka 2000 kg R-12, 1360 kg R502 og 8120 kg R-22
= 11.480 kg samtals út á mánuði.
Samkvæmt nýrri verðkönnun (án virðisauka) í aprílok
tíðkast tvennskonar verð pr. kg eftir hylkjastærðum.
Hvað kostar kælimiðilslekinn í krónum talið á mánuði?
Búast má við að verð á R-12 og R502 muni verða
tvöfalt hærra í lok ársins og jafnframt lækkandi verð
lands. Samkvæmt 15. gr. ósonreglugerðar eru fyrir-
mæli til þjónustuaðila um eigið innra eftirlit með óson-
eyðandi kælimiðlum og ennfremur eru kvaðir um dag-
bókarfærslur innra eftirlits lagðar á gæslumenn við
þrýstiberandi kerfi samkvæmt reglugerð nr. 12 1965
og vitnast til 16. greinar upp að 28. grein þeirrar
reglugerðar. Tilbúnir eru gátlistar í samræmi við báðar
reglugerðirnar. Ennfremur skráningarvottorð kæli-
kerfa, þrýstiprófunar- og lofttæmingarvottorð með
hliðsjón af nýjustu tillögum í kælistöðlum.Héðan í frá
er kæliþjónustumönnum ekkert að vanbúnaði að hefj-
ast handa við eigið innra eftirlit og samræmda skrán-
ingu allra kerfa er þeir þjóna.
Hvaða heilræði til handa KFK kælikerfaeigendum og
notendum eru vænlegust til þess að leysa þau óum-
flýjanlegu vandamál sem við blasa nú þegar?
Norsku heilræðin í Scanref. 5/93 blaðinu hæfa hér-
lendis, þótt Norðmenn hafi tekið vandamálin til með-
ferðar fyrir nokkrum árum. þau eru á þessa leið og
höfða mjög vel til íslenskra aðstæðna.
1. skref: Skrá yfirlit um eigin kælikerfi.
Gerð kerfis, aldur hvers kerfis, magn og tegund KFK
hvers kerfis. Lekaferill hvers kerfis undanfarin ár.
Hvaða orsakir lekans. Hvað gert í þéttimálum. Hvað
hefir sá leki kostað? Hafir þú ekki eigin viðurkenndan
kunnáttumann til slíkrar úttektar ber þér að semja
við viðurkenndan einstakling eða viðurkennt fyrirtæki
vegna hins lögboðna forvarnareftirlits með óson-
eyðandi efnum.
2. skref: Hefja framkvæmdir nú þegar. Gera kerfin
þétt.
Nýleg og eldri kerfi illa hönnuð (með nýjustu kæli-
staðla í huga) og dýr I rekstri skal afleggja eða endur-
nýja (sjá 3. skref). Allar lagfæringar séu gerðar sam-
kv. nýjustu kælistöðlum. Sem kerfiseiganda ber þér
að leita eftir KFK fráhvarfstilboði yfir á viðurkennda
miðla, 10-15 ára lausnir eða langframa lausnir. Eftir
forvarnareftirlitstilboði með kælikerfum þínum skaltu
gjarnan leita og með öllumtiltækum ráðum fyrirbyggja
kælimiðilslekaog gangtruflanir. Uppsetning lekavið-
framalausnir sem meta þarf eftir gerð og aldri KFK
kerfanna og bera saman kosti R-22 og blöndur með
R-22 sem verða aflagðar innan 10-15 ára og koma
ekki til álita á ný kerfi nema hvað Copland býður í
stefnu sinni R-22 vélar með nýjum smurolíum sem
hæfa framtíðar HFC kælimiðlum. Á ný kerfi koma til
greina R-143a, einnig eru margar klórfríar HFK
blöndur í boði, ennfremur á ný kerfi NH3 própan,
isobútan og C02 sem er verið að hefja til vegs og
virðingar á ný.
Vönduð kerfi með lekaferil í núlli síðustu ár starfi
óbreytt um sinn. Safna skal R-12 og 502 til endur-
vinnslu af breyttum og aflögðum kerfum til varasjóðs
fyrir vönduðu kerfin er að ofan greinir þar til nýju
efnin lækka verulega í verði. ■
á staðgengiefnunum nýju. vörunartækja við stærri kerfi.
Framundan er allsherjarskráning kælikerfa til sjós og 3. skref: Fá kostnaðartilboð um skammtíma- og lang-
Leki á mánuði verð í stórum hylkjum verð í smáum hylkjum
R- 12 = 2.000 kg kr. 4000= 800.000 kr. kr. 630 = 1.260.000 kr.
R- 502 =1.360 kg kr. 1125 = 1.530.000 kr. kr. 1351 = 1.837.360 kr.
R-22 = 8.120 kg kr. 370 = 3.004.400 kr. kr. 503= 4.084.360 kr.
Leki alls = 11.480 kg kr. samt. 5.334.400 eða kr. 7.181.720