AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 68

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1994, Page 68
JARÐVEGSVERND RALAi.r. jarövegseyoing Hæsta rofeinkunn á hveiju svaeöi V-Húnavatnssýsla D Ókortlagt y Rofelnkunn 3 S Rofelnkunn 4 S Rofeinkunn 5 (ri ESMM/JV IWt ,1:180^000 . i.UWÍA / ~ KHÍirötSr Rofkort af Vestur-Húnavatnssýslu. Sýslan er mjög vel gróin (rauður litur). Aðeins fáein afmörkuð svæði hljóta slæma rof- einkunn. Stærstasamfellda rofsvæðið erfjörusandar. Samfelldu blá-skástrikuðu svæðin (rofeinkunn 3) eru að stórum hluta hrossabeitarsvæði. Afréttagirðing sést fyrir neðan miðja mynd, en minni gróður (minna rauður litur) er sunnan við hana en norðan. gerðummelum. Því ræður sandur miklu um flokkun jarðvegsrofs á auðnum. Jarðvegsrofinu er gefin einkunn á kvarð- anum 0-5, þar sem 0 þýðir ekkert rof, en 5 merkir mjög mikið rof. Rofkvarðinn er sýndur í meðfylgjandi töflu, ásamt því hvernig við metum landið út frá þessum kvarða með tilliti til landnýtingar. Samkvæmt þessu eru svæði sem fá rof- einkunn 4 og 5 ekki talin hæf til beitar. Kortlagningin fer þannig fram að farið er um allt land með gervihnattamyndir, rofið metið og það fært inn á gagnsætt plast sem lagt er yfir myndirnar. Á hverju svæði geta verið margar rofgerðir, t.d. bæði rofabörð, vatnsrásir o.s.frv. þessi vinna er tímafrek og útheimtir mikil ferða- lög. Nú er lokið við að kortleggja um 3/4 hluta landsins. Eftirað vettvangsvinnu lýkur, eru línurnar hnitaðar inn í GlS-kerfi. Einfalt hollenskt GlS-kerfi sem nefnist ILWIS er notað við hnitunina.Það býður upp á myndvinns- lu, sem er nauðsynleg vegna gervi- hnattamyndanna. Unnið er úr gögnun- ________ um í ARC/INFO kerfinu.sem er megin- GlS-kerfið sem notað er við þetta verkefni. Fjárhagsleg forsenda þessaverkefnis, og þásérstak- lega hvað snertir öflun tækjabúnaðar og þróun að- ferða, hefur verið styrkir frá Framleiðnisjóði landbún- aðarins og Rannsóknaráði ríkisins. NOTAGILDI ROFKORTA 1 rofkortunum er fólginn viðamikill gagnabanki um yfirborð landsins alls, sem má nýta á margvíslegan hátt. Rofkortin gefa heildarmynd af rofinu í landinu, hvar það er á háu stigi og hvar rof telst vera lítilvægt, það er ekki síður mikilvægt. Kortin gjörbreyta því að- stöðu Landgræðslu ríkisins til að skipuleggja og for- gangsraða verkefnum sínum.En þótt nota megi þenn- an gagnabanka til að meta ástand beitilands með tilliti til rofs ber að hafa í huga að rofkortin segja ekki alla söguna, einnig þarf að meta gróðurinn til þess að fá fullnaðarmynd af beitilandi. Þau rofkort sem liggja nú fyrir sýna að jarðvegseyðing er alls ekki alvarleg í öllum sauðfjárræktarhéruðum landsins. Þannig er t.d. lítið rof í Vestur-Húnavatns- sýslu, en aftur á móti mikið rof í sumum öðrum sýslum og hreppum. Þeirri spurningu má varpa fram hvort 66

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.